Erlent

Járn­brautar­brú hrundi eftir úr­hellið í Noregi

Kjartan Kjartansson skrifar
Brúin hrundi ofan í ánna Lågen við Ringebu í Noregi í dag. Mannslíf voru ekki í hættu þar sem umferð um brúna var stöðvuð vegna flóðanna í síðustu viku.
Brúin hrundi ofan í ánna Lågen við Ringebu í Noregi í dag. Mannslíf voru ekki í hættu þar sem umferð um brúna var stöðvuð vegna flóðanna í síðustu viku. AP/Lars Skjeggestad Kleven/NTB Scanpix

Miðhluti Randklev-járnbrautarbrúarinnar yfir ána Lågen við Ringebu í suðaustanverðum Noregi hrundi í dag í kjölfar vatnavaxtana í landinu. Umferð um brúna var stöðvuð af ótta við að svona færi í síðustu viku.

BaneNOR, ríkislestarfélag Noregs, sagði að vatnselgurinn hefði skemmst undirstöðurnar undir miðhluta brúarinnar. Brúin er rúmlega 172 metra löng og er í þremur hlutum. Hún er úr stáli og var byggð árið 1957. Sérfræðingar BaneNOR kanna nú skemmdirnar, að sögn AP-fréttastofunnar.

Stormurinn Hans bar með gríðarlega úrkomu til Skandinavíu og Eystrasaltsríkjanna í síðustu viku. Þúsundir manna þurftu að yfirgefa heimili sín í suðaustanverðum Noregi vegna vatnavaxtanna. Ekki átti að byrja að sjatna í flóðunum fyrr en í fyrsta lagi í dag.

Stífla við vatnsaflsvirkjun í ánni Glommu brast undan vatnsþrýstingnum í síðustu viku eftir sjálfvirkar lokur sem áttu að stýra flæði vatns brugðust. Þá fór lest út af sporinu í Svíþjóð þegar flóðvatn gróf undan teinunum.

Verdens gang hefur eftir Eivindi Bjurstrøm frá BaneNOR að það muni taka langan tíma að koma brúnni aftur í gagnið. Fyrirtækið eigi bráðabirgðabrýr til reiðu og skoðað verði hvort ástæða sé til þess að taka einhverjar þeirra í notkun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×