Sport

Þrjár íslenskar CrossFit konur á topp tuttugu í Evrópu: Þessi komust áfram

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sólveig Sigurðardóttir náði bestum árangri Íslendinga og þeim níunda besta í Evrópu. Það tekur hins vegar oft á skrokkinn að klára æfingarnar.
Sólveig Sigurðardóttir náði bestum árangri Íslendinga og þeim níunda besta í Evrópu. Það tekur hins vegar oft á skrokkinn að klára æfingarnar. Instagram/@solasigurdardottir

Nú er búið að staðfesta endanlega úrslitin frá The Open í ár og því er vitað hverjir komast í fjórðungsúrslitin í undankeppni heimsleikanna í ár.

Keppendur kláruðu þrjár vikur í opna hlutanum en nú þarf íþróttafólkið að glíma við æfingar á styttri tíma því það sem tekur við núna er þriggja daga keppni í næsta hluta.

Eftir að úrslitin úr opna hlutanum voru staðfest þá fengu þau sem náðu lágmörkunum þátttökutilkynningu í næsta hluta sem um leið staðfestir viðkomandi í hóp tíu prósent af besta CrossFit fólki heims. Það er því ekki auðvelt að komast áfram úr The Open.

Íslenska fólkið fer í gegnum undankeppni Evrópu og næst á dagskrá er síðan fjórðungsúrslitin sem er líka keppni í gegnum netið og hefst strax eftir aðeins þrjá daga. Keppendur gera þá fimm æfingar á þremur dögum.

Sólveig Sigurðardóttir náði bestum árangri íslensku stelpnanna á The Open í ár en hún endaði í níunda sæti í Evrópu. Á undan henni voru tvær spænskar stelpur, og svo ein frá Ítalíu, Póllandi, Belgíu, Írlandi, Frakklandi og Noregi.

Evrópumeistarinn á The Open í ár varð Elena Carratala Sanahuja frá Spáni en hún endaði á undan Elisu Fuliano frá Ítalúu og Gabrielu Migala frá Póllandi.

Ísland átti alls þrjár CrossFit konur á topp tuttugu í Evrópu en Anníe Mist Þórisdóttir endaði í sextánda sæti og Þuríður Erla Helgadóttir varð nítjánda.

Engin önnur náði inn á topp fimmtíu en Sara Sigmundsdóttir endaði í 58. sæti í Evrópu. Katrín Tanja Davíðsdóttir hefði reyndar endað í 28. sætinu væri hún skráð sem Íslendingur í keppninni en hún keppir fyrir Bandaríkin á þessu tímabili.

Katrín Tanja endaði í 95. sæti í heiminum en varð í 21. sæti í Vesturhluta Norður-Ameríkukeppninnar þar sem leið hennar liggur inn á heimsleikanna í ár.

Björgvin Karl Guðmundsson endaði í tólfta sæti í The Open í Evrópu en hann varð í 45. sæti á heimsvísu. Evrópumeistarinn varð Reggie Fasa frá Bretlandi en hann varð á undan þeim Aniol Ekai frá Spáni og Alex Kotoulas frá Grikklandi.

Ísland á annars fjölda keppenda í fjórðungsúrslitunum en þangað komust 6015 efstu karlarnir og 3999 efstu konurnar í Evrópu.

Alls komust 69 íslenskar konur og 65 íslenskir karlar áfram í næsta hluta undankeppni heimsleikanna.

Samkvæmt úrslitasíðu CrossFit samtakanna hafa því þessir Íslendingar komist áfram:

  • Íslenskar konur í fjórðungsúrslitunum:
  • 9 Sólveig Sigurðardóttir
  • 16 Anníe Mist Þórisdóttir
  • 19 Þuríður Erla Helgadóttir
  • 58 Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir
  • 94 Hjördís Óskarsdóttir
  • 102 Elin Birna Hallgrimsdóttir
  • 149 Steinunn Anna Svansdóttir
  • 185 Guðbjörg Valdimarsdóttir
  • 235 Andrea Ingibjörg Orradóttir
  • 238 Helena Rut Pétursdóttir
  • 250 Björk Óðinsdóttir
  • 346 Tanja Davíðsdóttir
  • 424 Bergrós Björnsdóttir
  • 461 Jóhanna Júlia Júlíusdóttir
  • 523 Ingunn Lúðvíksdóttir
  • 564 Andrea Rún Þorvaldsdóttir
  • 581 Rosa Guthny
  • 594 Íris Rut Jónsdóttir
  • 609 Hrafnhildur Emilía Helgadóttir
  • 621 Alma Káradóttir
  • 755 Harpa Almarsdóttir
  • 856 Anna Kara Eiríksdóttir
  • 942 Anna Svavarsdóttir
  • 1012 Tinna Marin Sigurdardóttir
  • 1028 Guðbjörg Sveinsdóttir
  • 1030 Helena Þórhallsdóttir
  • 1081 Unnur Ösp Alfreðsdóttir
  • 1144 Erla Gudmundsdóttir
  • 1182 Íris Dögg Frostadóttir
  • 1190 Una Heimisdóttir
  • 1223 Heiðrún Gestsdóttir
  • 1276 Birta Líf Þórarinsdóttir
  • 1346 Disa Edwards
  • 1357 Berglind Bjarnadóttir
  • 1447 Unnur Magnúsdóttir
  • 1450 Hafdís Ýr Óskarsdóttir
  • 1458 Björg Hermannsdóttir
  • 1578 Elísa Sveinsdóttir
  • 1650 Bettý Freyja Ásmundsdóttir
  • 1684 Þórunn Katrín Björgvinsdóttir
  • 1842 Brynja María Bjarnadóttir
  • 2028 Thelma Ósk Björgvinsdóttir
  • 2089 Snædís Líf Pálmarsdóttir
  • 2324 Thelma Rún Guðjónsdóttir
  • 2407 Lydia Kearney
  • 2410 Hrund Scheving
  • 2477 Salka Katrinsdóttir
  • 2556 Snædis Ómarsdóttir
  • 2592 Hugrún Björk Jörundardóttir
  • 2684 E.Linda Helgadóttir
  • 2892 Elísabet Valsdóttir
  • 2902 Íris Björnsdóttir
  • 2943 Harpa Þrastardóttir
  • 2974 Þórhildur Þórarinsdóttir
  • 3017 Tinna Maren Ölversdóttir
  • 3127 Guðbjörg Ósk Omarsdóttir
  • 3142 Viktoría Rós Guðmundsdóttir
  • 3339 Karen Ruth Hákonardóttir
  • 3431 Kristín Björgvinsdóttir
  • 3448 Guðrún Gestsdóttir
  • 3455 Birta Hafþórsdóttir
  • 3525 Sólrún Kristjánsdóttir
  • 3533 Þórhildur Ólöf Sveinbjörnsdóttir
  • 3632 Katrín Eva Pálmadóttir
  • 3702 Elín Björnsdóttir
  • 3721 Eva Dagsdóttir
  • 3891 Andrea Olsen
  • 3908 Þórhildur Kristbjörnsdóttir
  • 3955 Bergrún Gestsdóttir
  • -
  • Íslenskir karlar í fjórðungsúrslitunum:
  • 12 Björgvin Karl Guðmundsson
  • 97 Hafsteinn Gunnlaugsson
  • 99 Ægir Björn Gunnsteinsson
  • 232 Alex Daði Reynisson
  • 282 Halldór Karlsson
  • 358 Ragnar Ingi Klemenzson
  • 404 Birkir Örn Kristjansson
  • 442 Bjarni Leifs
  • 444 Þorri Þorláksson
  • 468 Magnús Aron Sigurdsson
  • 521 Davíð Björnsson
  • 526 Axel Guðni Sigurdsson
  • 556 Þorbjörn Þórðarson
  • 566 Þröstur Ólason
  • 595 Viktor Ólafsson
  • 632 Fannar Hafsteinsson
  • 717 Tryggvi Logason
  • 791 Lini Linason
  • 811 Ingimar Jónsson
  • 916 Benedikt Karlsson
  • 942 Eiríkur Baldursson
  • 957 Finnbogi Leifsson
  • 999 Frederik Ægidius
  • 1006 Helgi Arnar Jonsson
  • 1122 Baldvin Magnusson
  • 1184 Hilmar Arnarson
  • 1315 Garðar Karl Ólafsson
  • 1328 Sindri Freysson
  • 1360 Guðmundur Gunnarsson
  • 1758 Böðvar Tandri Reynisson
  • 2234 Adam Jarron
  • 2300 Þórir Geir Gudmundsson
  • 2350 Andreas Blensner
  • 2411 Ýmir Guðmundsson
  • 2429 Gisli Unnarsson
  • 2519 Rúnar Kristinsson
  • 2589 Sigurður Einarsson
  • 2709 Ari Tómas Hjálmarsson
  • 2925 Einar Hansberg
  • 2936 Daði Hlífarsson
  • 3133 Daði Heimisson
  • 3350 Ægir Reynisson
  • 3579 Haukur Færseth
  • 3622 Arnar Bjarki Kristjánsson
  • 3627 Mareks Perkons
  • 3636 Kristinn Jens Bjartmarsson
  • 3718 Hörður Ingi Helenuson
  • 3757 Þór Ríkharðsson
  • 3882 Sigmar Egill Baldursson
  • 4140 Benedikt Jónsson
  • 4151 Bergsveinn Hafliðason
  • 4296 Jóhann Friðrik Haraldsson
  • 4319 Óskar Örn Eyþórsson
  • 4490 Grimur Thor
  • 4621 Davíð Gunnarsson
  • 4870 Arngrímur Arngrímsson
  • 5112 Sigurður Seán Sigurðsson
  • 5130 Orri Davíðsson
  • 5203 Jón Kristján Jónsson
  • 5482 Bjarki Kristjansson
  • 5558 Magnus Grétar Kjartansson
  • 5729 Leifur Hardarson
  • 5824 Einar Guðni Guðjónsson
  • 5841 Gunnar Snær Þórðarson
  • 5847 Ásgeir Kristjánsson
  • 5855 Gunnar Karl Gunnarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×