Segir hið pantaða álit engan bömmer fyrir stjórnarandstöðuna Jakob Bjarnar skrifar 12. maí 2023 10:37 Jón Gunnarsson og Björn Leví. Í morgun birtust fréttir af lögfræðiáliti Lagastofnunar Háskóla Íslands sem benda til þess að vantrauststillaga stjórnarandstöðunnar, sem var felld á þinginu, hafi verið algerlega tilhæfulaus. Björn Leví segir hið pantaða álit dómsmálaráðuneytisins sjálfsmark. vísir/vilhelm Morgunblaðið birti í morgun frétt um lögfræðiálit HÍ undir fyrirsögninni „Tillaga um vantraust misskilningur“. Rætt er við Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra þar sem hann segist ekki hafa brotið þingskaparlög með vísan til álitsins. Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata telur lítið hald í þessu. „
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra braut ekki þingskapalög með ákvörðun um að Útlendingastofnun tæki allar umsóknir um veitingu ríkisborgararéttar fyrir í tímaröð, bæði umsóknir til Alþingis og Útlendingastofnunar. Þetta kemur fram í álitsgerð Lagastofnunar Háskóla Íslands um hvernig túlka bæri lögin, sem unnin var að beiðni dómsmálaráðuneytisins.“ Lögfræðin komin á Morfíslegt plan Athygli vekur að í morgun lá álitið ekki fyrir nema þá að Morgunblaðið hafði það undir höndum og svo Jón sjálfur. Í frétt blaðsins í morgun er að finna eina tilvitnun í álitið. „Þannig verður ekki ráðið af orðalagi, lögskýringargögnum, forsögu og markmiðum ákvæðisins eða öðrum ákvæðum þingskapalaga að í réttinum til að fara fram á að upplýsingar verði „teknar saman“ felist að stjórnvald skuli afla upplýsinga og leggja mat á þær í formi umsagna. Enn síður verður ályktað að upplýsingaréttinum verði beitt til að knýja á um að stjórnvöld sinni lögbundinni skyldu sinni til að veita umsögn samkvæmt öðrum lögum.“ Jón mætti svo í Bítið á Bylgjunni þar sem hann úttalaði sig um álitið. Þetta hlýtur að vera áfall fyrir stjórnarandstöðuna en í vor lagði hún fram tillögu um vantraust á hendur Jóni. Flutningsmenn tillögunnar voru Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata, Þórunn Sveinbjarnardóttir í fjarveru Loga Einarssonar þingflokksformanns Samfylkingarinnar, Guðmundur Ingi Kristinsson þingflokksformaður Flokks fólksins og Hanna Katrín Friðriksson þingflokksformaður Viðreisnar. Tillagan var felld. En Björn Leví segir það ekki svo. „Nei, ég myndi ekki segja það. Þetta er enn eitt dæmið um andstæð lögfræðiálit sem liggja fyrir og taka þarf afstöðu til. Óþolandi hversu lögfræðin virðist vera á Morfíslegu plani,“ segir Björn Leví í samtali við Vísi. Misvísandi lögfræðiálit skapi óþolandi stöðu Björn hafði ekki í morgun séð álitið í heild sinni frekar en Vísir sem hefur kallað eftir því sérstaklega. En hann heggur eftir því að tilvitnunin gengur í berhögg við það sem fyrir liggur frá nefndarsviði Alþingis. Hvað varði umfjöllun Alþingis um umsóknir um ríkisborgararétt, „þá sé það hluti af löggjafarstarfi þingsins, þar sem ekki reyni á eftirlitshlutverkið gagnvart framkvæmdarvaldinu" „Sko,“ segir Björn Leví og helst á honum að heyra að þetta sé óþolandi staða sem verið er að teikna upp með hinu pantaða áliti. „Tímarammi eru ekki góð rök fyrir því að álykta megi sem svo að ekki eigi að afla nýrra gagna. Enda er það svo sem ekki spurning í þessu máli heldur. Það á að safna gögnum sem eru til og gefa á þeim álit. En látum það liggja á milli hluta.“ Björn vitnar í greinargerð frumvarps eins og hún liggur fyrir af hálfu Alþingis og spyr hvort Lagastofnun hafi ekki lesið greinargerðina? „Með breytingunni er lagt til að heimild þingnefndar til þess að krefja stjórnvald, svo sem sjálfstæð stjórnvöld eða sjálfstæðar stjórnsýslunefndir, um upplýsingar verði ekki takmörkuð við afhendingu fyrirliggjandi gagna heldur einnig að teknar séu saman upplýsingar og unnið úr þeim yfirlit eftir atvikum í nýtt skjal fyrir þingnefnd“. Segir álitið sjálfsmark Jóns Björn segir að hér sé mótsögn sem ekki sé ávörpuð. Og þegar svo er geti reynst auðvelt að taka álitið sem Jón pantaði frá Lögfræðistofnun, „ og krumpa og henda í ruslið. Við erum ítrekað að lenda í því að skoða lögfræðiálit sem benda í sitthvora áttina. Lögfræðiálit sem kallað er eftir frá hagsmunaaðilum.“ Björn Leví segir óþolandi að lögfræðins sé orðin þannig að hún vísi í allar áttir, að því er virðist bara eins og hentar hagsmunaaðilum hverju sinni.Vísir/Vilhelm Björn segir að skoða verði efni máls og rök sem liggja fyrir, ekki það hvað hagsmunaaðilar eru að kalla eftir. „Þarna er mjög auðvelt að finna mótsögn, það eitt og sér, óháð því hver er hagsmunaaðilinn sem kallar eftir álitinu, er vandamál. Við finnum ekki sömu mótsagnir í áliti nefndarsviðs Alþingis.“ En þarna er sem verið sé að sparka undan ykkur í stjórnarandstöðunni fótunum og gera ykkur að ómerkingum? „Auðvitað er verið að reyna það en þetta er sjálfsmark sýnist mér. En þeim er oft sama um það, segja bara það sem hentar óháð því hvort hægt er að hrekja gögnin. Ef þú segir hlutina nógu oft. Það er hinn pólitíski leikur sem alltaf er verið að spila og er gríðarlega þreytandi. Þetta er Morfískeppni,“ segir Björn Leví og andvarpar. Umrætt álit birtist svo á vef stjórnarráðsins uppúr klukkan tíu í morgun.
Alþingi Innflytjendamál Stjórnsýsla Fjölmiðlar Háskólar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Segist saklaus Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Innlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Innlent Fleiri fréttir Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Sjá meira