Lífið

Stjörnulífið: Gellufrí, Eurovision og Björk fékk sér ís

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnulífið fer yfir liðna viku hjá því sem er að gerast hjá fræga fólkinu í landinu. 
Stjörnulífið fer yfir liðna viku hjá því sem er að gerast hjá fræga fólkinu í landinu. 

Liðin vika einkenndist af Eurovision, suðrænni skemmtun, skvísulátum og almennri gleði. Þar má nefna árshátíð Þjóðleikhússins sem fór fram í Barcelona og virtist hin glæsilegasta, vinkonuhópar skemmtu sér á tónleikum poppstjörnunnar Beyoncé í Stokkhólmi og þemaafmæli Egils Einarssonar, Gillz, í anda norsku þáttaraðanna Exit á veitingastaðnum Sjálandi í Garðabæ. Svo fékk Björk Guðmundsdóttir sér ís.

Mæðradeginum var einnig fagnað um helgina og birtust fjölda mynda á samfélagsmiðlum tileinakaðar þeim. Rennum yfir það sem hæst bar í lífi íslensku stjarnanna liðna helgi.

Seiðandi pottasjálfa

Svala Björgvinsdóttir tónlistarkona endaði vikuna á notalegri pottaferð síðastliðinn föstudag.


Exit-partí

Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillz, hélt afmæli á Sjálandi í Garðabæ í anda norsku þáttaraðanna Exit. Ásgeir Kolbeins var á meðal gesta, Herra Hnetusmjör og Prettyboitjokko tóku lagið.

Þá mætti danska Eurovision stjarnan Emmelie de Forest og tók lagið.

Egill Einarsson

Siggi Gunnars sáttur í Liverpool

Útvarpsmaðurinn Siggi Gunnars og sænska tónlistarkonan Loreen hittust í Liverpool á Eurovision. Loreen fór með sigur af hólmi í annað skiptið, fyrst kvenna. Svo sannarlega Eurovision-drottning og á leið til Íslands til að vinna með Ólafi Arnalds.


Kveðjur frá Liverpool

Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson sendi Eurovision-kveðjur til Íslands frá Liverpool.


Eurovision búningur upp á tíu!

Viktor Heiðdal Andersen hjúkrunarfræðingur glæsilegur í Eurovision partíi.


Skvísulæti í pottinum

Tónlistarkonan Gréta Karen Grétarsdóttir nýtur sólarinnar og dreymir um frí.


Valli fékk óskina uppfyllta um japanskt klósett

Camilla Rut Rúnarsdóttir gladdi kærastann, Valgeir Gunnlaugsson, þekktur sem Valli flatbaka, með japönsku klósetti sem er meðal annars búið þeim eiginleika að skola rassinn.


Njóta í sænsku sólinni

Elísabet Gunnars áhrifavaldur naut lífsins í sólinni Svíþjóð með eiginmanni sínum yngstu dóttur þeirra.


Bomba á baðfötunum

Tónlistarkonan Elísabet Eyþórsdóttir, betur þekkt sem Beta Ey, nýtur lífsins á sundfötunum í sólinni á Tenerife.


Sálufélagar í badminton

Mari Järsk afrekshlaupakona segir hana og kærastann, Njörð Lúðvíksson, vera sálufélaga þrátt fyrir að hann nenni ekki að spila við hana badminton.


Tveggja ára og fyndinn

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal fagnaði tveggja ára afmæli yngri sonar síns Matteo í vikunni. „Sá fyndnasti sem ég hef kynnst er 2 ára í dag!“


Brúðkaupsferðin tók óvænta stefnu

Matarbloggarinn Linda Benediktsdóttir og eiginmaður hennar Ragnar Einarsson, fóru í brúðkaupsferð sem tók óvænta stefnu frá Grikklandi til Mallorca.

Linda Ben og Ragnar rómantísk á suðrænum slóðum


Tanja Ýr lifir drauminn

Tanja Ýr Ástþórsdóttir áhrifavaldur lifir drauminn á bát á Miami, Florida.


Baby Can nefndur

Sonur tónlistarmannsins Aron Can Gultekin og Ernu Maríu Björnsdóttur var nefndur Theo Can við fallega athöfn um helgina.

