Erlent

Hvíta húsið rýmt vegna efnis sem reyndist kókaín

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Efnið fannst við reglubundið eftirlit.
Efnið fannst við reglubundið eftirlit. Getty

Hvíta húsið var rýmt um tíma í gærkvöldi eftir að hvítt duft fannst við reglubundið eftirlit. Greining leiddi í ljós að um var að ræða kókaín og er málið nú í rannsókn.

Joe Biden Bandaríkjaforseti og fjölskylda hans voru í Camp David þegar duftið fannst.

Erlendum miðlum ber ekki saman um hvar kókaínið fannst en það hefur ýmist verið sagt hafa fundist á „vinnusvæði“, í geymslu, á bókasafni og í rými sem var aðgengilegt gestum.

Samkvæmt Guardian mun þetta ekki vera í fyrsta sinn sem fíkniefni rata í Hvíta húsið en rapparinn Snoop Dogg ku hafa greint frá því að hafa reykt marjúana á baðherbergi í byggingunni árið 2013. 

Þá hefur tónlistarmaðurinn Willie Nelson einnig sagst hafa reykt jónu í Hvíta húsinu.

Breski leikarinn Erkan Mustafa er sömuleiðis sagður hafa játað að hafa reykt marjúana og notað kókaín í húsinu í forsetatíð Reagan og þá hefur Grace Slick, söngkona Jefferson Airplane, sagst hafa gert tilraun til að lauma LSD í te Nixon. 

Henni hefði þótt „Tricky Dick“ þurft á því að halda.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×