Erlent

Prigozhin lýsir yfir sigri í Bakhmut, aftur

Samúel Karl Ólason skrifar
Prigozhin og málaliðar hans í Bakhmut í dag.
Prigozhin og málaliðar hans í Bakhmut í dag. Telegram

Yevgeny Prigozhin, rússneskur auðjöfur, sem rekur Wagner Group málaliðahópinn, lýsti því í dag yfir að Rússar hefðu náð fullum tökum á bænum Bakhmut í Dónetskhéraði. Rússar hafa reynt að ná bænum frá síðasta sumri en hafa orðið fyrir miklu mannfalli.

Auðjöfurinn segir Rússa stjórna bænum að fullu en í myndbandi sem hann birti í dag gagnrýnir hann Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, og Valery Gerasimov, formann herforingjaráðs Rússlands, fyrir að hafa lítið hjálpað við hernám Bakhmut.

Lítið er eftir af Bakhmut nema rústir en um sjötíu þúsund manns bjuggu þar fyrir innrás Rússa.

Prigozhin hefur áður haldið því fram að Rússar hafi náð tökum á Bakhmut.

Myndefni sýnir að úkraínskir hermenn haldi til í nokkrum bygginum í suðvesturjaðri Bakhmut. Forsvarsmenn úkraínska hersins segja Prigozhin fara með rangt mál. Bardagar geisi enn í Bakhmut. Úkraínumenn hafa þó verið á undanhaldi í bænum.

Úkraínumenn hafa hins vegar verið að sækja fram gegn Rússum norður og suður af bænum á undanförnum dögum. Árangurinn er ekki umfangsmikill en Rússar eru þó sagðir vera að senda liðsauka á svæðið til að stöðva Úkraínumenn.

Hér að neðan má sjá kort frá því á fimmtudaginn sem sýnir hvernig víglínan í og við Bakhmut hefur breyst á undanförnum dögum.

Það hjálpar Úkraínumönnum að Rússar séu að senda liðsauka til Bakhmut en markmið þeirra með vörnum bæjarins hefur verið að halda Rússum við efnið á meðan Úkraínumenn þjálfa upp nýjar sveitir í aðdraganda væntanlegar gagnsóknar á næstu vikum.

Sjá einnig: „Við leiddum óvininn í Bakhmut-gildru“

Bardagar eru enn yfirstandandi við Bakhmut en í frétt New York Times er haft eftir úkraínskum hermönnum að þeir ætli ekki að hætta.

Eins og áður segir réðust Rússar fyrst á Bakhmut síðasta sumar og síðan þá hafa harðir bardagar geisað þar nánast samfleytt. Rússar hafa skipst á því að reyna að sækja fram inn í bænu og á jöðrum hans í gegnum mánuðina og eru sagðir hafa orðið fyrir gífurlegu mannfalli í Bakhmut.

Blaðamenn NYT fengu aðgang að myndefni frá úkraínska hernum sem tekið var yfir þriggja daga tímabil í upphafi maí og segja það sýna Úkraínumenn taka tvær skotgrafir af Rússum. Ákveðið var að nota ekki stórskotalið í upphafi árásarinnar til að koma Rússum á óvart. Það virðist hafa heppnast og tókst þeim að ná fyrstu skotgröfinni.

Sjá einnig: Málaliðar Wagner lýsa hryllilegum átökum við Bakhmut

Tveimur dögum síða sóttu þeir fram gegn þeirri næstu, þar sem enn fleiri rússneskir hermenn voru. Hermenn skýldu sér í og bakvið bryndreka og stukku svo ofan í skotgrafir Rússa þegar þangað var komið. Að bardaganum loknum segja blaðamenn NYT myndefnið sýni skotgrafirnar fullar af líkum rússneskra hermanna.

Einn úkraínskur hermaður sem blaðamennirnir ræddu við sagði að hefðbundin hernaðarviska segði þá sem sækja fram verða fyrir meira mannfalli. Það ætti þó ekki við í þessu tilfelli, því fáir Úkraínumenn hefðu fallið.


Tengdar fréttir

Hafa gert umfangsmiklar breytingar á rússneska hernum

Forsvarsmenn rússneska hersins hafa þurft að gera umfangsmiklar breytingar á heraflanum, sökum mikils mannfalls og annarra vandræða tengdum innrás Rússa í Úkraínu. Margar af þessum breytingum hafa reynst vel og er herinn betur fallinn að átökunum í austurhluta landsins.

Bid­en sam­þykk­ir þjálf­un úkr­a­ínskr­a flug­mann­a

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði öðrum leiðtogum á leiðtogafundi G-7 ríkjanna að Bandaríkjamenn styddu alþjóðlegt verkefni sem snýr að því að þjálfa úkraínska flugmenn á vestrænar herþotur og þar á meðal F-16, sem Úkraínumenn hafa beðið um um nokkuð skeið.

Litlar skemmdir á loftvarnarkerfinu

Patriot-loftvarnarkerfi Úkraínumanna í Kænugarði, skemmdist lítið í eld- og stýriflaugaárásum Rússa á aðfaranótt þriðjudags og virkar enn. Ratsjá kerfisins, sem er mikilvægasti hluti þess, skemmdist ekkert, og sérfræðingar telja að hægt verði að gera við skemmdirnar á staðnum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×