Lífið

Svona verður Sjó­manna­dagurinn haldinn há­tíð­legur um land allt

Atli Ísleifsson skrifar
Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur fyrsta sunnudag í júní á hverju ári, nema þá ef hvítasunnu ber upp á þann dag og er hann þá næsti sunnudag þar á eftir.
Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur fyrsta sunnudag í júní á hverju ári, nema þá ef hvítasunnu ber upp á þann dag og er hann þá næsti sunnudag þar á eftir. Sjómannadagurinn

Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á sunnudaginn og verða af því tilefni mikil dagskrá víða um land og sums staðar alla helgina.

Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur fyrsta sunnudag í júní á hverju ári, nema þá ef hvítasunnu ber upp á þann dag og er hann þá næsti sunnudag þar á eftir.

Reykjavík

Á Granda í Reykjavík verður mikið um að vera þar sem boðið verður upp á ýmsa skemmtun fyrir yngstu aldurshópana, auk þess að fjölmargir tónlistarmenn og skemmtikraftar troða upp á stóra sviðinu við Brim og litla sviðinu á Grandagarði.


Bolungarvík:

Föstudagur 2. júni:

  • 17:00 Dorgveiðikeppni fyrir krakka á öllum aldri á Brimbrjótum, verðlaun í boði fyrir stærsta fiskinn, minnsta fiskinn og flestu fiskana.
  • 18:30 Sjósund hittumst á sandinum ef veður leyfir. Katrín Pálsdóttir mun taka á móti ykkur og sjá um að leiðbeina þeim sem vilja prófa. Heitur drykkur í boði sem yljay kroppinn í lok sunds. Sjálfsábyrgð í sjónum.

Laugardagur 3. júni:

  • 10:00 Lagt á Djúpið hátíðarsigling frá Bolungarvíkurhöfn
  • 12:00 Gilitrutt leiksýning Lottu við félagsheimilið
  • 13:30 Sjómannadagskrá með kappróðri og skemmtilegum leikjum fyrir alla í boði Björgunarsveitarinnar Ernis
  • 13:30 Listasýning barnanna á hafnarsvæðinu
  • 13:30 Andlitsmálning
  • 20:00 Hátíðarkvöldverður í félagsheimilinu
  • 23:00 Sjómannadagsball í félagsheimilinu

Sunnudagur 4. júni:

  • 13:30 Hópganga frá Brimbrjótnum að Hólskirkju
  • 14:00 Hátíðarguðsþjónusta í Hólskirkju
  • 14:50 Blómsveigar lagðir að minnismerkjum sjómanna
  • 15:00 Kaffisala kvennadeildar í Slysavarnarhúsinu

Hafnarfjörður

Hátíðardagskrá

  • Kl. 8:00 Fánar dregnir að húni á hátíðarsvæði við höfnina
  • Kl. 10:00 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur við Hrafnistu
  • Kl. 10:30 Blómsveigur lagður að minnisvarða við Víðistaðakirkju um horfna sjómenn
  • Kl. 11:00 Sjómannamessa í Víðistaðakirkju

