Par vildi ekki kannast við að eiga mikið magn fíkniefna Árni Sæberg skrifar 19. júní 2023 14:52 Héraðsdómur Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm Par var á dögunum dæmt til fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, fyrir að hafa haft mikið magn fíkniefna í vörslum sínum á heimili þeirra. Auk fíkniefna fannst hálfsjálfvirk haglabyssa og 1,5 milljón króna í reiðufé. Konan þarf að þola upptöku fjárins, þrátt fyrir segjast hafa aflað þess með barnapössun og kökusölu.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að á heimili fólksins hafi í júlí árið 2020 fundist 658,89 grömm af amfetamíni, 79,71 gramm og 294 töflur af ecstasy, 56,02 grömm af hassi, 16,25 grömm af kannabislaufi, 88,40 grömm af kókaíni, 110,95 grömm af maríhúana og 134 stykki af LSD, en fíkniefnin hafi verið ætluð til söludreifingar í ágóðaskyni hér á landi. Karlmaðurinn var einnig ákærður fyrir vopnalagabrot og brot á lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum, með því að hafa haft í fórum sínum hálfsjálfvirka haglabyssu án skotvopnaleyfis, bitvopn með fjórtán sentímetra löngu hnífsblaði og anabólíska stera. Konan var ákærð fyrir frekari fíkniefnabrot með því að hafa haft í fórum sínum fimm töflur af Viagra, 48 belgi af Medikinet Cr, 116 töflur af Alprazolam Krka og 20 töflur af Tradolan. Þess var krafist að fólkið skyldi þola upptöku allra fíkniefnanna, vopnanna og konan um 1,5 milljónar króna í reiðufé. Sögðust vera að geyma efnin Við yfirheyrslur hjá lögreglu gekkst fólkið við að hafa haft í vörslum sínum þau fíkniefni, stera og lyf sem í ákæru greinir. Þau kváðust hins vegar ekki eiga efnin. Efnin hefðu þau geymt fyrir ónafngreinda menn gegn greiðslu. Konan kvaðst eiga þá peninga sem haldlagðir höfðu verið. Þá kvaðst hún eiga lyf og svefnlyf, sem hún kvaðst hafa fengið í Póllandi. Karlmaðurinn staðfesti að konan ætti þá peninga sem lagt var hald á, en hann væri eigandi stera og einhverra lyfja. Hann væri jafnframt eigandi byssu sem hald var lagt á, sem og hnífs sem fannst í bifreið hans. Man lítið eftir deginum Karlamaðurinn sagði fyrir dómi að hann hefði verið í mikilli neyslu sumarið 2020, þegar leit var gerð á heimili parsins, og að hann myndi lítið eftir deginum. Hann kvaðst ekki viss um hvernig umrædd fíkniefni hefðu borist inn á heimili þeirra. Hann kvaðst þó hafa vitað af fíkniefnunum líkt og hann hefði greint frá hjá lögreglu. Fyrir dómi færðist hann undan því að svara spurningu um það hvers vegna fíkniefnin hefðu verið á heimilinu en afneitaði því með öllu að hafa pakkað þeim í sölueiningar. Sérstaklega aðspurður kvað hann það geta verið að menn hefðu komið með fíkniefnin inn á heimilið og að þau hefðu verið þar til geymslu. Hjá lögreglu hafði maðurinn greint frá því að hann hefði verið að geyma fíkniefnin fyrir aðila sem hann vildi ekki nefna af ótta við hefndir. Þá kvað hann hjá lögreglu að ákærðu hefðu séð um að pakka fíkniefnunum í sölupakkningar. Fyrir dómi kvaðst hann hins vegar ekkert vita um það. Hann hefði verið í bullandi neyslu á þessum tíma og getað sagt hvað sem var. Bakaði kökur og seldi Maðurinn kvaðst fyrir dómi ekki vita hvernig þeir peningar hefðu verið til komnir, sem hald var lagt á, en þeir hafi verið eign konunnar. Hann kvaðst hafa vitað að hún hefði verið að safna, en hún hefði meðal annars verið að baka kökur heima og selja, meðal annars í gegnum Facebook. Þá hafi hún verið að passa börn. Konan sagði fyrir dómi að hún hefði tekið út hluta launa úr banka og lagt fyrir, auk þess sem foreldrar hennar hefðu látið hana hafa pening. Þá hefði hún passað börn og bakað kökur og selt á Facebook eða í gegnum vini. Umræddir fjármunir væru meira en fimm ára uppsafnaður sparnaður hennar, en hana hefði langað til að opna fyrirtæki og ætlað að nota þessa fjármuni til þess. Ekki væri um afrakstur fíkniefnasölu að ræða. Hún hefði ekki selt eða dreift fíkniefnum. Játuðu brot sín skýlaust Fólkið játaði öll brot sín skýlaust fyrir dómi og sannað var með játningu þess og öðrum gögnum að það hefði gerst sekt um brot sem þau voru ákærð fyrir. Í dóminum er farið yfir brotaferil mannsins, sem er nokkuð þéttur. Hann hlaut til að mynda skilorðsbundinn dóm árið 2019 og rauf skilorð þess dóms með framangreindum brotum. Þá hlaut hann tvo dóma árið 2022. Refsing í þessu máli dæmdist sem hegningarauki við þá dóma. Konan hefur hins vegar ekki hlotið refsidóm hér á landi. Með vísan til brotaferla fólksins, játningar þeirra og drætti á meðferð málsins var karlmaðurinn dæmdur til 23 mánaða fangelsisvistar og konan fimmtán mánaða. Refsing þeirra beggja er skilorðsbundin. Þá samþykkti fólkið að þola upptöku alls nema reiðufjárins en konan var dæmd til þess að þola upptöku þess. Fólkinu var einnig gert að greiða allan málskostnað, alls um eina milljón króna.
Fíkniefnabrot Dómsmál Reykjavík Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira