Veðsetningarhlutfallið 27 prósent og aldrei lægra í aldarfjórðung Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. júlí 2023 07:01 Íbúar á landinu gætu orðið 400.000 fyrir árslok. Vísir/Vilhelm Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,1 prósent í júní. Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins nam lækkunin um 2,1 prósent og annars staðar á landsbyggðinni um 0,5 prósent.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar en þar segir einnig að síðustu tólf mánuði hafi raunverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 5,7 prósent miðað við vísitölu neysluverðs. „Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins mælist nú raunverðslækkun á síðustu 12 mánuðum í fyrsta skipti síðan 2014. Annars staðar á landsbyggðinni hefur raunverð hækkað síðustu 12 mánuði en þar var hækkunin nokkuð minni á árunum 2020- 2022 en á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess,“ segir í skýrslunni. Útgefnir kaupsamningar um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu voru 321 og hafa ekki verið færri frá 2011 ef leiðrétt er fyrir árstíðarbundnum sveiflum. Þá virðist hafa hægt meira á sölu nýrra íbúða en eldri en hlutfall þeirra var 9,9 prósent í maí miðað við þriggja mánaða meðaltal, samanborið við 15,5 prósent í maí í fyrra og 19,5 prósent í maí 2021. „Samhliða hækkandi fasteignaverði hefur eiginfjárstaða heimila batnað og eru íbúðalán heimila nú um 27% af verðmæti fasteigna í þeirra eigu. Er þetta lægsta veðsetningarhlutfall sem mælst hefur í þann aldarfjórðung sem tölurnar ná til,“ segir í skýrslunni. Þá segir að ef fer sem horfir gætu íbúar landsins orðið 400.000 fyrir árslok.
Fasteignamarkaður Neytendur Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Fleiri fréttir Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Sjá meira