Skemmtidagskrá við Flensborgarhöfn kl. 13-17

  • Skemmtisigling í boði Hafnarfarðarhafnar – lagt af stað á hálftíma fresti frá Óseyrarbryggju
  • Fiskasýning Hafrannsóknastofnunar á Háabakka. Sýnishorn af fiskum og hryggleysingjum. Allt frá algengum nytjafiskum eins og þorski og ýsu til sjaldséðari tegunda.
  • Sterkasti maður á Íslandi 2023! Aflraunamenn etja kappi við hrikalegar aflraunir og við hverja aðra á hátíðarsvæðinu við höfnina. Kl 13 Trukkadráttur. Kl 14 Bryggjupolli. Kl 15 Álkubba pressa. Kl 16 Blönduð grein: Bóndaganga og Uxaganga.
  • Kaffisala Slysavarnardeildar Hraunprýði og unglingadeildarinnar Björgúlfs við Flensborgarhöfn. Björgunarsveit Hafnarfjarðar setur upp þrautabraut í sjó, rennibraut, fluglínutæki og koddaslag.
  • Opið hús hjá Siglingaklúbbnum Þyt. Kajakar og árabátar tiltækir og búningsaðstaða fyrir þá sem blotna.
  • Opið hús á fyrstu hæð Hafrannsóknastofnunar og ljósmyndasýning frá sögu Sjómannadagsins þar sem sýndar verða myndir af öllum sem heiðraðir hafa verið á Sjómannadaginn í Hafnarfirði frá upphafi og þeim sem hafa lagt blómsveig, ásamt nöfnum þeirra.
  • Kl. 13 DAS bandið leikur
  • Kl. 13-14 Kappróðrarkeppni
  • Kl. 13-14 Tufti og tröllabörnin hans verða á ferð um hafnarsvæðið
  • Kl. 13:30 Snorri Bjarnvin sýnir listflug yfir Hafnarfjarðarhöfn á 36 ára gamalli rúmenskri 360 hestafla Yak-52 flugvél
  • Kl. 13:30 Lúðrasveit Hafnarfjarðar marserar um hátíðarsvæðið
  • Kl. 14-16 Hafmeyjuprinsessa og sjóræningi verða á ferð um hátíðarsvæðið og heilsa uppá gesti
  • Kl. 14 Setning og heiðrun sjómanna
  • Kl. 14:20 Ávarp og verðlaunaafhending í kappróðri
  • Kl. 14:30 Björgvin Franz Gíslason og Ásgeir Páll
  • Kl. 15:00 Bestu lög barnanna: Sylvía Erla og Árni Beinteinn syngja og dansa
  • Kl. 15:30 Söng- og leikhópurinn Tónafljóð flytja ævintýralega tónlistarveislu
  • Kl. 16:00 Mæja jarðaber og Gedda gulrót flytja lögin úr Ávaxtakörfunni
  • Björgunarsýning þyrlu Landhelgisgæslunnar og Björgunarsveitar Hafnarfjarðar
  • Kynnar eru Björgvin Franz Gíslason og Ásgeir Páll.

Opnar vinnustofur listamanna, verslanir og veitingastaðir

  • Kl. 13-16 Kaffihlaðborð Kænunnar á sínum stað með brauðtertum og tilheyrandi og sjávarréttasúpa í boði hússins
  • Kl. 13-17 Opið hús í Íshúsi Hafnarfjarðar, Strandgötu 90. Starfsemi Íshúss Hafnarfjarðar samanstendur af 30 verkstæðum og vinnustofum einyrkja og minni fyrirtækja í skapandi greinum. Flóran er afar fjölbreytt og meðal annars er í húsinu stunduð keramik hönnun, myndlist, vöruhönnun, ritlist, tréskipasmíði og gullsmíði.
  • Kl. 13-17 Opið hús í Gára handverk. Fallegir handmótaðir leirmunir átta leirlistakvenna, Fornubúðum 8.
  • Opið í Ramba sem er verslun með sérvaldar hágæða hönnunar- og heimilisvörur, Fornubúðum 10.
  • Opið í SIGN þar sem fallegir skartgripir eru hannaðir og smíðaðir, Fornubúðum 12.
  • kl. 13-16 Opið hús í SVART HÖNNUNARSTÚDÍÓ, Fornubúðum 12. Print, teikningar, málverk og fleira til sölu.

Byggðasafn Hafnarfjarðar

  • Ljósmyndasýning á Strandstígnum.
  • Pakkhúsið, Vesturgata 6, opið 11:00 – 17:00. Þar er meðal annars sýningin „Þannig var…“ þar sem saga sjávarþorpsins Hafnarfjarðar er rakin frá landnámi til okkar daga.
  • Bookless bungalow, Vesturgata 32, opið 11:00 – 17:00. Sýning um tímabil erlendu útgerðanna í Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar á heimili þeirra Booklessbræðra.
  • Siggubær, Kirkjuvegur 10, opið 11:00 – 17:00. Bærinn er varðveittur sem sýnishorn af heimili sjómanna í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar, þar sem hægt er að upplifa og kynnast því hvernig alþýðufólk í bænum bjó á þeim tíma.

