Lífið

Bjarni Ben, Daníel Ágúst og Vig­dís Finn­boga skelltu sér í leik­hús

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Það var húsfyllir á frumsýningu leikritsins Mátulegir.
Það var húsfyllir á frumsýningu leikritsins Mátulegir. samsett

Leikritið Mátulegir var frumsýnt með pompi og prakt í Borgarleikhúsinu á föstudaginn. Það eru þeir Halldór Gylfason, Hilmir Snær Guðnason, Jörundur Ragnarsson og Þorsteinn Bachmann sem fara með hlutverk í þessari sviðsútgáfu af dönsku Óskarsverðlaunakvikmyndinni Druk.

Sýningin fjallar um fjóra menntaskólakennara á miðjum aldri sem ákveða að gera tilraun til að sannreyna kenninguna um að manneskjan sé fædd með of lítið áfengismagn í blóðinu - þeir eru lífsleiðir, staðnaðir í starfi og á góðri leið með að sigla einkalífinu í strand.

„Getur verið að áfengi sé í raun svarið við vandamálum þeirra, svarið við lífsgátunni? Mátulegir er grátbroslegt verk um leitina að lífsneistanum, lífsfyllingunni og þá refilstigu sem sú leit getur leitt mann á,“ segir um verkið.

Það var Þórdís Gísladóttir sem þýddi verkið sem er eftir Thomas Vinterberg. Það er sjálfur Borgarleikhússtjóri Brynhildur Guðjónsdóttir sem leikstýrir.

Það var húsfyllir á frumsýningu verksins þann 30. desember. Meðal gesta voru tónlistarmaðurinn Daníel Ágúst, Bjarni Ben, Áslaug Arna, Vigdís Finnbogadóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir og Þorvaldur Davíð.

Daníel Ágúst og Anna Kolfinna Kuran.Kristín Ásta Kristinsdóttir
Álfrún Örnólfsdóttir, Friðrik Friðriksson og Ása Richardsdóttir.Kristín Ásta Kristinsdóttir
Áslaug Arna, Nanna Kristín Tryggvadóttir og Bjarni Ben mættu ásamt fjölskyldumeðlimum.Kristín Ásta Kristinsdóttir
Vala Kristín Eiríksdóttir, Gunnar Gunnsteinsson, Rúnar Unnþórsson og Sigurþóra Bergsdóttir.Kristín Ásta Kristinsdóttir
Kristín Ögmundsdóttir framkvæmdastjóri Borgarleikhússins og Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri.Kristín Ásta Kristinsdóttir
Athafnakonan Marín Magnúsdóttir og Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar.Kristín Ásta Kristinsdóttir
Kristín Eysteinsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir og Egill Heiðar Anton Pálsson.Kristín Ásta Kristinsdóttir
Skarphéðinn Guðmundsson, Hrund Þrándardóttir og Skúli Helgason.Kristín Ásta Kristinsdóttir
Magnús Óskar, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Vigdís Finnbogadóttir og Ástríður Magnúsdóttir.Kristín Ásta Kristinsdóttir
Erlendur Svavarsson, Eva Bryndís Helgadóttir, Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, Magnús Geir Þórðarson, Auður Ýr Helgadóttir, Kjartan Örn Ólafsson og Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir.Kristín Ásta Kristinsdóttir
Salvör Nordal og Marta Nordal.Kristín Ásta Kristinsdóttir
Þorhildur Þorleifsdóttir og Stefán Baldursson.Kristín Ásta Kristinsdóttir
Feðginin Magdalena Björnsdóttir og Björn Jörundur.Kristín Ásta Kristinsdóttir
Mæðginin Helga Jóna Óttarsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson.Kristín Ásta Kristinsdóttir


Tengdar fréttir

Fjórtán frumsýningar í Borgarleikhúsinu

Þeir tvö hundruð starfsmenn, sem vinna í Borgarleikhúsinu munu hafa meira en nóg að gera í vetur því þar verða fjórtán leikrit frumsýnd, auk verka, sem hafa verið i gangi eins og Emil í Kattholti og Níu líf. Leikhússtjóri Borgarleikhússins segir leikhúsið ekki vera í samkeppni við Þjóðleikhúsið né önnur leikhús.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×