Lífið

Stjörnu­lífið: ABBA-dívur, utan­lands­ferðir og Bubbi í fanta­formi

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir það helsta frá liðinni viku.
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir það helsta frá liðinni viku. Instagram

Sólarlandaferðir, tónleikar og árshátíðir voru nokkuð áberandi á samfélagsmiðlum í liðinni viku. Veðrið lék við okkur hér á Íslandi en samt sem áður voru fjölmargir sem leituðu út fyrir landsteinana.

Páll Óskar, Svala Björgvins, Valdimar, Ásgeir Trausti og GDRN komu fram á tónleikum til styrktar Solaris, hjálparsamtökum fyrir flóttafólk, á Bryggjunni um helgina. Páll Óskar þakkaði fyrir góða mætingu og Svala Björgvins var sömuleiðis ánægð með kvöldið.

Gleðigjafinn Eva Ruza hélt alvöru fyrirpartý fyrir Backstreet Boys aðdáendur landsins en strákabandið verður með tónleika hér á landi síðar í mánuðinum.

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson fagnaði 37 ára afmæli Hafdísar Bjargar, eiginkonu sinnar, með stórskemmtilegri færslu á Instagram. Þar sagðist hann fjórum sinnum hafa gefið sig fram til lögreglu, sannfærður um að það væri glæpur að eiga bestu eiginkonu heims.

Rúrik Gíslason er hamingjusamur í Abu Dhabi.

Raunveruleikastjarnan Sunneva Einarsdóttir skellti sér á stefnumót með kærasta sínum.

Hinn 67 ára gamli Bubbi Morthens æfir 5-6 sinnum í viku til þess að viðhalda bæði líkamlegu formi og röddinni. „Að mæta einn dag í einu er leiðin til árangurs. Lífið er alltaf núna ekki seinna,“ skrifar hann.

Dívurnar Selma Björns, Stefanía Svavars, Jóhanna Guðrún og Hansa stigu á svið á stórglæsilegum ABBA-tónleikum í Hörpu um helgina. Sigga Beinteins var leynigestur á tónleikunum sem voru vel sóttir.

Áslaug Arna ráðherra heimsótti hof í Kyoto í Japan.

Tónlistarkonan Bríet kom fram á Aldrei fór ég suður um páskana. Hún rifjaði það upp um helgina.

Söngkonan Birgitta Haukdal naut veðurblíðunnar eins og svo margir aðrir.

Tónlistarmaðurinn og nýbakaði faðirinn Aron Can er í fantaformi.

Leikkonan Kristín Pétursdóttir rölti niður í bæ í veðurblíðunni.

Fjölmiðlamaðurinn Gústi B lifði sínu besta lífi á Tenerife. Gústi frumsýndi þættina Kökukast með bróður sínum Árna Beinteini um helgina. Þá skellti útvarpsmaðurinn sér líka út á lífið um helgina og sást meðal annars til kappans á auto.

Tónlistarkonan Laufey tilkynnti að hún væri á leið í tónleikaferðalag í Ástralíu og Asíu.

Tónlistarmennirnir og perluvinirnir Jógvan og Friðrik Ómar urðu „ódauðlegir“ þegar þeir náðu þeim merkilega áfanga að fá andlit sín prentuð á bolla.

Lögfræðineminn og samfélagsmiðlastjarnan Helga Margrét sleikir sólina á Spáni.

Tónlistarkonan Hildur sækir innblástur í þættina Mad Men í bland við tíunda áratuginn.

Æði-tvíburarnir Gunnar Skírnir og Sæmundur njóta lífsins á Torrevieja.

Fegurðardrottningin Tanja Ýr veltir því fyrir sér hvort hún eigi að halda brúna hárinu eða lita það ljóst aftur.

Fasteignasalinn og áhrifavaldurinn Hrefna Dan fagnaði 41 árs afmæli um helgina.

Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir átti góða helgi og skellti sér út að borða í góðra kvenna hópi, þeirra á meðal var tískubloggarinn Pattra.

Tónlistarkonan Gugusar sýndi á sér ólíkar hliðar.

Leikkonan Íris Tanja birti myndir frá síðustu dögum.

Leikkonan Júlíana Sara skellti sér út að borða á Akureyri.

Förðunarfræðingurinn Kolbrún Anna Vignisdóttir er alltaf æðislega flott í tauinu.

Tískuparið Gummi Kíró og Lína Birgitta spókuðu sig niðri í bæ.

Eurovision-stjarnan Diljá Pétursdóttir tróð upp á Eurovision viðburði í London ásamt átrúnaðargoði sínu, hinni sænsku Loreen.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×