Sjóarinn síkáti í Grindavík

Föstudagur 2. júní

  • 11:00-22:00 KVIKAN OPIN. Í Kvikunni er upplýsingamiðstöð Sjóarans síkáta, markaðstorg, leiksvæði fyrir yngstu börnin, vöfflusala á vegum UMFG og sýningin „Saltfiskur í sögu þjóðar“ á efri hæð hússins.
  • 14:00-16:00 FROÐURENNIBRAUT Í SLEÐABREKKUNNI. Sett verður upp froðurennibraut í brekkunni ofan við slökkvistöðina fyrir unglinga á öllum aldri.
  • 16:00-18:30 GRINDAVÍK SÍÐDEGIS. Bylgjan verður í beinni útsendingu frá Grindavík með sinn vinsælasta útvarpsþátt.
  • 18:00-19:00 FISKISÚPUKVÖLD NETTÓ VIÐ ÍÞRÓTTAHÚSIÐ. Nettó býður upp á fiskisúpu við íþróttamannvirkin á meðan birgðir endast áður en gengið verður að hátíðarsvæðinu. Börnin fá að snúa lukkuhjóli Nettó og Diskótekið Dísa sér um tónlistina! Mælt er með því að mæta tímanlega.
  • 19:00 ÁFRAM GRINDAVÍKURGANGAN. Litaskrúðganga frá íþróttahúsinu að Húllinu, hátíðarsvæðinu neðan við Kvikuna. Íbúar eru hvattir til að mæta í litríkum klæðnaði, t.d. gulu og/eða bláu. Áfram Grindavík!
  • 19:30-22:00 BRYGGJUTÓNLEIKAR Í HÚLLINU. Grindavíkurbær býður íbúum upp á stórtónleika í Húllinu þar sem fram koma Vinir Ragga Bjarna, KK, Klara Elias, Daniil og FLOTT.
  • 22:00 MAGNÚS KJARTAN Á SJÓMANNASTOFUNNI VÖR. Magnús Kjartan Eyjólfsson, söngvari og gítarleikari í Stuðlabandinu sér til þess að enginn fari heim að loknu bryggjuballi.
  • 22:00 SJÓMANNAPARTÝ MEÐ INGÓ Á FISH HOUSE. Ingó og félagar slá upp alvöru sjómannapartýi í Gígnum á Fish House. Forsala á tix.is. Hægt verður að kaupa miða í hurð.

Laugardagur 3. júní

  • 10:00 SJÓARA SÍKÁTA MÓTIÐ. Golfklúbbur Grindavíkur stendur fyrir opnu texasmóti á Húsatóftavelli. Skráning fer fram á Golfbox. Í fyrra komust færri að en vildu.
  • 11:00-17:00 KVIKAN OPIN. Í Kvikunni er upplýsingamiðstöð Sjóarans síkáta, markaðstorg, leiksvæði fyrir yngstu börnin, vöfflusala á vegum UMFG og sýningin „Saltfiskur í sögu þjóðar“ á efri hæð hússins.
  • 11:30 SKEMMTISIGLING. Sigling fyrir alla fjölskylduna frá Miðgarði. Vinsamlegast mætið tímanlega.
  • 13:00-16:00 ANDLITSMÁLUN. Andlitsmálun fyrir öll börn í Kvikunni.
  • 13:00-17:00 TÍVOLÍ Á HAFNARSVÆÐINU. Frítt í öll leiktæki nema fallturninn í samvinnu við Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Verkalýðsfélag Grindavíkur.
  • 14:00 SJÓPYLSA Í GRINDAVÍKURHÖFN. Sjópylsa á ferðinni í Grindavíkurhöfn fyrir börn og aðra ofurhuga.
  • 13:30-14:00 FURÐUFÓTBOLTI. Óhefðbundinn knattspyrnuleikur með undarlegum leikreglum við Kvikuna þar sem sjómenn og landkrabbar eigast við.
  • 14:00 -16:00 SKEMMTIDAGSKRÁ Á HÁTÍÐARSVIÐI. Skemmtidagskrá á hátíðarsviðinu í Húllinu. 14:00 Bestu lög barnanna 14:30 Gunni og Felix 15:00 Team Danskompaní 15:20 Dregið í hurðaleiknum 15:30 BMX brós
  • 16:00-19:00 GÖTUBOLTAMÓT UNGMENNARÁÐS. Ungmennaráð Grindavíkurbæjar stendur fyrir götuboltamóti við Kvikuna fyrir ungmenni, 16 ára og eldri. Skráning og nánari upplýsingar á grindavik.is.
  • 16:00-18:00 KRAKKAKEYRSLA GRINDJÁNA. Félagar í bifhjólaklúbbnum Grindjánum leyfa börnum að sitja aftan á hjólunum og fara hring frá Fiskmarkaðnum.
  • 15:00-18:00 SJÓMANNALÖGIN Á BRYGGJUNNI. Vísis-systkinin syngja gömlu góðu sjómannalögin ásamt hljómsveit á veitingahúsinu Bryggjunni. Frítt inn á meðan húsrúm leyfir.
  • 00:00 SJÓMANNABALL Í ÍÞRÓTTAHÚSINU. Alvöru sjómannaball í íþróttahúsinu. Fram koma Friðrik Dór, Jón Jónsson, Daniil og Herra Hnetusmjör. Miðaverð 4.500 kr. í forsölu og 5.500 kr. í hurð.

