Fréttir

Inga Dóra hættir í græn­lenskum stjórn­málum

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Inga bjó á Íslandi fyrstu tólf árin og á íslenskan föður. 
Inga bjó á Íslandi fyrstu tólf árin og á íslenskan föður.  Sermersooq

Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen, formaður Siumut-flokksins í Nuuk, hefur ákveðið að hætta í stjórnmálum að sinni eftir þrjú ár í embættinu. 

Inga greindi frá þessu á Facebook síðu sinni á dögunum. Þar segir hún að árin í stjórnmálum hafi verið lærdómsrík en nú sé tími til kominn til að verja meri tíma með fjölskyldunni og snúa sér að nýjum verkefnum. Þann 1. október næstkomandi muni hún taka við stöðu forstöðumanns sjálfbærni og samskipta hjá flugfélaginu Air Greenland. 

Inga var kjörinn formaður jafnaðarmannaflokksins Siumut í höfuðstaðnum Nuuk árið 2020. Frá árinu 2021 hefur hún starfað sem skipulagsfulltrúi flokksins og setið í framkvæmdastjórn hans. 

Áður starfaði Inga sem framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins. Inga er hálfíslensk en faðir hennar er Guðmundur Þorsteinsson, Gujo. Móðir hennar er Benedikte Thorsteinsson, fyrrverandi ráðherra Grænlands. 


Tengdar fréttir

Freistar þess að koma Kim Kielsen frá völdum

Formaður Siumut-flokksins á Grænlandi, Erik Jensen, sem felldi Kim Kielsen úr formannsstólnum á flokksþingi í lok nóvember, freistar þess núna að ná einnig af honum forsætisráðherrastólnum. Grænlenska ríkisútvarpið KNR skýrir frá því að Erik haldi í dag frá heimabæ sínum, Sisimiut, til höfuðstaðarins Nuuk til viðræðna við flokksfélaga sína og samstarfsflokka um að hann taki jafnframt við forsæti landsstjórnar Grænlands.

Segir lykkju­málið á Græn­landi glæp­sam­legt

Ritari grænlensks stjórnmálaflokks segir reiði og sorg hafa gripið um sig í samfélaginu eftir að í ljós kom að dönsk stjórnvöld hefðu komið lykkjunni fyrir í þúsundum ungra kvenna í landinu. Íslenskur læknir segir málið glæpsamlegt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×