Erlent

Lítið nýtt á „hörm­u­leg­um“ fund­i um Biden

Samúel Karl Ólason skrifar
James Comer, formaður eftirlitsnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings er hér til hægri. Við hlið hans situr Jamie Raskin, hæst setti Demókratinn í nefndinni.
James Comer, formaður eftirlitsnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings er hér til hægri. Við hlið hans situr Jamie Raskin, hæst setti Demókratinn í nefndinni. AP/Jacquelyn Martin

Repúblikanar héldu í gær fyrsta nefndarfundinn um rannsókn þeirra á Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, varðandi mögulega ákæru fyrir embættisbrot. Fundurinn stóð yfir í rúma sex tíma en ekkert nýtt kom fram sem gaf til kynna að Biden hefði brotið af sér í starfi eða væri sekur um spillingu.

Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildarinnar, tilkynnti nýverið að formleg rannsókn þingmanna væri hafin og að hún ætti að beinast að viðskiptaumsvifum fjölskyldu Bidens.

Meðal annars ætla Repúblikanar að rannsaka hvort Joe Biden hafi hagnast af viðskiptum sonar hans, Hunter. Rannsóknin fer fram í þremur nefndum þingsins og er leidd af þingmönnunum James Comer, sem leiðir eftirlitsnefnd þingsins, Jim Jordan, sem leiðir dómsmálanefndina, og Jason T. Smith, sem leiðir fjármálanefndina.

Sjá einnig: Hefja formlega rannsókn á Biden

Þessi fyrsti nefndarfundur var haldinn í eftirlitsnefnd Fulltrúadeildarinnar og þar báru þeir Jonathan Turley, íhaldssamur lagaprófessor, Bruce Dubinksy, rannsóknarendurskoðandi, og Eileen O‘Connor, fyrrverandi skattalögmaður dómsmálaráðuneytisins, vitni.

Það vakti mikla athygli að á meðan þingmenn Repúblikanaflokksins í nefndinni sökuðu Joe Biden um glæpi og spillingu sögðu vitni þeirra á fundinum að ekki væri tilefni til þess að ákæra Biden fyrir spillingu.

Rannsókn Repúblikana á Joe Biden hefur staðið yfir í níu mánuði en hingað til hefur hún ekki enn varpað ljósi á sönnunargögn sem sýna að Joe Biden hafi hagnast störfum sonar hans í Úkraínu eða annarsstaðar. Repúblikanar hafa varið árum í að rannsaka Hunter Biden, sem var nýverið ákærður vegna byssukaupa.

Eins og fram kemur í frétt Washington Post hafa rannsakendur Repúblikanaflokksins fundið vísbendingar og aflað vitnisburðar um að Hunter Biden, sem var í mikilli fíkniefnaneyslu á þessum tíma, hafi reynt að nota nafn sitt og föður síns til að afla sér peninga. Engar vísbendingar hafa fundist um að Joe Biden hafi tekið þátt í því eða hagnast á því.

„Hörmulegur“ fundur

Þegar Comer hóf fundinn sagðist hann ætla að opinbera á þriðja tug sönnunargagna sem varpa ættu ljósi á spillingu Joe Biden og hvernig hann hefði misnotað embætti sitt. Aðrir Repúblikanar slógu á svipaða strengi og kölluðu Biden meðal annars spilltasta forseta Bandaríkjanna.

Í einrúmi hafa Repúblikanar hins vegar sagt að fundurinn hafi ekki farið vel. Í samtali við New York Times sagði einn heimildarmaður innan Repúblikanaflokksins að þingfundurinn hefði verið „hörmulegur“. Heimildarmenn miðilsins segja Comer hafa misst tök á fundinum og grafið undan eigin ásökunum með vitnunum sem kölluð voru til.

Þegar Dubinsky bar vitni sagðist hann til að mynda ekki ætla að gefa í skyn að forsetinn hefði brotið af sér. „Að mínu viti, þarf að afla frekari upplýsinga og fara yfir þær, áður en ég gat lagt fram mitt mat“.

Turley sagðist telja að tilefni væri til rannsóknar en sönnunargögnin hingað til styddu ekki ákæru fyrir embættisbrot.