Sunnudagur 4. júní

  • 8:00 FÁNAR DREGNIR AÐ HÚNI. Fánar dregnir að húni og bæjarbúar hvattir til að flagga í tilefni Sjómannadagsins.
  • 11:00-17:00 KVIKAN OPIN. Í Kvikunni er upplýsingamiðstöð Sjóarans síkáta, markaðstorg, leiksvæði fyrir yngstu börnin, vöfflusala á vegum UMFG og sýningin „Saltfiskur í sögu þjóðar“ á efri hæð hússins.
  • 12:30 SJÓMANNADAGSMESSA Í GRINDAVÍKURKIRKJU. Sr. Elínborg Gísladóttir þjónar fyrir altari. Kór Grindavíkurkirkju leiðir söng undir stjórn Kristjáns Hrannars organista. Gissur Páll Gissurarson syngur einsöng. Ræðumaður verður Einar Hannes Harðarson. Að lokinni messu fer fram heiðrun sjómanna í kirkjunni. Að heiðrun lokinni verður gengið að minnisvarðanum Von og lagður blómsveigur til minningar um þá sjómenn sem hafa drukknað. Grindavíkurdætur, undir stjórn Bertu Drafnar Ómarsdóttur, syngja við minnisvarðann.
  • 13:00-17:00 TÍVOLÍ Á HAFNARSVÆÐINU. Frítt í öll leiktæki nema fallturninn í samvinnu við Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Verkalýðsfélag Grindavíkur.
  • 13:00-16:00 ANDLITSMÁLUN. Andlitsmálun fyrir öll börn í Kvikunni. 13:00-17:00 VELTIBÍLLINN Hinn sívinsæli veltibíll verður fyrir utan Kvikuna.
  • 13:00-17:00 FISKABÚR Á BRYGGJUKANTINUM. Lifandi sjávardýr í fiskabúrum á bryggjukantinum.
  • 14:00-17:00 HÁTÍÐAR- OG SKEMMTIDAGSKRÁ Á HÁTÍÐARSVIÐI. Hátíðarhöld í tilefni sjómannadagsins og skemmtidagskrá á hátíðarsviðinu í Húllinu.
  • 14:00 Hátíðarræða – Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar
  • 14:20 Kynning á heiðrunum í tilefni af sjómannadeginum
  • 14:30 Formleg afhending á nýsmíðuðum áttæring
  • 14:40 Grindavíkurdætur
  • 15:00 Latibær
  • 15:20 Sjómannaþrautir
  • 14:30 SÖNGSKEMMTUN Í VÍÐIHLÍÐ. Davíð Ólafsson og Stefán Helgi Stefánsson syngja fyrir íbúa í Víðihlíð og gesti þeirra. Að lokinni söngskemmtun er boðið upp á kaffiveitingar.

