Innlent

63 prósent lands­manna and­víg því að lækka kosninga­aldur í 16 ár

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Nokkur munur var á afstöðu kjósenda stjórnmálaflokkanna.
Nokkur munur var á afstöðu kjósenda stjórnmálaflokkanna. Vísir

63 prósent landsmanna eru andvíg því að lækka kosningaaldur úr 18 árum í 16 ár en 18 prósent eru hlynnt breytingunni. 19 prósent segjast hvorki hlynnt né andvíg.

Þetta eru niðurstöður nýjasta Þjóðarpúls Gallup.

Það þarf varla að koma á óvart að yngra fólk er almennt hlynntara því að lækka kosningaaldurinn en eldra fólk; 36 prósent yngri en 30 ára eru fylgjandi breytingunni en aðeins 8 prósent 60 ára og eldri.

Munurinn er einnig nokkuð mikill milli kjósenda stjórmálaflokkanna en á sama tíma og 34 prósent kjósenda Viðreisnar vilja lækka kosningaaldurinn segjast aðeins 6 prósent kjósenda Miðflokksins vera á sömu skoðun.

Fyrir utan Miðflokkinn er stuðningur við lækkun kosningaaldursins minnstur meðal kjósenda stjórnarflokkanna þriggja; Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna, eða 11, 10 og 8 prósent.

Þegar horft er til búsetu er 21 prósent höfuðborgarbúa hlynntur lækkun en aðeins 13 prósent íbúa á landsbyggðinni.

Könnunin var gerð meðal 1þ697 einstaklinga í Viðhorfahóp Gallup en þátttaka var 49,7 prósent.

Gallup


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×