Innlent

Frekari sala í Ís­landsbanka geti ekki farið fram með Sjálf­­stæðis­­flokk í for­ystu

Lovísa Arnardóttir skrifar
FotoJet (8)

Formenn Viðreisnar og Framsóknarflokks tókust á um efnahagsmálin og stöðu ríkisstjórnarinnar í Sprengisandi í morgun. Þorgerður Katrín vill að Vinstri græn eða Framsókn sjái um áframhaldandi sölu hlut ríkisins í Íslandsbanka. 

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sóknar­flokksins og inn­viða­ráð­herra, sagði mikil­vægt að stjórn­völd og aðilar vinnu­markaðar vinni í sam­einingu á háu vaxta­stigi og verð­bólgu á Ís­landi. Hann sagði ríkis­stjórnina með­vitaða um að þetta væru stærstu verk­efnin fram undan og að þau hefðu axlað á­byrgð með því að breyta skipan ríkis­stjórnar í síðustu viku.

Þor­gerður Katrín Gunnars­dóttir, for­maður Við­reisnar, og Sigurður Ingi voru gestir Kristjáns Kristjáns­sonar í Sprengi­sandi í dag.

Þau byrjuðu á því að tala um á­kvörðun formanns Sjálf­stæðis­flokksins að hætta sem fjár­mála­ráð­herra. Þor­gerður sagði að hennar mati hefði verið betra að em­bættið hefði verið fært til þing­manns í annað hvort flokki Fram­sóknar eða Vinstri grænna.

„Frá­farandi fjár­mála­ráð­herra skilur ekkert eftir sér­stakt bú,“ sagði Þor­gerður Katrín um Bjarna og að arf­leifð hans „væri ekkert sér­stök“ í fjár­mála­ráðu­neytinu.

Spurningum um verkefnin ósvarað

Hún sagði spurningum um stór verk­efni innan ríkis­stjórnarinnar enn ó­svarað. Það sem hefði komið fram í gær væri að ríkis­stjórnin væru „mjög peppuð“ sem væri vel, en það þyrfti meira.

Kristján spurði Sigurð Inga hvort ríkis­stjórnin tæki ekki álit um­boðs­manns al­var­lega. Hann sagðist sam­mála niður­stöðu Bjarna í þessu máli, að hann gæti ekki lengur starfað sem fjár­mála­ráð­herra, og að við­brögð hans séu skýr og hann axli á­byrgð með því að hætta.

Hann sagði Þor­gerði Katrínu djarfa, sem fyrr­verandi vara­for­maður Sjálf­stæðis­flokksins, að segja að Sjálf­stæðis­flokkurinn sé of tengdur fjár­mála­kerfinu og geti því ekki stjórnað klárað söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Hann telji Vinstri græn eða Fram­sókn alveg geta það en í grunninn treysti hann ríkis­stjórninni til að gera það.

„Ég treysti ein­fald­lega ríkis­stjórninni til þessa verk­efnis,“ sagði Sigurður. 

Þor­gerður svaraði því og sagði gott að tala um reynslu, bæði slæma og góða. Hún fagnaði því að Sigurður Ingi væri loks kominn til leiks og sagði at­burða­rás vikunnar sýna að Fram­sókn væri „auka hjól undir vagni ríkis­stjórnarinnar“.

„Hann virtist koma al­ger­lega af fjöllum for­maður Fram­sóknar­flokksins um fram­vinduna, en gott og vel, hann vill þá bara nota stjórnar­and­stöðuna til að kveikja og vekja sig,“ sagði Þor­gerður Katrín



Hún sagði á­fram­haldandi sölu á hlut ríkisins í Ís­lands­banka ekki geta farið fram á meðan Sjálf­stæðis­flokkurinn væri enn í fjár­mála­ráðu­neytinu og gagn­rýndi að það væri í raun ekkert verið að reyna að læra af á­liti um­boðs­manns.

„Það skiptir svo miklu máli að reyna að læra af reynslunni,“ sagði hún.

Stólaskipti rándýrrar ríkisstjórnar

Þau ræddu einnig erfiða stöðu bænda í háu vaxta­stigi og mikinn fjár­magns­kostnað sem til dæmis hamli ný­liðun í greininni.

„Þetta er það sem við verðum að reyna að horfast í augu við í sam­fé­laginu. Að þessi rán­dýra ríkis­stjórn, sem að gerir ekki annað en að fara í stóla­skipti. Það var bent á það í gær að það væri eins og hún væri að setja sig í öndunar­vél næstu tvö árin. Gott og vel, en þetta er dýrt fyrir sam­fé­lagið.“

Eftir að ræddi hún erfiða fjár­hags­stöðu al­mennings og að það væri vegna verka ríkis­stjórnarinnar. Það þyrfti að bregðast við þessu og taka á­kvarðanir. Hún fengi reglu­lega pósta frá fólki sem hafi á­hyggjur af börnunum sínum. Af­borganir hús­næðis­lána þeirra séu að fara úr 150 þúsund í 350 þúsund og þau ráði ekki við það

„Þetta eru kennarar. Þetta eru raf­virkjar og hjúkrunar­fólk. Það getur ekki staðið í þessu,“ sagði hún og að auk þess væri matar­karfan hér sú hæsta í Evrópu.

