Erlent

Elleman-Jen­sen og Lund Poul­sen hafa stóla­skipti

Atli Ísleifsson skrifar
Jakob Ellemann Jensen hefur verið leiðtogi Venstre frá árinu 2019. Hann var í veikindaleyfi stærstan hluta fyrri hluta ársins en sneri aftur til starfa í sumar.
Jakob Ellemann Jensen hefur verið leiðtogi Venstre frá árinu 2019. Hann var í veikindaleyfi stærstan hluta fyrri hluta ársins en sneri aftur til starfa í sumar. Getty

Jakob Ellemann Jensen, leiðtogi danska stjórnarflokksins Venstre, verður nýr ráðherra efnahagsmála í dönsku ríkisstjórninni og Troels Lund Poulsen, samflokksmaður hans, verður nýr varnarmálaráðherra.

 Þeir Elleman Jensen og Lund Poulsen hafa þar með stólaskipti í ríkisstjórn Mette Frederiksen, en Elleman-Jensen verður þó áfram aðstoðarforsætisráðherra.

Greint var frá þessum hrókeringum í danska forsætisráðuneytinu í morgun. 

Lund Poulsen var starfandi varnarmálaráðherra þann tíma sem Ellemann-Jensen var í veikindaleyfi frá febrúar á þessu ári og fram í júlí. Nokkuð hefur gustað um Elleman-Jensen síðustu vikur eftir að hann baðst fyrr í mánuðinum afsökunar á að hafa veitt þinginu villandi upplýsingar um umdeild vopnakaup danska ríkisins frá ísraelska vopnaframleiðandanum Elbit.

Ellemann-Jensen hefur verið leiðtogi Venstre árið 2019 og varð varnarmálaráðherra þegar Jafnaðarflokkurinn, Venstre og Moderaterne mynduðu saman samsteypustjórn í desember síðastliðinn. Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna, leiðir ríkisstjórnina. 


Tengdar fréttir

Snýr aftur úr veikinda­leyfi í ágúst

Jakob Ellemann-Jensen, varnarmálaráðherra Danmerkur og formaður Venstre, mun snúa aftur úr veikindaleyfi í byrjun ágústmánaðar. Ráðherrann fór í veikindaleyfi fyrir þremur mánuðum síðan og vísaði þar til í álags.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×