Vestmannaeyjar


Vopnafjörður:

Föstudagur 2. júní

  • 21:00 Pubquiz á Uss. 2-3 í liði

Laugardagur 3. júní

  • 13:00 Sigling. Bátasjóður og björgunarsveitin Vopni bjóða áhugasömum í siglingu um fjörðinn. Smábátaeigendur hvattir til að taka þátt og bjóða gestum í siglingu.
  • 14:00 Bryggjusprell. Björgunarsveitin Vopni stendur fyrir skemmtidagskrá við höfnina. Þrautabraut – flekahlaup – ferja – tækjasýning – reiptog – aparóla – handflökunarkeppni – o.fl.
  • 15:00 Samvera við fiskhúsið. Brim býður upp á humarsúpusmakk – báta­smíði – harmonikkutónlist frá Erlu og Guðnýju Ölmu – boltaveiði – föndur – fiskasýning – o.fl.
  • 22:00 Ball í Miklagarði. Brim býður á ball! Steini Bjarka og félagar í hljóm­sveit­inni Bland og vinir halda uppi stuðinu. 18 ára aldurstak­mark, aðgangur ókeypis.

Sunnudagur 4. júní

  • 14:00 Sjómannadagsmessa. Sjómannadagsmessa í Vopnafjarðarkirkju. Eftir Messu verður gengið saman að minnisvarðanum um drukknaða sjómenn.
  • 15:00 Hátíðarkaffi. Hátíðarkaffi slysavarnadeildarinnar Sjafnar verður haldið í Miklagarði. Slysavarnarkonur heiðraðar.

Sjómannadagurinn á Akranesi


Eskifjörður

2. júní - Föstudagur

  • 18:00-20:00 Sundlaugadiskó. (Allir að mæta með góða skapið, uppblásnu dýnurnar og sólstólana)
  • 21:30 til 01:00 Andri Bergmann og Valli - sjötta barnið, halda uppi fjörinu í Randulffs Sjóhúsi

3. júní - Laugardagur

  • 11:00 Dorgveiðikeppni bryggjunni fyrir neðan Laxa
  • (skylda er að vera í vesti og í fylgd með fullorðnum, vesti verða á staðnum)
  • 13:00 – 14:00 Hópsigling með Jóni Kjartanssyni og Guðrúnu Þorkeldsdóttir
  • 14:30 – 16:30 eða strax þegar sigling kemur í land verða þrautir og afþreying út á Mjóeyri, þar sem hægt verður að fara í þrautabrautir, koddaslag, bardagahring, bubblubolta og fl.
  • 17:00 – 20:00 Tónleikar á Eskju túninu með KK, Gunna Óla, Pál Óskar og fleirum.
  • Heima í stofu tónleikar í garðinum hjá Valla og Elínu við hliðina á grunnskólanum ** Frír aðgangur **
  • 20:30 – 21:30 Andri Bergmann
  • 21:30 – 22:30 KK
  • 22:00 Valhöll opnar
  • 23:00 Gunni Óla heldur uppi fjörinu í Valhöll ** Frír aðgangur **
  • 00:00 – 03:00 Dansleikur með Pál Óskar ** Frír aðgangur **

4. júní - Sunnudagur

  • 11:00 Sjómannamessa í Eskifjarðarkirkju
  • 12:00 Athöfn við minnisvarðann um drukknaða sjómenn - Sjómaður heiðraður
  • Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri fer með hátíðarræðu
  • 13:00 – 17:00 Fjölskyldudagskrá á túninu, frítt í hoppukastala, Sveppi og Villi skemmta krökkunum
  • 15:00 - 17:00 Slysavarnarfélagið með kaffiveitingar í Valhöll í boði Eskju

Akureyri

Föstudagur 2.júní

  • Iðnaðarsafnið kl. 14.00 Opið hús og sjómannadagsþema:

Laugardagur 3. júní

  • Sandgerðisbót "Hátíð hafsins" kl. 10.00 - 13.00
  • Trillukarlar bjóða heim
  • Sjómenn heiðraðir
  • Grill fyrir gesti og gangandi og ljúfir sjómannatónar
  • Fiskihöfn austan við Hagkaup kl. 14.00 - 16.00
  • Opið í Húna II í tilefni 60 ára afmælis bátsins
  • Léttar veitingar

