Lífið

Glæsilegustu einhleypu konur landsins

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Íslenskar konur þykja þær fallegustu í heimi.
Íslenskar konur þykja þær fallegustu í heimi.

Íslenskar konur þykja þær fallegustu í heimi. Við hjá Lífinu á Vísi erum sammála þeirri kenningu. Í samráði við vel valda álitsgjafa settum við saman lista af einhleypum og glæsilegum íslenskum konum.

Kolbrún Pálína Helgadóttir, fjölmiðla- og markaðsráðgjafi (43)

„Fegurðardrottningin og glæsikvendið Kolbrún Pálína bræðir alla með sínu fallega brosi og augnaráði. Dugnaðarforkur með meiru sem er vinkona vinkvenna sinna.“

Aldís Pálsdóttir

Elín Reynisdóttir, förðunarfræðingur (54)

„Elín er ein sú færasta og reyndasta í förðunarbransanum. Ekki nóg með það að þá er hún gullfalleg og dásamleg!“

Elín Reynisdóttir

Manuela Ósk Harðardóttir, framkvæmdastjóri Miss Universe Iceland (40)

„Manuela Ósk er án efa ein glæsilegasta kona landsins. Þessir ljósu lokkar, löngu leggir og góðmennska er blanda sem getur ekki klikkað.“

Kolbrún Björnsdóttir, leiðsögumaður og fyrrum fjölmiðlakona (49)

„Fögur og fim fjallageit sem lætur ekkert stoppa sig!“

Kolbrún BjörnsdóttirVilhelm Gunnarsson

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona (54)

„Einn mesti nagli landins. Hæfileikarík, skemmtileg með bilaðslega góðan húmor. Steinunn Ólína lýsir upp hvert rými sem hún gengur inn í með sínu hlýja brosi og nærveru.“

Þjóðleikhúsið

Margrét Ýr Ingimarsdóttir, grunnskólakennari (38)

„Margrét er yndisleg, ljúf og listræn, og án efa skemmtilegasta grunnskólakennari landsins. Öll fallegu lýsingarorðin eiga svo sannarlega við um þessa föngulegu hárprúðu konu!“

Margrét Ýr

Bríet Ísis Elfar, tónlistarkona (24)

„Tónlistarkonan og stjarnan Bríet er með glæsilegustu konum landsins. Hún er algjör töffari sem virðist óhrædd við að fara eigin leiðir og má heldur betur gera ráð fyrir því að hún sé eftirsótt einhleypa.“

Bríet

Kamilla Einarsdóttir, rithöfundur (44)

„Húmoristinn og dásemdin, Kamilla er mikill sjarmör og mjög fyndin. Hún er líklegt að leitist eftir góðri kímnigáfu í maka.“

Kamilla

Berglind Festival Pétursdóttir, fjölmiðlakona (35)

„Stórskemmtileg, kaldhæðin með dásamlegan húmor. Svo skemmir ekki fyrir hvað hún er hæfileikarík og mikil sjónvarpsstjarna.“

Berglind

Embla Gabríela Wigum, samfélagsmiðlastjarna (24)

„Embla er ein skærasta samfélagsmiðla stjarna okkar Íslendinga og virðist vera að slá í gegn erlendis sömuleiðis, með 2,5 milljón fylgjendur á TikTok. Embla er mjög listræn, hæfileikarík og klár og alltaf glæsileg.“

Embla Wigum

Rakel Tómasdóttir, listakona (30)

„Rakel hefur getið gott orð af sér síðastliðin ár fyrir listaverk sín og leturgerð. Rakel er gjarnan svartklædd og smá mysterísk, alltaf smart og með rosalega sjarmerandi bros.“

Rakel Tómasdóttir

Tinna Miljevic, förðunarfræðingur (38)

„Tinna er ein sú færasta í förðunarbransanum sem getur breytt fólki í allra kvikinda líki. Hún er með eindæmum skemmtileg og er einstaklega fær í að töfra fram einn besta kaffibolla bæjarins.“

Tinna Miljevic

Júlíanna Ósk Hafberg, listakona (31)

„Júlíanna Ósk er sjarmerandi og ótrúlega skapandi hæfileikabúnt, býr yfir mikilli dýpt og hefur einstaklega hlýja nærveru.“

Vísir/Vilhelm

Tengdar fréttir

Heitir í háloftunum

Karlkyns flugþjónum, eða heitum háloftaprinsum, hefur fjölgað ört á síðastliðnum árum. Í gegnum tíðina hafa konur verið kenndar við starfið út frá gömlum staðalímyndum. Flugfreyjur áttu að vera ógiftar og snotrar í vexti.

„Hamingjusöm og hlakka til lífsins með þér“

Inga Tinna Sigurðardóttir stofnandi og framkvæmdarstjóri Dineout birti fyrstu paramyndirnar af sér og kærastanum, Loga Geirssyni fyrrverandi landsliðsmanni í handbolta og einkaþjálfara.

Fabjúl­öss feður

Birtingarmynd föðurhlutverksins er fjölbreytt og flókin. Þar má nefna nýbakaða feður, margra barna feður, stjúpfeður, einstæða feður, verðandi feður og feður yfir fertugt, svo fátt eitt sé nefnt.

Föngulegir folar á lausu

Íslenskir karlmenn eru misjafnir eins og þeir eru margir. Í samráði við vel valda álitsgjafa settum við saman lista af föngulegum folum sem eiga það sameignlegt að ganga lausir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×