„Ég fer afar þakklát inn í óvissuna með dass af kvíða“ Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 23. október 2023 08:00 Gerða hefur haldið úti einu vinsælasta námskeiði World Class. Gerða Íþróttafrömuðurinn Gerður, þekkt sem Gerða-In Shape eða Jane Fonda Íslands, hefur ákveðið að hætta þjálfun á námskeiðinu, In Shape, í Worlds Class í nóvember. Námskeiðin hafa notið gríðarlegra vinsælda síðastliðin ár, sérstaklega hjá samfélagsmiðlastjörnum landsins.
Gerða greinir frá tímamótunum í einlægri færslu á samfélagsmiðlum þar sem lýsir blendnum tilfinningum í kjölfar ákvörðunarinnar. View this post on Instagram A post shared by INSHAPE (@gerda_inshape) „Það er ekki auðvelt að stíga til hliðar þegar ótrúlega vel gengur og finnast maður í leiðinni vera bregðast fólkinu í kringum sig, en hvenær er rétti tíminn? Ég fékk fyrir stuttu tíma í aðgerð í byrjun des að láta laga á mér stórt bil á kviðnum eftir meðgöngu sem ég hef látið sitja á hakanum of lengi svo það verður fyrsta skrefið,“ segir Gerða sem er þriggja barna móðir. Spennt fyrir framtíðinni Hún segist eiga sér marga drauma og spennt að sjá hvert lífið leiðir hana. „Ég fer afar þakklát inní óvissuna með dass af kvíða en treysti á sjálfan mig að það bíði mín eitthvað spennandi,“ segir Gerður sem hefur hrundið af stað nokkurst konar dans-eróbik æði á meðal íslenskra kvenna. Innblástur við gerð námskeiðsins fékk Gerða frá stjörnuþjálfaranum Tracey Anderson. „Ég heillaðist mikið af hennar nálgun og vildi byggja námskeiðið á því að hugsa út fyrir kassann og nýta allan þann grunn sem ég hef. Ég blanda mínum hugmyndum af nýjum æfingum við ákveðinn grunn og legg mikla áherslu á góða tónlist. Það er mikilvægt að þjálfa hugann og samhæfinguna í leiðinni. Tímarnir enda svo alltaf á því að við dönsum úr okkur hrokann við indjánatónlist með lokuð augun og leggjumst svo niður í slökun í lokin til að taka inn orkuna sem við erum búnar að búa til,“ sagði Gerða í samtali við Vísi árið 2020. 🫵🏻💪🏻
Heilsa Tímamót Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Tónlist Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Fleiri fréttir „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Sjá meira