Sunnudagur 4. júní - Sjómannadagurinn

  • kl. 08.00 Bæjarbúar draga fána að hún
  • 11.00 Sjómannadagsmessa í Glerárkirkju. Blómsveigur lagður að minnismerki um drukknaða og horfna sjómenn
  • Súpa í safnaðarheimilinu í boði sjómanna eftir athöfn
  • kl. 11.00 - 14.00 Aðstaða Siglingaklúbbsins Nökkva við Höpfner opin til sýnis
  • kl. 13.15 Húni II siglir frá Fiskihöfn (austan við Hagkaup) í hópsiglingu smábáta, selgskúta og sjóbretta.
  • Allir bátaeigendur velkomnir að taka þátt í siglingunni.
  • kl. 14.30 Sigling með Húna II – í boði sjómannafélags Eyjafjarðar - Allir velkomnir
  • kl. 15.30 Sigling með Húna II – í boði sjómannafélags Eyjafjarðar - Allir velkomnir
  • (Aukasigling ef þarf)

Grímsey

  • Fjölskyldudagskrá um morguninn við höfnina
  • kl. 14.00 Sjómannadagskaffisala í félagsheimilinu Múla

Ólafsfjörður


Neskaupstaður

Föstudagur 2.júní

  • 10:00 Miðbærinn skreyttur og fánar dregnir að húni
  • 11:45-13:30 Hádegishlaðborð á Hildibrand
  • 16:00–20:00 Beituskúrinn í fullri drift.
  • 17:00-21:00 Hildibrand opið í kvöldverð
  • 23:00- Matti Matt og Jónsi ásamt hljómsveit Aldarinnar í Egilsbúð, 2000 kr inn og allur aðgangseyrir rennur beint til beztu björgunarsveitar landsins, Gerpis.

Laugardagur 3. júní

  • kl.10:00-12:00 Hópsigling Norðfirska flotans – allir velkomnir - talsamband á rás 12.
  • kl.11:30-13:30 „Bröns“ í Hotel Capitano
  • kl.14:00 Kappróður
  • kl.16:00-03:00 Beituskúrinn í fullri drift.
  • kl.19:00- Hátíðarkvöldverður sjómanna á Hildibrand, skráning á hildibrand@hildibrand.is
  • kl.22.00- Sjórokk 23 í Egilsbúð. SúEllen, Dúkkulísur og fl. 2000 kr inn sem rennur beint í minningarsjóð Ingvars Lundberg. Húsið opnar kl. 21:00

Sunnudagur 4.júní

  • 09:30 Skip og bátar draga íslenska fánann að húni –bæjarbúar flaggi sem víðast.
  • 10:00 Sjómannadagsmót GN og Gjögurs á Norðfjarðarvelli
  • 11:00 Dorgveiðikeppni 12 ára og yngri á Bæjarbryggjunni - pylsur að hætti Jóns Gunnars í boði SVN. Þáttakendur skulu vera í björgunarvestum og mæta vel fyrir tímann.
  • 14:00 Hátíðarmessa í Norðfjarðarkirkju, heiðrun sjómanna. Séra Benjamín Hrafn og séra Bryndís Böðvarsdóttir þjóna fyrir altari, Kór Norðfjarðarkirkju syngur undir stjórn Kaido Tani. Andri Snær flytur harmonikkutóna. Að messu lokinni verður blómsveigur lagður að minningarreit um óþekkta sjómanninn.
  • 14:30 -18:00 Kaffisala Gerpis að Nesi Allur ágóði rennur til björgunarstarfa sveitarinnar.
  • 15:30 Glens og gaman við sundlaugina:
  • Reiptog, koddaslagur og fleira, skráning hjá Dóra Sturlu. 8683513.
  • Verðlaunaafhendingar.
  • 16:00-00:00 Beituskúrinn opinn fyrir drykki, kaffi, kakó, vöfflur, kökur og skemmtilegheit

Fáskrúðsfjörður

Laugardagurinn 3. júní

  • 10:00 Skemmtisigling í boði Loðnuvinnslunnar, farið verður frá frystihúsbryggjunni. Að lokinni hópsiglingu á laugardag, 3, júní, verður stutt athöfn inni við smábátahöfn, þar sem Sr. Jóna Kristín mun blessa björgunarbátinn Hafdísi og verður til sýnis að því loknu

