Erlent

Njósna­belgurinn hafi safnað við­kvæmum hernaðar­upp­lýsingum

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Bandaríkjaforseti hefur ekki viljað staðfesta nýjar fregnir embættismanna en segir að háttsemi Kínverja með flugi njósnabelgsins hafi falið í sér brot á alþjóðalögum.
Bandaríkjaforseti hefur ekki viljað staðfesta nýjar fregnir embættismanna en segir að háttsemi Kínverja með flugi njósnabelgsins hafi falið í sér brot á alþjóðalögum. Getty/Angerer

Kínverskur njósnabelgur sem Bandaríkjamenn skutu niður í febrúar er talinn hafa verið nýttur til að safna viðkvæmum hernaðarupplýsingum. Talið er að belgnum hafi verið flogið yfir herstöðvar og upplýsingum streymt í rauntíma til kínverskra yfirvalda. 

Bandaríkjaher skaut belginn niður utan strönd Suður-Karólínu hinn 4. febrúar. Grannt hafði verið fylgst með för njósnabelgsins frá Alaska til Montana, þar sem varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna geymir meðal annars kjarnorkuvopn í Malmstrom-flugherstöðinni. Kínverjar eru sagðir hafa hraðað ferð njósnabelgsins mjög, til að koma honum út úr bandarískri lofthelgi, þegar ljóst var í hvað stefndi.

Sjá einnig: Skutu niður ó­­þekktan hlut í fjöru­tíu þúsund feta hæð yfir Alaska

„Upplýsingarnar sem Kínverjar söfnuðu voru að mestu leyti rafræn merki eða bylgjur, til dæmis samskipti frá starfsmönnum herstöðvanna eða frá tilteknum vopnakerfum. Það er ólíklegt að njósnabelgurinn hafi tekið myndir á vettvangi,“ segir ónefndur embættismaður innan bandaríska hersins samkvæmt Guardian.

Anthony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur ekki tekið svo djúpt í árinni en segir að tekist hafi að takmarka leka á upplýsingum. Enn væri verið að rannsaka belginn og tilheyrandi búnað. Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur áður sagt að háttsemi Kínverja fæli í sér gróft brot á alþjóðalögum en neitar að viðkvæmum upplýsingum hafi verið lekið.

Fjöldi annarra njósnabelgja

Bandarísk yfirvöld greindu frá því fyrr á árinu að kínversk yfirvöld væru talin hafa sett fjölda annarra sambærilegra njósnabelgja á loft. Þeim hafi verið flogið yfir fjörutíu lönd í fimm heimsálfum og safnað þar upplýsingum.

Kínverjar hafa staðfastlega neitað ásökunum og segja að Bandaríkjamenn hafi brugðist ókvæða við. Belgurinn hafi verið nýttur til að safna veðurfarsupplýsingar og ekkert væri við hann að athuga.


Tengdar fréttir

Ekki orðið vart við ó­þekkt loft­för yfir Ís­landi

Ekki hefur orðið vart við óþekkt loftför á borð við þau sem grandað var í Bandaríkjunum á dögunum á loftrýmiseftirlitissvæði Atlantshafsbandalagsins sem Ísland ber ábyrgð á. Kæmu óþekkt loftför inn á svæðið yrðu mögulega sendar herþotur frá Keflavík til móts við þau.

Ýmsir kostir við njósna­belgi en vont að vera nappaður

Þrátt fyrir að tæknin sé ef til vill gamaldags geta stórþjóðir hagnýtt sér ýmsa kosti loftbelgja til að njósna um keppinauta sína á alþjóðavettvangi. Gallinn er þó sá að það getur verið vont ef upp kemst um njósnabelgina, þar sem ekki sé ólíklegt að það gerist fyrir augum almennings, eins og gerðist yfir Bandaríkjunum á dögunum.

Fjórði fljúgandi hluturinn skotinn niður af Bandaríkjaher

Bandaríkjaher skaut fyrir skömmu niður enn annan fljúgandi hlutinn í mikilli hæð yfir stöðuvatninu Huron í Michican fylki í Bandaríkjunum, skammt frá landamærum Kanada. Um er að ræða fjórða hlutinn sem skotinn er niður í þessum mánuði í Norður-Ameríku.  



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×