Lífið

Stutt­hærð Hail­ey Bieber setur tóninn fyrir hár­tísku ársins 2023

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Tískufyrirmyndin Hailey Bieber er orðin stutthærð.
Tískufyrirmyndin Hailey Bieber er orðin stutthærð. Instagram-Getty/Gotham

Stutt hár virðist ætla að vera það heitasta í hártískunni á nýju ári ef marka má erlend tískublöð og tískugyðjuna Hailey Bieber. Eins og við vitum verður allt sem frú Bieber gerir að tískubylgju en í vikunni frumsýndi hún nýja klippingu, svokallaða bob klippingu sem nær rétt niður fyrir kjálka.

Í byrjun árs höfðu erlend tískublöð á borð við Glamour spáð því að stutt hár ætti eftir að vera eitt það heitasta í hártískunni árið 2023.

„Ég held að þörfin fyrir nýtt upphaf og að ýta aðeins á refresh takkann eftir þessi krefjandi ár sem við eigum að baki eigi eftir að ýta undir þá löngun að klippa á okkur hárið. Stuttar klippingar og bob klippingar eiga eftir að vera eftirsóttustu klippingarnar,“ segir Dionne Smith, hárgreiðslukona fræga fólksins, í samtali við Glamour.

Stjörnur á borð við Zendayu, Margot Robbie og Taylor Swift hafa skartað bob klippingum á síðustu árum.Getty/Jeff Kravitz-Stephane Cardinale-Steve Granitz

Stutt bob klipping í einni sídd það heitasta

Hárgreiðslumaðurinn Paul Percival, sem hefur klippt stjörnur á borð við Victoriu Beckham, tekur undir þetta. Hann segir jafnframt að bob klippingarnar eigi eftir að verða ennþá styttri en við höfum séð síðustu ár.

Í síðustu viku tók Vísir saman lista yfir heitustu trend ársins 2023. Þar nefndi hárgreiðslukonan Íris Lóa einmitt stuttar klippingar á borð við pixie og bob klippingar.

Þegar fólk hugsar um bob klippingu þá ímyndar það sér hugsanlega stutta klippingu þar sem hárið er styttra að aftan og síðara að framan, svolítið í anda Victoriu Beckham. Stjörnuhárgreiðslumaðurinn Tommy Buckett segir hins vegar að nú sé það heitasta að vera með bob klippingu þar sem hárið er allt í einni sídd.

„Nú mun bókstaflega hver einasta stelpa klippa hárið sitt“

Hailey Bieber, ein helsta tískufyrirmyndin í dag, er að sjálfsögðu með puttann á púlsinum og frumsýndi einmitt slíka klippingu á TikTok síðu sinni í vikunni. „Úps,“ skrifaði Bieber undir myndbandið sem hefur þegar fengið um 6 milljónir áhorf.

„Núna mun bókstaflega hver einasta stelpa klippa hárið sitt,“ skrifar einn aðdáandi undir myndbandið. Fleiri aðdáendur taka undir þetta og segist einn aðdáandi spá því að eftir viku verði allar stelpur á TikTok komnar með stutt hár.


Tengdar fréttir

Förðunar­fræðingur Hail­ey Bieber leysir frá skjóðunni

Það má gera ráð fyrir því þessa dagana að allt sem fyrirsætan Hailey Bieber gerir verði að tískubylgju. Nýjasta æðið er sérstök förðunartækni sem förðunarfræðingur Bieber notast við þegar hún farðar hana.

Heitustu trendin fyrir 2023

Á ári hverju koma inn nýjar tískubylgjur á ólíkum sviðum og nýir TikTok dansar sem eru fólki mis auðveldir að læra. Lífið á Vísi fékk til sín fjölbreyttan hóp álitsgjafa til að reyna að komast að því hver heitustu trend ársins 2023 verða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×