Innlent

Meira en tvö hundruð kindur og geitur drápust í elds­voða

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Rúmlega 250 kindur og tíu til tuttugu geitur urðu eldinum að bráð í gær.
Rúmlega 250 kindur og tíu til tuttugu geitur urðu eldinum að bráð í gær. Vísir/Vilhelm

Tæplega þrjú hundruð dýr brunnu inni þegar eldur kom upp í fjárhúsi á bænum Unaósi við Hjaltastaðaþinghá laust eftir hádegi í gær. Slökkviliðsstjóri segir að enginn möguleiki hafi verið að bjarga dýrunum. 

Haraldur Geir Eðvaldsson slökkviliðsstjóri Múlaþings segir í samtali við fréttastofu að útkall hafi borist um klukkan 13 í gær. Þegar slökkvilið mætti á vettvang var fjárhúsið alelda. Slökkviliði tókst að koma í veg fyrir að eldur bærist í vélarskemmu sem stóð við hlið fjárhússins, en bæði fjárhúsið og sambyggð hlaða brunnu til kaldra kola.

Um 250 kindur og tíu til tuttugu geitur voru inn í fjárhúsinu þegar eldurinn kom upp og segir Haraldur að ekki hafi verið nokkur leið að bjarga þeim.

Slökkviliðið lauk vinnu á vettvangi um klukkan 22 í gærkvöldi en Haraldur segir mikið af heyi hafa verið í hlöðunni sem gerði aðstæður erfiðar.

Ekki er vitað um eldsupptök á þessu stigi en lögregla fer með rannsókn málsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×