Innlent

Deilur um fíkni­efni upp­hafið að hrotta­legu mann­drápi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fólkið hittist á Íslenska rokkbarnum á horni Hólshrauns og Bæjarhrauns.
Fólkið hittist á Íslenska rokkbarnum á horni Hólshrauns og Bæjarhrauns. Vísir/Vilhelm

Átök á milli þriggja 17 til 19 ára pilta við 27 ára pólskan karlmann sem lauk með manndrápi í Hafnarfirði í apríl má rekja til deilna sem tengdust fíkniefnum. Fólkið þekktist ekkert en því hafði verið vísað af Íslenska rokkbarnum fyrir neyslu fíkniefna fyrir opnum tjöldum. Aðalmeðferð í málinu er fyrirhuguð í október.

Það var á tíunda tímanum föstudagsmorguninn 21. apríl sem tilkynning barst fjölmiðlum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Fjórir eru í haldi Lögreglunnar höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti karlmanns á þrítugsaldri í Hafnarfirði í gær. Upphaf málsins var að tilkynning barst lögreglu á tólfta tímanum í gærkvöld um átök á bifreiðastæði við verslunina Fjarðarkaup á Hólshrauni. Lögreglan hélt þegar á vettvang og fann þolandann, sem var fluttur á slysadeild og úrskurðaður þar látinn skömmu síðar. Í kjölfarið voru fjórir aðilar handteknir í tengslum við málið.

Manndrápið vakti eðli máls samkvæmt óhug í íslensku samfélagi. Ekki minnkaði sá óhugur þegar í ljós kom að meintir gerendur væru Íslendingar á menntaskólaaldri. Fórnarlambið var 27 ára pólskur karlmaður og ljóst að engin tengsl væru á milli mannanna. Fólk spurði sig og spyr enn, hvernig getur svona lagað gerst?

Neysla fyrir opnum tjöldum

Farið var fram á gæsluvarðhald yfir öllum fjórum vegna málsins. Sá elsti, sem virðist af myndbandsupptöku og ákæru hafa haft sig mest í frammi, hefur setið í gæsluvarðhaldið á Hólmsheiði síðan. Sautján ára piltarnir hafa verið vistaðir á Stuðlum en stúlkan var látin laus þremur dögum eftir manndrápið.

Samkvæmt heimildum fréttastofu voru íslensku ungmennin gestkomandi á Íslenska rokkbarnum umrætt fimmtudagskvöld í apríl. Þar var pólski karlmaðurinn sömuleiðis á ferð. Munu þau hafa sameinast í neyslu fíkniefna við borð á staðnum án þess að láta lítið fara fyrir því. Það féll í grýttan jarðveg hjá starfsfólki staðarins sem vísaði fólkinu á dyr.

Íslenski rokkbarinn stendur á horni Bæjarhrauns og Hólshrauns. Síðari gatan skilur að barinn og stórt bílastæði við verslun Fjarðarkaupa. Þegar út var komið mun samkvæmt heimildum fréttastofu hafa komið upp ósætti. Mun það hafa snúist um að ungmennin hafi krafið pólska manninn um greiðslu á þeim efnum sem hann neytti með þeim inni á barnum. Í hönd fóru slagsmál sem sautján ára stúlkan tók að nokkru leyti upp á síma sinn. Um er að ræða lykilsönnunargagn í málinu.

Sex stungusár

Mínútulangt myndskeið af árásinni, sem stúlkan tók á símann sinn, hefur verið í nokkurri dreifingu á samfélagsmiðlum undanfarna daga.

Í myndskeiðinu sést hvernig sá elsti í hópnum fellir pólska manninn í jörðina og virðist lemja hann nokkrum sinnum í búkinn. Þegar maðurinn nær honum af sér segir hann „ég stakk hann þrisvar!“

Erfitt er að greina hníf í myndbandinu en samkvæmt ákæru lögreglu voru tíu för eftir eggvopn á úlpu mannsins.

Piltarnir tveir hvöttu félaga sinn áfram og spörkuðu í manninn þar sem hann lá. Þegar maðurinn nær að standa upp spyr annar piltanna hann í hæðnistón hvernig hann sé í hálsinum. Í ákæru er honum gefið að sök að hafa hótað að stinga hann í hálsinn.

Pólski karlmaðurinn stóð í tvígang upp eftir atlögu piltanna þriggja og reyndi áfram að takast á við þá. Þar varð hann undir en hann hlaut alls sex stungusár á líkama sínum. Eitt þeirra náði inn í hjarta og skaðaði yfirborðsbláaæð og kransæð á aftanverðu hjartanu. Hann lést stuttu síðar.

Átta ára hámarksrefsing fyrir yngri piltana

Piltarnir þrír eru ákærðir fyrir brot á 211. grein almennra hegningarlaga sem fjallar um manndráp. Þar segir:

„Hver, sem sviptir annan mann lífi, skal sæta fangelsi, ekki skemur en 5 ár, eða ævilangt.“

Þyngsta mögulega refsing fyrir piltana sem eru undir lögaldri er átta ára fangelsi.

Stúlkan er ákærð fyrir brot gegn lífi og líkama með því að hafa ekki komið pólska karlmanninum til hjálpar þar sem hann var staddur í lífsháska. Hún hafi ekki beðið ungu mennina um að hætta eða vakið athygli viðbragðsaðila sem óku hjá. Þá hafi hún ekki hringt eftir aðstoð lögreglu heldur staðið hjá og myndað atlöguna. Svo hafi hún hlaupið á brott með þeim uns lögregla hafði uppi á þeim skömmu síðar. Hámarksrefsing við slíku broti er tveggja ára fangelsi.

Aðdragandi árásarinnar hefur verið nokkuð á huldu og ekki víst að ljós mynd fáist fyrr en dómur í málinu verður birtur nokkrum vikum eftir að aðalmeðferð lýkur. Dómari í málinu hefur ákveðið að þinghald verði lokað að kröfu verjenda ákærðu í málinu. Fjölmiðlar munu ekki geta fylgst með því sem fram kemur í dómssal. Aðilum málsins, verjendum og öðrum sem að málinu koma er meinað að tjá sig um það sem fram fer.

Það verður því fyrst eftir birtingu dómsins, sem telja má líklegt að dómstóllinn hreinsi að nokkru leyti, að almenningur fái skýrari mynd á hörmungunum í Hafnarfirði að kvöldi 20. apríl.


Tengdar fréttir

Grimmdar­legar lýsingar á mann­drápinu í Hafnar­firði

Þrír ungir menn sem sæta ákæru fyrir að hafa ráðið pólskum karlmanni bana í apríl eru sakaðir um grimmdarlega árás sem leiddi til dauða. Sá elsti er sakaður um að hafa stungið hann endurtekið þar sem hann lá varnarlaus eftir að hafa náð að reisa sig við í tvígang, særður eftir árásina. Upptaka vinkonu mannanna af árásinni er lykilsönnunargagn í málinu. Hún er ákærð fyrir að hafa ekki komið til hjálpar.

Drengirnir á­kærðir fyrir mann­dráp og stúlkan brot á hjálpar­skyldu

Þrír drengir á aldrinum 17 til 19 ára hafa verið ákærðir fyrir að hafa orðið pólskum karlmanni að bana á bílastæðinu við Fjarðarkaup í apríl. Sautján ára stúlka hefur verið ákærð fyrir brot á hjálparskyldu. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson saksóknari hjá héraðssaksóknara við fréttastofu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×