Sonur Arons og Ernu kominn með nafn


Aldís Amah opnaði sig um veikindin

Leikkonan Aldís Amah Hamilton setti sér markmið um áramótin að ræða opinskáttum átröskunarsjúkdóminn sem hún hefur verið að berjast við síðastlin ár. 


Árshátíð Þjóðleikhússins

Leikkona Þórey Birgisdóttir birti skemmtilegar myndir af sér og samtarfsfólki sínu á árshátíð Þjóðleikhússins sem var haldin með tilheyrandi gleði í Barcelona. 


Halli Melló og frú

Leikarinn Hallgrímur Ólafsson og eiginkona hans Matthildur Magnúsdóttir létu sig ekki vanta og birtu af sér þessa fallegu mynd.


Í stíl við Diljá 

Þuríður Blær Jóhannsdóttir leikkona klæddist flottum silfurlituðum kjól á árshátíð Þjóðleikhússins í stíl við Eurovisionskvísuna Diljá í vikunni. 


Skvísuferð á suðrænar slóðir

Skemmtikrafturinn Eva Ruza Miljevic fór með vinkonuhópnum sínum í skvísuferð til Barcelona.  


Stór og sterk stelpa

Katrín Edda Þorsteinsdóttir áhrifavaldur segir fólki finnist dóttir hennar stór og sterk, eins og foreldrarnir mögulega?


Stefnumót í miðri viku

Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Sunneva Einars skellti sér á stefnumót í miðri viku.


Gellufrí á Grikklandi

Móeiður Lárusdóttir athafnakona og eiginkona knattspyrnukappans Harðar Björgvins Magnússonar skellti sér í gellufrí með fögrum hópi kvenna á glæsihótelið W Costa Navarino á Grikklandi, sem eingöngu er fyrir fullorðna.


Beyoncé í Stokkhólmi

Vinkonuhópar skemmtu sér vel í Stokkhólmi í vikunni á tónleikum poppdrottningarinnar Beyoncé.


Mæðrum landsins fagnað 

Fjöldi fólks birti fallegar myndir af mæðrum sínum, tendamæðrum, sjúpmæðrum, barnsmæðrum og þannig má lengi telja, á samfélagsmiðlum um helgina í tilefni af mæðradeginum 14. maí.

Saga Sigurðadóttir ljósmyndari fagnaði fyrsta mæðradeginum.

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður segist vera heppin mamma.

Elísabet Gunnars áhrifavaldur segist þakklát fyrir tríóið sitt.

Sólbjört Sigurðardóttir birti fallega mæðgnamynd í tilefni dagsins.

Björk Guðmundsdóttir er ein af þeim sem tekur á móti sumrinu með heimsókn í Ísbílinn. Einn umdeildasti bíll landsins, og líklega sá vinsælasti meðal ungu kynslóðarinnar, lagði á Lynghaganum í Vesturbæ Reykjavíkur síðdegis á föstudag í blíðskaparveðri. Augnablikum síðar var hvítum Land Rover Defender lagt í götunni. Út steig Björk með barnabarn og markmiðið skýrt: Að fá sér ís. 


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Gæsun, GusGus og gleði

Reykjavíkurborg iðaði af menningu og lífi um helgina í tilefni af HönnunarMars og áhrifavaldar landsins nutu sín í botn á hinum ýmsu viðburðum. Mikið var um árshátíðir og veisluhöld og hljómsveitin GusGus hélt ferna tónleika á Nasa, þar sem stiginn var trylltur dans. Margir fylgdust svo grant með krýningu Karls III Bretakonungs og klæddu sig upp í tilefni af því. 

Stjörnulífið: Gæsun, GusGus og gleði

Reykjavíkurborg iðaði af menningu og lífi um helgina í tilefni af HönnunarMars og áhrifavaldar landsins nutu sín í botn á hinum ýmsu viðburðum. Mikið var um árshátíðir og veisluhöld og hljómsveitin GusGus hélt ferna tónleika á Nasa, þar sem stiginn var trylltur dans. Margir fylgdust svo grant með krýningu Karls III Bretakonungs og klæddu sig upp í tilefni af því. 

Stjörnulífið: Brúðkaup, flutningar og Kaupmannahöfn

Fyrsta vika febrúarmánaðar hér á landi var full af frumsýningum og sýningaropnunum. Íslendingar eru þó alltaf á farandsfæti og voru margar tískuskvísur sem gerðu sér ferð til Kaupmannahafnar í tilefni af tískuvikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×