Sunnudagur 4. júní

  • 14:00 Sjómannamessa í Fáskrúðsfjarðakirkju, með þátttöku sjómanna. Kór kirkjunnar syngur sjómannalög við gítarundirspil. Barn borið til skírnar. Minningarstund og blómsveigur lagður við minnisvarðann um þá sem látist hafa við störf sín á hafinu. Sjómannadagskaffi Slysavarnardeildarinnar, Hafdísar í Skólamiðstöðinni eftir messuna. Samfögnum sjómönnum og fjölskyldum þeirra. Gleðilegan sjómannadag.

Borgarfjörður eystri

Laugardagur 3. júní 2023

Sunnudagur 4. júní 2023

  • 11:00 Sjómannadagsmessa út í höfn.
  • 12:00 (eftir messu) Sigling - sjómenn bjóða gestum í siglingu úr höfninni.
  • 13:00 (Eftir siglingu) Belgjaslagur og stemning á bryggjunni í höfninni.
  • 15:00: Sjómannadagskaffi Sveinunga í Fjarðarborg.

Djúpivogur 

Laugardagur 3. júní 2023

  • 21:00 Myndasýning í Löngubúð í tengslum við sjómannadaginn. Sýndar verða ýmsar myndir, hvort tveggja ljósmyndir og hreyfimyndir, frá hátíðarhöldum í tilefni dagsins á Djúpavogi í gegnum tíðina. Myndasýninguna má svo einnig sjá á sjómannadaginn Við Voginn þar sem hún mun rúlla á skjánum. Íbúar eru hvattir til að nýta þetta tækifæri, til að sýna sig og sjá aðra, rifja upp gamla tíma eða kynna sér hvernig hátíðahöldin hafa þróast í gegnum tíðina.

Sunnudagur 4. júní 2023

  • 10:45 Upphitun fyrir messu, sjóaralög á harmonikku.
  • 11:00 Guðsþjónusta við Faktorshúsið.
  • 12:00 Dorgveiðikeppni á smábátabryggju.
  • 12:30 Grillveisla í umsjón Björgunarsveitarinnar Báru ásamt sjómannadagssöngatriði.
  • 14:00 Sigling ef veður leyfir.
  • 15:00 Leikið í Djúpavogsdeildinni á Neistavelli.

Seyðisfjörður

Laugardagur 3. júní 2023

Sunnudagur 4. júní 2023


Suðureyri

Laugardagur

  • Kl. 10:00 Sigling um Súgandafjörð í boði Smábátaeigenda.
  • Kl. 12:00 Seglbátur og Kayak fyrir börn 10 ára og eldri
  • Kl. 13:45 Skrúðganga frá Bjarnaborg til Kirkju
  • Kl. 14:00 Sjómannadagsmessa sér Fjölnir Ábjörnsson. Heiðrun sjómanns.
  • Kl. 15:00 Kappróður á Lóninu.
  • Kl. 16:30 Lína Langsokkur heimsækir okkur á Grunnskólalóðina.
  • Lokað samkvæmi Sjómannadagsráðs.
  • Sjómannadagshóf frá kl 19:30 til kl 24:00.
  • Kvöldverðarhlaðborð, gos og vatn, gestir geta tekið með sér veigar.
  • Árni á Vöðlum verður með harmonikkuna, söngur, skemmtilegheit og Discó að hætti hússins til kl 24.00

Sunnudagur

  • Kl. 14:00 Dagskrá við höfnina
  • Reiptog
  • Karahlaup
  • Karaboðhlaup ungra barna
  • Kararóður
  • Sjóstökk
  • Eflaust eitthvað fleira.

Snæfellsbær


Hvammstangi

Að lokinni messu stendur Félag eldri borgara fyrir opnu húsi í VSP húsinu til klukkan 16:00 á sunnudag og vonast til að sjá sem flesta. Þar verður lifandi tónlist og sjómannalögin spiluð og sungin. Einnig verður þar lítil sýning á munum sem tengist sjómönnum og sjósókn.


Patreksfjörður






Fleiri fréttir

Sjá meira


×