Sport

Anníe Mist ætlar sér að brjóta múra í ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir með dóttur sinni Freyju Mist.
Anníe Mist Þórisdóttir með dóttur sinni Freyju Mist. Instagram/@anniethorisdottir

Anníe Mist Þórisdóttir er komin inn á heimsleikana í tólfta sinn sem einstaklingur og er ein af þeim keppendum sem CrossFit samtökin nota til að auglýsa mótið í Madison í byrjun ágúst.

Anníe er fyrir löngu orðin goðsögn í íþróttinni enda fyrsta konan til að vinna tvo heimsmeistaratitla. Það vita allir hver Anníe frá Íslandi er. Hún á líka mikinn þátt í fjölda öflugra keppenda frá Íslandi sem höfðu í henni frábæra fyrirmynd þegar þau byrjuðu að keppa í íþróttinni á sínum tíma.

Anníe keppti fyrst á heimsleikunum árið 2009 og er því enn að keppa við þær bestu á heimsleikum fjórtán árum síðar.

CrossFit samtökin helga Anníe færslu sína í gær þar sem farið er aðeins yfir magnaðan feril hennar. Það er byrjað að byggja upp stemmningu fyrir heimsleikana sem fara fram frá 1. til 6. ágúst næstkomandi.

Anníe hefur komið til baka á heimsleikana eftir hrikaleg meiðsli, hún hefur komið til baka innan við ári eftir að hafa eignast barn og hún er nú að koma til baka eftir að hafa skipt yfir í liðakeppnina í eitt ár.

Ef það er eitthvað sem Anníe virðist elska meira en flestir og það er það áskoranir en hún hefur sigrast á mörgum slíkum á ferlinum.

Í færslu CrossFit er rifjað upp viðtal við Anníe sem var tekið eftir að hún tryggði sig inn á heimsleikana fyrr í sumar.

Þar kemur fram að hin 33 ára gamla Anníe ætlar ekki aðeins að vinna mótherja sína heldur einnig leggja aldursfordómana að velli. Anníe mun halda upp á 34 ára afmælið sitt stuttu eftir heimsleikana í Madison.

„Ég er að reyna að brjóta múrinn sem er byggður á því að við eigum að hætta eftir ákveðin tíma,“ sagði Anníe Mist.

„Við ákveðnum það sjálf hvenær við hættum að keppa,“ sagði Anníe en það má sjá færsluna hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×