Innlent

Vill frekar banna síma utan en innan skóla

Árni Sæberg skrifar
Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands.
Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands. Vísir/Vilhelm

Formaður Kennarasambands Íslands segir það enga töfralausn að banna símanotkun barna í grunnskólum. Félagskvíði sé til að mynda vandamál meðal stúlkna allt niður í þriðja bekk og það komi ekki til vegna síma.

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, settist niður með stjórnendum Bítisins á Bylgjunni til þess að ræða andlega líðan barna í grunnskólum landsins. Tilefnið er viðtal Þorgríms Þráinssonar í sama þætti á dögunum, sem hefur vakið gríðarlega athygli.

Þorgrímur sagði neyðarástand í landinu. Líðan ung­menna, náms­árangur og mál­skilningur kalli á að­gerðir. Hann sagði for­eldra vera að bregðast og kennara og skóla ekki geta meir. Þá sagði hann að hann sæi gríðar­legan mun á líðan nem­enda og mál­færni þeirra í skólum þar sem far­síma­notkun sé bönnuð.

„Glöggt er gests augað“

Magnús Þór segist að mörgu leyti taka undir áhyggjur Þorgríms og að glöggt sé gests augað, en Þorgímur hefur haldið fyrirlestra reglulega í grunnskólum í á annan áratug.

„Það er margt í hans máli sem ég gat tekið undir og var sammála. Svo var, eins og gengur, sem við myndum vilja útvíkka og fara betur yfir. Hvort sem það eru skólamálin sjálf eða foreldrasamstarf, sem hefur auðvitað breyst gríðarlega á síðustu áratugum, og klárt mál að eins og áður, þegar umræðan fer á þennan stað þá vonum við að við náum að leiða hana á þann stað að við getum sameinast um það sem sem klárlega skiptir okkur mestu máli.“

Börnum hafi alltaf liðið misjafnlega

Magnús Þór segir að það sé alveg klárt mál að það sem Þorgrímur lýsir varðandi líðan barna hafi lengi verið vandamál. 

„Við erum á þeim stað að vera með börn sem líður misjafnlega og það er eitthvað sem, sem betur fer, á síðustu tuttugu árum hefur orðið ríkari þáttur í umræðunni. Við sem erum inni í skólanum þekkjum það núna. Þegar við erum að hitta fólk, sem var í skólakerfinu fyrir tuttugu, þrjátíu árum, þá voru allt önnu viðmið hlutverk kennarans var að vera uppfræðarinn og minna að hugsa um líðanina.

Umræðan hverfist of mikið um símana

Magnús Þór segir að umræða um símanotkun barna og hugsanlegt bann við henni hafi orðið háværari undanfarin ár. Hann segir það augljóst mál að sú leið myndi fría uppalendur.

„Ef við getum sagt það að við ætlum bara að banna símana í skólunum og þar með höfum við lokið verkefninu sem við þurfum að eiga við. Það er það sem mér hefur fundist umræðan verða of mikið og ég hef áhyggjur af því að aftur verði umræðan um það sem við erum sammála Þorgrími um, varðandi það að við viljum fá átak í því að vinna á vanlíðan barna, verði aftur þessi umræða.

Vill frekar banna símana utan skóla

Hann segist hafa lagt það til að símanotkun barna verði frekar bönnuð utan skóla en innan. Mjög mikið af skólum hafi unnið frábær verkefni með hjálp snjalltækja

Viðtal við Magnús Þór í Bítinu má heyra í spilaranum hér að neðan:


Tengdar fréttir

Sál­fræðingar staldra við á­hyggjur Þor­gríms Þráins­sonar

Tveir sálfræðingar Sálstofunnar hafa svarað yfirlýsingum Þorgríms Þráinssonar um líðan íslenskra barna í grein. Þeir fagna umræðunni en staldra þó við ákveðin atriði hjá Þorgrími. Það sé einföldun að flokka alla vanlíðan undir sama hatt og að það eigi ekki að gera foreldra að sökudólgum heldur líta á uppeldi barna sem samfélagsverkefni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×