Geta gert frábært tímabil fullkomið í kvöld Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. ágúst 2023 13:30 Víkingar eru komnir með annan fótinn upp í Bestu deild kvenna. vísir/hulda margrét Kvennalið Víkings í fótbolta getur gert gott tímabil enn betra þegar það tekur á móti Fylki í Lengjudeildinni í kvöld. Með sigri tryggja Víkingar sér bæði sæti í Bestu deildinni að ári og sigur í Lengjudeildinni.
Víkingar hafa vakið athygli fyrir vaska framgöngu í sumar, ekki síst í Mjólkurbikarnum þar sem liðið fór alla leið og vann keppnina í fyrsta sinn. Víkingur varð jafnframt fyrsta liðið úr næstefstu deild sem verður bikarmeistari. Víkingar hafa einnig verið í góðum gír í Lengjudeildinni og verið á toppi hennar í nær allt sumar. Víkingur er núna með 36 stig á toppi Lengjudeildarinnar, fjórum stigum á undan Fylki og HK sem eru í 2. og 3. sæti. Víkingur mætir einmitt Fylki í Víkinni í kvöld og með sigri tryggja þær rauðu og svörtu sér sæti í Bestu deildinni að ári. Jafnframt eru Víkingar öruggir með að vinna deildina ef þeir bera sigurorð af Árbæingum í kvöld. Þá er komið að stórleik sumarsins Þá er komið að því, við mætum Fylki á morgun sem situr í 2. sæti Lengjudeildarinnar og með sigri á morgun skrifum við söguna þar sem stelpurnar tryggja sér sæti í Bestu deildinni að ári og verða einnig Lengjudeildarmeistarar 2023.Nú þurfum pic.twitter.com/s0hCyDrkGA— Víkingur (@vikingurfc) August 28, 2023 Víkingur hefur leikið í efstu deild kvenna en þá í samstarfi við HK. Félögin slitu samstarfi sínu 2019. Síðan þá hefur Víkingur tekið skref upp á við á hverju tímabili. Liðið endaði í 7. sæti Lengjudeildarinnar 2020, 4. sæti 2021 og 3. sæti í fyrra. Og nú virðist fátt geta komið í veg fyrir að Víkingur leiki í Bestu deildinni 2024. Leikur Víkings og Fylkis á Víkingsvellinum hefst klukkan 19:15.
Lengjudeild kvenna Víkingur Reykjavík Besta deild kvenna Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira