Þetta var niðurstaða fundarhalda helgarinnar hjá yfirvöldum og eftirlitsaðilum í Bandaríkjunum, þar sem rætt var um hvernig ætti að bregðast við falli Silicon Valley bankans á föstudaginn.
Viðskiptavinir bankans geyma um það bil 175 milljarða Bandaríkjadala þar, 24 þúsund milljarða íslenskra króna
Innistæðutrygging í Bandaríkjunum tryggir alla jafna innistæður upp á allt að 250 þúsund dollara.
Í sameiginlegri tilkynningu frá bandaríska Fjármálaráðuneytinu, bandaríska Seðlabankanum og Innistæðutryggingum Bandaríkjanna sem birt seint í gærkvöldi, segir að eftir að hafa ráðfært sig við Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, hafi verið ákveðið allar innistæður innistæðueiganda í Silicon Valley bankanum verði að fullu tryggðar. Innistæðueigendur þeirra geti nálgast þær í dag.

Í sömu tilkynningu var einnig greint frá því að yfirvöld í New York ríki hefðu tekið yfir Signature-bankann, af sömu ástæðu og tekið var yfir Silicon Valley-bankann. Sömu innistæðutryggingar munu gilda um báða bankana.
Viðskiptavinir Signature-bankans geyma um 88 milljarða dollara í bankanum, um tólf þúsund milljarða íslenskra króna. Bankarnir tveir eiga það sameiginlegt að hafa verið umsvifamiklir í þjónustu við fyrirtæki og fjármálastofnanir sem sýsla með rafmyntir.
HSBC kaupir breskt útibú SVB á eitt pund
Þá mun Seðlabankinn bjóða upp á lánalínur til annarra fjármálastofnana í Bandaríkjunum sem kunni að vera í vandræðum.
Í frétt Reuters segir að um neyðaraðgerð sé að ræða sem ætluð sé að treysta trú almennings í Bandaríkjunum á bankakerfinu þar í landi og koma í veg fyrir frekari vandræði í fjármálakerfinu.
Þá var tilkynnt í morgun að breski bankinn HSBC muni kaupa breska útibú Silicon Valley bankans á eitt pund, tæplega tvö hundruð krónur. Þar með tekur breski bankinn yfir allar skuldbindingar útibúsins. Er vísað í að þetta sé gert til þess að tryggja framtíð tæknigeirans í Bretlandi, sem hefur átt í miklum viðskiptum við Silicon Valley bankann.