Bongóblíða hjá ríkisstjórninni

„Allt þetta hefur gerst á vakt þessarar ríkis­stjórnar og það er bara bongó­blíða hjá ríkis­stjórninni. Sigurður Ingi segir bara: Þor­gerður, sérðu ekki veisluna sem við höfum búið við?“ sagði Þor­gerður og að ríkis­stjórnin þyrfti að ganga til verka í fleiri málum, eins og orku­málum.

Þau ræddu svo ítar­lega vaxta­stig í landinu, háa verð­bólgu og erfiða stöðu al­mennings og voru ó­sam­mála bæði um stöðuna og þær að­gerðir sem hefði verið gripið til núna og í tíð ríkis­stjórnarinnar. Sigurður Ingi vísaði mál­flutningi Þor­gerðar Katrínar um að hér væri allt hræði­legt á bug og benti á góðan af­gang ríkis­sjóðs síðustu tvö árin.

„Ég sagði aldrei að það væri veisla. Ég sagði bara í hlut­falli við önnur ríki þar sem menn eru kljást við meiri af­leiðingar af heims­far­aldri vegna þess að þeir gerðu ekki eins vel og við,“ sagði Sigurður og að stríðið í Úkraínu hefði auk þess meiri á­hrif annars staðar en hér. Þess vegna væru okkar á­skoranir minni en annarri þjóða. Kaup­máttur væri meiri og at­vinnu­leysi minna. En verð­bólgan væri orðin of há, en væri sjálf­keyrandi hér innan­lands og það væri hægt að taka á henni hér.

Hann sagðist þó sam­mála Þor­gerði um eitt og að það væri að Ís­land væri að borga of háa vaxta­gjöld og að hægt væri að gera betur. Ís­land væri í sama flokki og lönd sem eru við það að verða gjald­þrota og þetta væri liður sem væri sá þriðji stærsti í fjár­lögum.

„Við ættum að vera komin með allt annað vaxta­stig með þetta fjöl­breytta hag­kerfi sem við erum komin með í dag. Það er ekki ein­hæft eins og það var fyrir 30 til 40 árum,“ sagði Sigurður Ingi og að hann vilji leggja meiri á­herslu á þetta. Það skipti máli fyrir af­komuna og um­ræðuna í þinginu.

Þau ræddu einnig stöðuna á hús­næðis­markaði í tengslum við þenslu en eitt af mark­miðum ráðu­neytis Sigurðar Inga er að byggja meira. Hann sagði það erfitt í nú­verandi vaxta­stigi en að það væri verið að byggja undir við­kvæma hópa á við­ráðan­legu verði. Þannig væri markaðurinn gerður betri fyrir þau tekju­lægstu.

Þor­gerður Katrín sagði að það þyrfti að fara nýjar leiðir svo að barna­börn þeirra myndu ekki búa við marg­falt hærri vexti en löndin í kringum þau.

Við­talið er lengra og er hægt að hlusta á það í heild sinni hér að ofan.


Tengdar fréttir

Tekur bjart­sýn en raun­sæ við nýjum verk­efnum

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir segist spennt taka við nýjum verkefnum. Hún muni leggja sig allan fram í þau. Verkefnin séu þung, en augljós. Hún segir það í forgangi að halda áfram með sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. 

„Menn ætla að axla á­byrgð með því að gerast utan­ríkis­ráð­herrar“

Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu margir hverjir afsögn Bjarna Benediktssonar á þingi í dag. Formaður Viðreisnar segir óvissu ýta undir óstöðugleika og að það ríki ringulreið. Þingmenn gagnrýndu það að hann fari mögulega í annan ráðherrastól. Bjarni verður til svars í óundirbúnum fyrirspurnum á morgun. 

„Mjög ó­þægi­legt“ að hærri vextir séu að hafa á­hrif til hækkunar á verð­bólgu

Þótt sú aðferð að innihalda áhrif vaxtabreytinga á reiknaða húsaleigu við mælingu verðbólgu kunni að vera „fræðilega rétt“ þá hefur hún óheppileg áhrif núna þegar vextir Seðlabankans fara hækkandi, að sögn seðlabankastjóra. Árstaktur verðbólgunnar væri umtalsvert lægri um þessar mundir ef vaxtaþátturinn væri undanskilin í húsnæðisliðnum í vísitölu neysluverðs.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×