Færanleg göngu- og hjólabrú hitar upp fyrir stokk í Vogabyggð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. maí 2023 14:56 Brúin verður færanlega á framkvæmdatímanum. Gerð verður tímabundin göngu- og hjólabrú yfir Sæbraut, sem er ætlað að bæta umferðaröryggi verulega, ekki síst fyrir skólabörn í Vogabyggð. Brúin verður yfirbyggð, með lyftu og tröppum og verður áhersla á jákvæða upplifun vegfarenda og að innra rými verði aðlaðandi. Áætlaður kostnaður er um 250 milljónir en verkinu á að ljúka í síðasta lagi sumarið 2024.
Fram kemur á vef Reykjavíkurborgar að endanlegt útlit hafi ekki verið ákveðið. Í skoðun sé að nota litað plexígler í yfirbyggingunni til að ýta undir skemmtilega upplifun. Einnig verði góð lýsing í og við brúna. „Núverandi aðstæður við Sæbraut kalla á trygga tengingu yfir götuna sem fyrst og því verður ráðist í tímabundnar aðgerðir á þessum stað. Framtíðarlausnin er að Sæbraut verði sett í stokk eins og stendur í Samgöngusáttmálanum. Brúin tengist Snekkjuvogi/Barðavogi í vestri og Tranavogi/Dugguvogi í austri,“ segir í tilkynningu. Brúin verður færanleg „Tímabundin göngu- og hjólabrú, þar til stokkur er tilbúinn, er því mikilvægur þáttur til að tryggja umferðaröryggi óvarinna vegfarenda milli hinnar nýju Vogabyggðar og Vogahverfis. Þetta á við áður en framkvæmdir stokks byrja og á meðan á framkvæmdum stendur. Brúin verður þannig gerð úr garði að hægt verður að færa hana á meðan á framkvæmdatímanum stendur.“ Reykjavíkurborg og Vegagerðin, sem vinna saman að verkefninu, hófu undirbúning formlega haustið 2022. „Skoðaðir voru möguleikar á því að gera brú annars vegar með römpum og hins vegar með lyftum. Mikill hæðarmunur er þarna svo lyftubrú er betri kostur því rampar yrðu langir. Góð reynsla hefur verið af sambærilegum brúm til dæmis í Noregi þar sem þær eru talsvert notaðar, til dæmis í neyðartilfellum.“ Vegagerðin og Reykjavíkurborg setja fram fimm skilyrði vegna brúarinnar: Brúin verður hönnuð á þann hátt að auðvelt sé að færa hana í stokksframkvæmd. Brúardekk og hráefni verður hægt að endurnýta. Aðgengi verður tryggt fyrir alla óvarða vegfarendur (algild hönnun). Góð lýsing verður á og við göngubrú. Brúin verður byggð á þann hátt að vegfarendur upplifa sig örugga að ferðast um hana. Áætlaður kostnaður við byggingu brúarinnar er um 250 milljónir króna en til viðbótar má gera ráð fyrir kostnaði við að tengja núverandi stíga að brúnni. Næsta skref er að farið verður í útboð, bæði efnisútboð og framkvæmdarútboð. Endanlegar teikningar liggja ekki fyrir en meðfylgjandi mynd gefur til kynna þá sýn sem Reykjavíkurborg og Vegagerðin leggja áherslu á í framkvæmdinni, að brúin verði aðlaðandi og örugg. Áætlað er að brúin verði opnuð gangandi- og hjólandi vegfarendum í upphafi næsta árs en að öllum frágangi verði síðan lokið sumarið 2024. Kynningu á verkefninu má sjá að neðan. Tengd skjöl SæbrautPDF3.1MBSækja skjal
Reykjavík Samgöngur Skipulag Hjólreiðar Grunnskólar Umferðaröryggi Skóla- og menntamál Sæbrautarstokkur Tengdar fréttir Fækka beygjuakreinum og takmarka hraða Til stendur að bæta umferðaröryggi á gatnamótum Sæbrautar og Kleppsmýrarvegar/Skeiðarvogs. Það verður meðal annars gert með því að fækka vinstribeygjuakreinum af Kleppsmýrarvegi, breikka gönguleið sunnan vegarins og bæta götulýsingu. 1. febrúar 2023 18:31 Færri leikskólabörn innrituð í Reykjavík í haust vegna framkvæmda Úthlutun leikskólaplássa í Reykjavík hefst á morgun. Einn leikskóli mun ekki taka við nýjum börnum og endurbætur á húsnæði munu hafa áhrif á innritun sex annarra leikskóla. 13. mars 2023 13:51 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Fækka beygjuakreinum og takmarka hraða Til stendur að bæta umferðaröryggi á gatnamótum Sæbrautar og Kleppsmýrarvegar/Skeiðarvogs. Það verður meðal annars gert með því að fækka vinstribeygjuakreinum af Kleppsmýrarvegi, breikka gönguleið sunnan vegarins og bæta götulýsingu. 1. febrúar 2023 18:31
Færri leikskólabörn innrituð í Reykjavík í haust vegna framkvæmda Úthlutun leikskólaplássa í Reykjavík hefst á morgun. Einn leikskóli mun ekki taka við nýjum börnum og endurbætur á húsnæði munu hafa áhrif á innritun sex annarra leikskóla. 13. mars 2023 13:51