Demókratar hafa sagt að rannsókn Repúblikana þjóni eingöngu þeim tilgangi að auðvelda kosningabaráttu Trumps. Forsetinn fyrrverandi hefur þrýst mjög á Repúblikana að ákæra Biden fyrir embættisbrot en Trump var tvisvar ákærður. Þeir segja Repúblikana vilja grafa undan alvarleika þess að vera ákærður fyrir embættisbrot og að verið sé að nota þingið til að reyna að setja Trump og Biden á sama stall í augum kjósenda fyrir kosningarnar á næsta ári.

Vitnin fjögur sem rætt var við á fundinum í gær. Frá vinstri: Jonathan Turley, Eileen O'Connor, Bruce Dubinsky og Michael Gerhardt.AP/Jacquelyn Martin

Birtu hluta skilaboða án samhengis

Á einum tímapunkti á fundinum í gær birtu Repúblikanar hluta af skilaboðum milli James Biden, bróður forsetans, og Hunter Biden, sonar forsetans. Sá hluti skilaboðanna sem Repúblikanar birtu var tekinn úr öllu samhengi og gáfu þingmennirnir til kynna að þarna væri verið að ræða spillingu.

Svo var ekki. Frændurnir voru að tala um vandræði Hunters og það að hann gæti ekki greitt meðlag án aðstoðar föður síns. Eins og áður segir, var hann í mikilli neyslu fíkniefna á þessum tíma og átti í miklum vandræðum.

Eftir að fundinum lauk tilkynnti Comer að hann ætlaði að stefna James og Hunter Biden og krefast bankaupplýsingaþeirra og sagði að nefndin myndi áfram „fylgja peningunum og sönnunargögnunum“.

Enn um saksóknarann og Burisma

Mál Repúblikana snýst að miklum hluta um störf Hunter Biden í stjórn úkraínska orkufyrirtækisins Burisma. Hafa þeir sakað Joe Biden um að hafa þrýst á yfirvöld í Úkraínu, þegar hann var varaforseti Barack Obama, um að saksóknari sem á að hafa verið að rannsaka Burisma vegna spillingar, yrði rekinn.

Þessar ásakanir eiga ekki rétt á sér.

Jim Jordan nefndi þetta sérstaklega á fundinum í gær. Vísaði hann þriggja staðreynda.

Sú fyrsta var að Hunter Biden hafi verið skipaður í stjórn Burisma. Önnur staðreyndin var að Hunter hafi ekki verið hæfur til þessa starfs og hann hefði sjálfur viðurkennt það.

Þriðja staðreyndin, samkvæmt Jordan, var að aðrir meðlimir í stjórn fyrirtækisins hefðu beðið Hunter Biden um hjálpa þeim við að losna undan þrýstingi frá saksóknara sem á að hafa verið að rannsaka fyrirtækið. Jordan sagði fjórðu staðreyndina vera þá að þann 9. desember 2015 hefði Joe Biden farið til Úkraínu, þar sem hann hélt ræðu sem leiddi til þess að umræddur saksóknari yrði rekinn.

Michael Gerhardt, lagaprófessor sem Demókratar fengu til að bera vitni, benti á að fyrstu tvær staðreyndir Jordan snerust ekki um Joe Biden. Hann sagði að hinar tvær staðreyndirnar bentu þar að auki ekki til þess að Joe Biden hefði gert neitt af sér.

Jordan vísaði þá til ummæla viðskiptafélaga Hunter Biden, sem heitir Devon Archer, þegar hann bar vitni nýlega. Archer sagði að Hunter Biden hefði hringt í Joe Biden föður sinn, eftir að aðrir stjórnarmenn Burisma báðu hann um hjálp.

Það sem Jordan tók ekki fram, en Daniel S. Goldman, þingmaður Demókrataflokksins benti strax á, var að Archer sagði einnig að Joe Biden hefði ekkert gert til að hjálpa Burisma og að stjórnarmeðlimir fyrirtæksins hefðu ekki fengið aðgang að forsetanum, sem þá var varaforseti. Archer sagði einnig að brottrekstur Shokin hefði komið niður á Burisma.

Goldman vildi að þessum ummælum yrði bætt í fundarskrá en Repúblikanar neituðu því í fyrstu. Comer leyfði það svo seinna meir.

