Lífið

Ingvar Þór og Sandra Björk eiga von á barni

Atli Ísleifsson skrifar
Ingvar Þór og Sandra Björk með mynd af erfingjanum.
Ingvar Þór og Sandra Björk með mynd af erfingjanum. Facebook

Ingvar Þór Björnsson, einn umsjónarmanna Morgunútvarpsins á Rás 2, og Sandra Björk Jónasdóttir þjóðfræðingur eiga von á barni.

Hinn 27 ára Ingvar Þór og hin 26 ára Sandra Björk greina frá þessu á Facebook í kvöld. 

„Gleðilegt árið! Spennt fyrir nýju ári og enn spenntari fyrir nýjum hlutverkum,“ segir í færslunni.

Ingvar segir í samtali við Vísi að þau séu himinlifandi með þetta allt saman og að von sé á erfingjanum í byrjun sumars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×