Innlent

Bíl­velta á Suður­lands­braut

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Bíllinn er töluvert skemmdur eftir veltuna.
Bíllinn er töluvert skemmdur eftir veltuna. Vísir/Arnar

Bíl­velta varð á Suður­lands­braut á fjórða tímanum í dag. Einn var í bílnum. Sjúkrabíll, lögregla og slökkvilið mættu á vettvang. 

Bílnum var ekið á um­ferðar­skilti og hvolfdi. Hann endaði á fjölförnum hjólastíg við götuna og fór meðal annars yfir biðstöð fyrir hjólreiðafólk við gatnamót Reykjavegar og Suðurlandsbrautar.

Hluti af skilti biðstöðarinnar lá beint fyrir framan framhlutann á bílnum eftir veltuna. Búið er að ná ökumanni bílsins út og hann er kominn í sjúkrabíl. 

Að sögn Jónasar Árnasonar, vakthafandi varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, var ökumaðurinn á fæti eftir slys og útlit fyrir að meiðsl séu ekki alvarleg. 

Ökumaðurinn hefur verið fluttur á slysadeild Landspítalans. Lögregla og slökkvilið hefur nú lokið hreinsun vettvangs slyssins.

Frétt uppfærð kl. 16:30. Starfi viðbragðsaðila á vettvangi er lokið.

Mikill viðbúnaður er á slysstað. Vísir

Slökkvilið og lögregla vinna nú að hreinsun á vettvangi.Vísir/Arnar


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×