Repúblikanar vildu einni reka Shokin 

Það er rétt að Biden krafðist þess af yfirvöldum Úkraínu að ríkissaksóknarinn Viktor Shokin yrði rekinn og að hann hótaði því að dregið yrði úr fjárstuðningi við Úkraínu ef Shokin yrði ekki rekinn. Biden stærði sig einnig opinberlega af því, nokkrum árum síðar, að hafa fengið ráðamenn í Úkraínu til að reka Shokin.

Það var þó vegna þess að hann þótti ekki berjast nægilega vel gegn spillingu í Úkraínu. Bakhjarlar Úkraínu í Bandaríkjunum, Evrópu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, svo einhverjir séu nefndir, kölluðu allir eftir því að Shokin yrði rekinn. Meira að segja Repúblikanar studdu viðleitni Biden á sínum tíma.

Nokkrir öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins skrifuðu undir bréf sem sent var Petro Poroshenko, þáverandi forseta Úkraínu, árið 2016. Í því bréfi kölluðu þeir eftir „endurbótum“ á embætti ríkissaksóknara Úkraínu. Bréf þetta, sem finna má hér á vef bandaríska þingsins, var sent í febrúar 2016, skömmu áður en þingmenn í Úkraínu kusu að víkja ríkissaksóknaranum úr embætti.

Rob Portman, einn þingmannanna, birti meðfylgjandi tíst árið 2016 þar sem hann sagði Bandaríkin standa með Úkraínumönnum í baráttunni gegn spillingu.

Þetta var á sama tíma og Biden, sem var þá varaforseti Bandaríkjanna, þrýsti á stjórnvöld í Úkraínu um að koma saksóknaranum úr embætti, vegna þess að hann þótti ekki berjast gegn spillingu af nægilega miklum krafti og var jafnvel sjálfur sakaður um spillingu.

Sjá einnig: Repúblikanar vildu einnig láta reka saksóknarann úkraínska

Ríkisstjórnir nokkurra ríkja og forsvarsmenn stofnanna sem aðstoðuðu Úkraínu á þessum tíma með fjárveitingum og öðrum hætti vildu Shokin burt. Biden hafði farið til Úkraínu í desember 2015 og í ræðu á þingi landsins kallaði hann eftir brottrekstri Shokin.

Petro Poroshenko,  fyrrverandi forseti Úkraínu, var nýverið spurður út í málið í viðtali við Fox News. Þá var hann spurður um það að Shokin sjálfur hefði sagt að hann hafi verið rekinn út af því að hann var að rannsaka Burisma.

Poroshenko gaf lítið fyrir þessi ummæli og sagði að Shokin væri galinn. Hann sagði saksóknarann fyrrverandi vera að ljúga og gaf í skyn að Shokin hefði verið spilltur. Þá bað Poroshenko starfsmenn Fox um að nota Shokin ekki til að grafa undan sambandi Úkraínu og Bandaríkjanna.


Tengdar fréttir

For­seta­hundurinn heldur á­fram að bíta fólk

Commander, tveggja ára German Shepherd-hundur Joe Biden Bandaríkjaforseta, beit leynilögreglumann í Hvíta húsinu í Washington D.C. á mánudagskvöld. Þetta er í ellefta sinn sem hundurinn bítur manneskju. 

McCarthy enn í gíslingu uppreisnarmanna

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings er enn lömuð vegna uppreisnar hóps fjar-hægri þingmanna Repúblikanaflokksins. Einungis fimm dagar eru í að stöðva þarf rekstur ríkisins, finnist ekki samkomulag um fjárlagafrumvarp.

McCarthy í basli og þingið lamað

Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, mistókst í gær að koma frumvarpi um fjárveitingar til varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna í gegnum þingið. Hópur öfgafullra þingmanna Repúblikanaflokksins kom í veg fyrir að frumvarpið yrði tekið til umræðu og er útlit fyrir algera lömun á þingi.

Hun­ter Biden á­kærður

Alríkissaksóknarar hafa gefið út ákæru á hendur Hunter Biden, syni Joe Biden Bandaríkjaforseta, þar sem hann er sagður hafa komist ólöglega yfir skotvopn í október árið 2018, eftir að hafa logið til um að neyta ekki né vera háður fíkniefnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×