Atvinnulíf

Sjö vís­bendingar um að þig skorti til­­finninga­­greind

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Síðustu árin hefur nokkuð verið um það fjallað hversu mikilvægur eiginleiki góð tilfinningagreind er í starfi. Nú þegar gervigreindin er sífellt meira farin að sýna getu sína á vinnumarkaði, er ekki úr vegi að skoða það aðeins hjá okkur sjálfum hvar við stöndum.
Síðustu árin hefur nokkuð verið um það fjallað hversu mikilvægur eiginleiki góð tilfinningagreind er í starfi. Nú þegar gervigreindin er sífellt meira farin að sýna getu sína á vinnumarkaði, er ekki úr vegi að skoða það aðeins hjá okkur sjálfum hvar við stöndum. Vísir/Getty

Tilfinningagreind er sagt eitt af þeim lykilatriðum sem sífellt verður mikilvægari hjá starfsfólki. Ekki síst nú þegar gervigreindin er fyrir alvöru að sýna sig á vinnumarkaði og á án efa eftir að skáka mörgum handtökunum.

Tilfinningagreind felur í sér að vera opin fyrir eigin og annarra tilfinningum ásamt því að kunna að meta tilfinningar í umhverfinu, setja þærí samhengi og hafa stjórn á tilfinningum,“ segir Guðrún Snorradóttir stjórnendaþjálfi meðal annars um tilfinningagreind í viðtali við Atvinnulífið fyrir nokkru.

En ef tilfinningagreind er svona mikilvæg sem eftirsóttur eiginleiki, hvernig getum við áttað okkur á því hvort okkur skorti tilfinningagreind eða ættum að horfa til þess að efla hana hjá okkur?

Hér eru sjö atriði sem við getum horft til sem vísbendingar um að við ættum að reyna að efla tilfinningagreindina okkar í starfi:

  1. Þér finnst oft eins og annað fólk eigi erfitt með að skilja hvað þú átt við.
  2. Þér finnst oft eins og það sé öðrum að kenna ef eitthvað fer úrskeiðis.
  3. Þú átt ekki auðvelt með að lesa í fólk og átta þig á því hvernig það er.
  4. Þú ert oft svekkt/ur yfir því að fólk skilji þig ekki betur.
  5. Þú ert oft hissa á því sem þú heyrir um eða kemst að um annað fólk (sbr. þú átt erfitt með að lesa í fólk sjálf/ur)
  6. Samkennd er þér ekki eðlislæg, að finna til með öðrum eða að samgleðjast með öðrum.
  7. Þú átt ekki auðvelt með að tengjast öðru fólki nánum böndum.

Það er margt jákvætt sem getur fylgt því að efla tilfinningagreindina okkar. Ekki aðeins í vinnunni eða fyrir starfsframann. Því almennt getur það hjálpað okkur í samskiptum, við eigum auðveldara með að vinna með öðru fólki og erum líklegri til að mynda ný vinatengsl. Já, okkur fer að ganga betur og líða betur...

Það erfiða er að sumum einstaklingum sem skortir tilfinningagreind finnst þeir almennt alltaf hafa rétt fyrir sér, það sé því frekar annarra að breyta hjá sér. Með öðrum orðum: Þeir upplifa sjálfan sig sem miðpunkt alheimsins og það sem allt á að snúast í kringum. En þá er gott að muna að í öllu þarf alltaf tvo til að dansa tangó... 


Tengdar fréttir

Gervi­greind fram­leiddi heila aug­lýsinga­her­ferð Advania

Ný auglýsingaherferð Advania var gerð af gervigreind. Allt ferlið tók einungis fjóra daga og er meira að segja rödd herferðarinnar gervigreind. Kostnaður við gerð auglýsinganna var aðeins brota brot af því sem slík herferð hefði annars kostað. 

Fólk farið að nota OpenAl gervi­greindina í sam­tals­með­ferðum

Á dögunum sagði Stöð 2 frá því að fyrir forvitnissakir hefði gervigreind verið notuð til að semja stutta kynningu fyrir Ísland í dag. Vísað var í forritið ChatGPT á vegum fyrirtækisins OpenAI sem á síðastliðnum vikum hefur vægast sagt verið að slá í gegn víðs vegar um heiminn.

Gervigreind samdi kynningu fyrir Ísland í dag

Fyrir forvitnissakir var gervigreind fengin til að semja stutta kynningu á miðvikudagsþætti Íslands í dag í vikunni. Forritið ChatGPT á vegum bandaríska fyrirtækisins OpenAI hefur vakið mikla athygli notenda, einkum fyrir glettilega færni þess við að setja saman texta.

Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar

Aukinn sveigjanleiki í starfi hefur svo sannarlega fengið nýja merkingu í kjölfar Covid. Fjarvinna að öllu leyti eða að hluta er komin til að vera og nú er talað um „hybrid” fyrirkomulagið, eða hið blandaða fyrirkomulag, þar sem mörg störf verða unnin í bland: Í fjarvinnu og á vinnustaðnum. Þetta breytta vinnuumhverfi, auk aukinnar sjálfvirknivæðingar, kallar á nýjar hæfniskröfur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×