Lífið

Skvísur landsins svitnuðu saman á Edition

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Stjörnuþjálfarinn Gerða Jónsdóttir stóð fyrir glæsilegri æfingu á Reykjavik Edition hótelinu.
Stjörnuþjálfarinn Gerða Jónsdóttir stóð fyrir glæsilegri æfingu á Reykjavik Edition hótelinu. helgi ómars

Eitt glæsilegasta hótel landsins, Reykjavik Edition, fylltist af öflugum konum nú á dögunum þegar stjörnuþjálfarinn Gerða Jónsdóttir hélt þar sérstakan æfingaviðburð.

Gerða heldur úti námskeiðinu In Shape í líkamsræktarstöðinni World Class. Námskeiðið er ætlað konum sem vilja komast í betra form á skemmtilegan hátt. Um er að ræða styrktaræfingar með eigin líkamsþyngd og léttum lóðum, teygjum og slökun. Námskeiðið hefur slegið í gegn og ákvað Gerða að blása til alvöru In Shape veislu á þessu glæsilega hóteli.

Vettvangur fyrir konur til þess að stækka tengslanetið

„Það er bara svo næs að skapa þennan vettvang þar sem fólk er að hittast án þess að vera á djamminu, því maður tengist öðruvísi,“ segir Gerða um viðburðinn.

„Ég hef nefnilega séð þetta á námskeiðunum mínum. Það eru þar alls konar týpur og þær kynnast og stækka tengslanetið sitt.“

Á æfingunni voru samankomnar konur úr hinum ýmsu kimum samfélagsins. Á meðal gesta voru förðunarfræðingarnir Erna Hrund Hermannsdóttir, Kolbrún Anna Vignisdóttir og Thelma Guðmundsen, athafnakonurnar Birgitta Líf Björnsdóttir, Andrea Magnúsdóttir og Elísabet Metta Ásgeirsdóttir, tískubloggararnir Pattra Sriyanonge og Anna Bergmann, fjölmiðlakonurnar Edda Sif Pálsdóttir, Kolbrún Pálína Helgadóttir og Viktoría Hermannsdóttir, fyrirsæturnar Ragnheiður Theodórsdóttir og Sigrún Eva Jónsdóttir, þjálfarinn Karítas María Lárusdóttir og kokkurinn Hrefna Sætran.

Plötusnúðurinn Dóra Júlía keyrði stemminguna í gang áður en æfingin hófst. Ekkert var gefið eftir og var stemmingin virkilega góð eins og sjá má á myndum fyrir neðan. Kvöldinu lauk svo með því að Erna Bergmann leiddi teygjur og hugleiðslu.

Förðunarfræðingurinn Thelma Guðmundsen og tískubloggarinn Anna Bergmann.Helgi Ómars
Plötusnúðurinn Dóra Júlía.Helgi Ómars
Tískubloggarinn Anna Bergmann og Elísabet Metta, eigandi Maikai.Helgi Ómars
Athafnakonan Birgitta Líf, tískubloggarinn Pattra og fyriræstan Sigrún Eva.Helgi Ómars
Förðunarfræðingurinn Kolbrún Anna Vignisdóttir.Helgi Ómars
Förðunarfræðingarnir Erna Hrund Hermannsdóttir og Thelma Guðmundsen.Helgi Ómars
Fyrirsætan Ragnheiður Theodórsdóttir og þjálfarinn Karítas María Lárusdóttir.Helgi Ómars
Lögð var áhersla á styrktaræfingar með eigin líkamsþyngd og léttum lóðum, teygjur og slökun.Helgi Ómars
Það var fjölmennt á viðburðinum og stemningin góð.Helgi Ómars
Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir og förðunarfræðingurinn Erna Hrund Hermannsdóttir voru í góðum gír.Helgi Ómars
Það var ekkert gefið eftir á æfingunni.Helgi Ómars
Reykjavik Edition fylltist af öflugum konum nú á dögunum.Helgi Ómars
Fyrirsætan Sigrún Eva.Helgi Ómars
Gerða og Dóra Júlía.
Erna Bergmann leiddi teygjur og slök undir lok kvöldsins.Helgi Ómars
Kvöldið lukkaðist vel.Helgi Ómars
Gerða var í skýjunum með kvöldið.Helgi Ómars

Tengdar fréttir

„Konur mættu vera blíðari við sjálfa sig eftir meðgöngu“

„Konur mættu vera blíðari við sjálfa sig eftir meðgöngu, klappa sér á bakið fyrir að hafa gengið með barn og ekki vera að stressa sig á því að fara í sama form og þær voru í áður“, segir Gerður Jónsdóttir, íþróttafræðingur, í viðtali við Makamál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×