Aðgerðir í húsnæðismálum forsenda langtímasamninga að mati Eflingar Heimir Már Pétursson skrifar 24. maí 2023 19:31 Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir félagið til í gerð langtíma kajarasamninga. En til þess að það megi verða þurfi stjórnvöld að leggja fram raunverulega áætlun í húsnæðismálum. Stöð 2/Arnar Sólveig Jónsdóttir formaður Eflingar segir félagið reiðubúið að gera langtíma kjarasamninga eins og seðlabankastjóri kalli eftir. Til þess að það megi verða þurfi stjórnvöld að hins vegar að koma að málum með vel útfærðar aðgerðir í húsnæðismálum. Verðbólgan og stjarnfræðilega há húsleiga vegna húsnæðisskorts væri að sliga láglaunafólk sem ætti varla fyrir helstu nauðsynjum. „
Það er náttúrlega magnað að verða vitni að þessu viðvarandi stéttastríði Seðlabankans gagnvart láglaunafólki. Tilveruskilyrði láglaunafólks voru erfið, nú enn erfiðari,“ segir Sólveig Anna. Gögn sýni að 60 prósent eflingarfólks eigi erfitt með að láta enda ná saman. Ríflega helmingur eflingarkvenna lifi við skert kjör og 30 prósent þeirra geti ekki séð börnum sínum fyrir nauðsynlegum fatnaði. „Hér teiknast auðvitað upp mynd af algerlega óboðlegum aðstæðum. Það er ömurlegt að hugsa til þess að í stað þess að stjórnvöld geri það sem þau geta sannarlega gert, sem væri aðgerð til að draga úr neyslu hinna auðugu sem náttúrlega knýja verðbólgubálið áfram; lagt á skatta. Hækkað skatta á auðstéttina. Þá er þessi leið farin sem gerir einmitt ekkert til að draga úr neyslu hinna auðugu en rústar lífi lágtekjufólks,“ segir formaður Eflingar. Sólveig Anna Jónsdóttir segir vaxtahækkanirnar rústa efnahag láglaunafólks. Skattleggja ætti auðstéttina sem drífi verðbólguna áfram.Stöð 2/Arnar Í kringum áramótin síðustu voru gerðir skammtíma kjarasamningar vegna óvissunnar í efnahagsmálum sem hefur síst minnkað. Seðlabankinn segir hóflega langtímasamninga hins vegar forsendu þess að hægt sé að gera áætlanir til að ná verðbólgunni niður. „Okkur hugnast vel að gera langtíma samninga en þá með sterkum forsendu ákvæðum," segir Sólveig. „Það er náttúrlega augljóst að það þarf eitthvað mjög mikið að koma til hjá stjórnvöldum í næstu kjarasamningslotu. Húsnæðismarkaðurinn getur ekki lengur fengið að vera einhvern veginn leikfang hinna auðugu á kostnað hinna eignalausu. Ástæðan fyrir því að lífkjör eflingarfélaga eru orðin svona slæm er auðvitað fyrst og síðast húsnæðismarkaðurinn,“ segir Formaður Eflingar. Fólk sé einfaldlega að bugast undan húsaleigunni og verðbólgunni. Lítil fjárhagsleg áföll væru þeim um megn. „Ef við skoðum bara stöðuna þá var það svo árið 2009 að 63 prósent eflingarfélaga voru í sínu eigin húsnæði. Nú eru aðeins 38 prósent eflingarfélaga í sínu eigin húsnæði,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir.
Efnahagsmál Verðlag Seðlabankinn Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Kjaraviðræður 2022-23 Tengdar fréttir Vonandi ekki þjóðarsátt um að Seðlabankinn bregðist einn við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir gríðarlega mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins standi undir sinni ábyrgð og taki þátt í því að bregðast við verðbólgu og verðbólguvæntingum með Seðlabanka Íslands. 24. maí 2023 10:56 Stærsta vaxtastökkið frá hruni með 125 punkta hækkun Seðlabankans Peningastefnunefnd kom markaðsaðilum og greinendum á óvart með því að hækka vexti Seðlabankans úr 7,5 prósentum í 8,75 prósentum, sem var umfram væntingar, til að ná böndum á undirliggjandi verðbólgu sem heldur áfram að hækka samtímis því að horfur eru á enn meiri vexti í innlendri eftirspurn í ár. Þrátt fyrir að vaxtahækkunin nú upp á 125 punkta sé sú mesta í einu vetfangi frá því við fall bankanna haustið 2008 þá boðar nefndin enn frekari hækkun vaxta á næstunni. 24. maí 2023 08:57 Enn hækkar Seðlabankinn stýrivexti og nú um 1,25 prósentustig Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 1,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 7,5 prósentum í 8,75. 24. maí 2023 08:31 Vilhjálmur segir kannski ekki skynsamlegt að gera langtíma kjarasamninga Formaður Starfsgreinasambandsins segir verkalýðshreyfinguna hljóta að endurskoða áætlanir um gerð langtíma kjarasamninga ef Seðlabankinn haldi áfram að hækka vexti. Bankarnir hagnist vel á vaxtahækkunum sem ýti heimilunum í landinu í verðtryggð lán. Ef til vill verði að skoða hvort ekki þurfi að skipta um gjaldmiðil þar sem vextir í Evrópu séu mun lægri en hér þrátt fyrir svipaða verðbólgu. 23. maí 2023 12:02 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Vonandi ekki þjóðarsátt um að Seðlabankinn bregðist einn við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir gríðarlega mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins standi undir sinni ábyrgð og taki þátt í því að bregðast við verðbólgu og verðbólguvæntingum með Seðlabanka Íslands. 24. maí 2023 10:56
Stærsta vaxtastökkið frá hruni með 125 punkta hækkun Seðlabankans Peningastefnunefnd kom markaðsaðilum og greinendum á óvart með því að hækka vexti Seðlabankans úr 7,5 prósentum í 8,75 prósentum, sem var umfram væntingar, til að ná böndum á undirliggjandi verðbólgu sem heldur áfram að hækka samtímis því að horfur eru á enn meiri vexti í innlendri eftirspurn í ár. Þrátt fyrir að vaxtahækkunin nú upp á 125 punkta sé sú mesta í einu vetfangi frá því við fall bankanna haustið 2008 þá boðar nefndin enn frekari hækkun vaxta á næstunni. 24. maí 2023 08:57
Enn hækkar Seðlabankinn stýrivexti og nú um 1,25 prósentustig Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 1,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 7,5 prósentum í 8,75. 24. maí 2023 08:31
Vilhjálmur segir kannski ekki skynsamlegt að gera langtíma kjarasamninga Formaður Starfsgreinasambandsins segir verkalýðshreyfinguna hljóta að endurskoða áætlanir um gerð langtíma kjarasamninga ef Seðlabankinn haldi áfram að hækka vexti. Bankarnir hagnist vel á vaxtahækkunum sem ýti heimilunum í landinu í verðtryggð lán. Ef til vill verði að skoða hvort ekki þurfi að skipta um gjaldmiðil þar sem vextir í Evrópu séu mun lægri en hér þrátt fyrir svipaða verðbólgu. 23. maí 2023 12:02