Innlent

Réðust vopnaðir inn í verslun og ógnuðu starfs­mönnum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Einstaklingarnir voru vopnaðir.
Einstaklingarnir voru vopnaðir. Vísir/Vilhelm

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu réðust nokkrir einstaklingar inn í verslun í umdæminu Kópavogur/Breiðholt í gærkvöldi eða nótt og stálu verðmætum.

Voru þeir vopnaðir og ógnuðu starfsmönnum verslunarinnar.

Engar fleiri upplýsingar er að finna í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar en þess getið að málið sé í rannsókn.

Annara verkefna lögreglu í nótt er ekki getið í yfirlitinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×