Erlent

Náða blaða­manninn sem var tekinn úr Ry­anair-vél

Kjartan Kjartansson skrifar
Raman Pratasevitsj þegar hvítrússnesk stjórnvöld trilluðu honum út á furðulegan blaðmannafund árið 2021. Þar lýsti hann iðrun sinni og þvertók fyrir að hafa verið beittur ofbeldi í haldi stjórnvalda. Stjórnarandstaðan er þess fullviss að hann hafi verið þvingaður til þeirra yfirlýsinga.
Raman Pratasevitsj þegar hvítrússnesk stjórnvöld trilluðu honum út á furðulegan blaðmannafund árið 2021. Þar lýsti hann iðrun sinni og þvertók fyrir að hafa verið beittur ofbeldi í haldi stjórnvalda. Stjórnarandstaðan er þess fullviss að hann hafi verið þvingaður til þeirra yfirlýsinga. Vísir/Getty

Hvítrússnesk stjórnvöld náðuðu í dag Raman Pratasevitsj, blaða- og andófsmann, sem var handtekinn eftir að flugvél Ryanair sem hann ferðaðist í var neydd til að lenda í Minsk árið 2021. Pratasevitsj hafði verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir ýmis meint brot.

Reuters-fréttastofan hefur eftir hvítrússneska ríkisútvarpinu að Pratasevitsj hafi skrifað undir öll tilskilin gögn til þess að hljóta náðun. „Ég er ótrúlega þakklátur landinu og auðvitað forsetanum persónulega fyrir þessa ákvörðun. Þetta eru auðvitað frábærar fréttir,“ á hann að hafa sagt. 

Pratasevitsj var dæmdur í fangelsi fyrir hryðjuverkastarfsemi, að skipuleggja óeirðir og að meiða æru Alexanders Lúkasjenka forseta fyrr í þessum mánuði.

Handtaka Pratasevitsj vakti heimsathygli fyrir tveimur árum. Hann var um borð í flugvél Ryanair á leið frá Aþenu í Grikklandi til Vilníusar í Litháen þegar hvítrússnesk yfirvöld skipuðu flugmönnunum að lenda í Minsk vegna meintrar sprenguhótunar. Þegar vélin lenti var Pratasevitsj og Sofia Sapega, kærasta hans, leidd út og handtekin.

Evrópusambandið beitti Hvítrússa refsiaðgerðum eftir handtökuna. Vestrænir ráðamenn sökuðu stjórn Lúkasjenka forseta um að ræna flugvélinni.

Pratasevitsj var látinn játa þátttöku í mótmælum gegn ríkisstjórninni og ráðabrugg um að steypa Lúkasjenka af stóli með tárin í augunum í myndbandsupptöku sem var sýnd í ríkisfjölmiðlum. Stjórnarandstöðuleiðtogar sem eru í útlegð segja að Pratasevitsj hafi verið þvingaður til að játa.

Mótmælandi við hvítrússneska sendiráðið í Riga í Lettlandi heldur á teiknuðum myndum af Raman Pratasevitsj og Sofiu Sapega.Vísir/EPA

Framseld til Rússlands

Tveir fyrrverandi samstarfsmenn Pratasevitsj hjá fréttaveitunni Nexta sem fjallaði ítarlega um fjöldamótmælin gegn Lúkasjenka eftir umdeildar kosningar árið 2020 voru dæmdir í tuttugu og nítján ára fangelsi að þeim fjarstöddum á dögunum. Nexta var lýst hryðjuverkasamtök af stjórnvöldum í fyrra.

Sapega var dæmd í sex ára fangelsi fyrir að æsa til mótmælanna gegn stjórnvöldum í fyrra. Hún er rússneskur ríkisborgari og féllust stjórnvöld í Minsk á að framselja hana til Rússlands í síðasta mánuði, að sögn rússneska fréttavefsins Meduza.

Eftir að Sapega var dæmd í maí í fyrra birtust skilaboð í nafni Pratasevitsj á samfélagsmiðlinum Telegram þar sem því var haldið fram að þau væru löngu skilin að skiptum og að hann væri giftur annarri konu. AP-fréttastofan segir ekki ljóst hvort að það sé rétt eða hvort að Pratasevitsj hafi skrifað það af fúsum og frjálsum vilja.


Tengdar fréttir

Hand­tekni blaða­maðurinn dæmdur í átta ára fangelsi

Hvítrússneskur stjórnarandstæðingur og blaðamaður, sem var handtekinn eftir að flugvél sem hann var farþegi í var þvinguð til að lenda í Minsk, hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi. Hann mun afplána dóm sinn í fangabúðum.

Kærasta handtekna blaðamannsins dæmd í sex ára fangelsi í Hvíta-Rússlandi

Sofia Sapega, kærasta hvítrússneska blaðamannsins Romans Prótasevits, var dæmd í sex ára fangelsi fyrir að ala á „samfélagslegu hatri“ í heimalandi sínu í gær. Heimsathygli vakti þegar hvítrússnesk stjórnvöld neyddi farþegaflugvél sem parið var farþegar í til að lenda í fyrra.

Fjöldahandtökur, ofbeldi og landflótti

Í dag er liðið ár síðan umdeildar forsetakosningar í Hvíta-Rússlandi fóru fram. Síðan þá hefur mikil stjórnmálaóreiða ríkt í landinu með fjöldahandtökunum, landflótta og hremmingum.

Handtekni blaðamaðurinn birtist opinberlega

Hvítrússneski blaðamaðurinn Roman Prótasevits sem var handtekinn um borð í flugvél Ryanair kom fram á blaðamannafundi í fylgd með embættismönnum í dag. Þar neitaði Prótasevits að hafa verið beittur ofbeldi í haldi yfirvalda og lýsti iðrun vegna meintra glæpa sinna. Stjórnarandstaðan telur að hann hafi verið þvingaður til að koma fram opinberlega.

Hrósaði Lúkasjenka fyrir „stálhreðjar“ hans

Ríkissjónvarp Hvíta-Rússlands birti í dag viðtal við blaðamanninn og aðgerðasinnann Roman Protasevíts, sem var handtekinn þegar áhöfn farþegaþotu RyanAir var þvinguð til að lenda flugvélinni í Minsk í síðasta mánuði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×