Viðskipti erlent

Bank­man-Fri­ed sam­þykkir að vera fram­seldur

Kjartan Kjartansson skrifar
Sam Bankman-Fried í viðtali við ABC-sjónvarpsstöðina. Hann hefur veitt nokkurn fjölda viðtala eftir fall FTX. Það þykir afar óvanalegt fyrir mann sóttur er til saka.
Sam Bankman-Fried í viðtali við ABC-sjónvarpsstöðina. Hann hefur veitt nokkurn fjölda viðtala eftir fall FTX. Það þykir afar óvanalegt fyrir mann sóttur er til saka. AP/ABC News/Good Morning America

Lögmaður Sams Bankman-Frieds, stofnanda FTX, segir hann tilbúinn að svara til saka í Bandaríkunum vegna falls rafmyntakauphallarinnar. Undirbúningur að framsali hans til Bandaríkjanna hefjist nú.

Bankman-Fried er í varðhaldi í Nassá á Bahamaeyjum þar sem hann var handtekinn í byrjun síðustu viku. Hann sagðist upphaflega ætla að streitast gegn framsali til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir fjársvik, peningaþvætti og brot á lögum um framlög til stjórnmálaflokka. New York Times segir að hann hafi nú fallist á að vera framseldur til heimalandsins eftir ruglingslegan dag í dómsal í gær.

Jerone Roberts, einn bahameyskra lögmanna Bankman-Frieds, segir skjólstæðing sinn hafa fallist á framsalið að fúsum og frjálsum vilja, þvert á eindregnar ráðleggingar lögmanna sinna. Lögmennirnir séu þegar byrjaðir að undirbúa framsalsgögnin.

„Herra Bankman-Fried vill bæta viðskiptavinum þetta og það er ástæðan fyrir ákvörðun hans,“ segir Roberts við bandaríska dagblaðið.

Trillað fram og til baka

Ákvörðunina kynnti Roberts eftir að Bankman-Fried hafði verið trillað fram og til baka á milli dómsals og fangaklefa síns í gær. Upphaflega átti að taka mál hans fyrir til þess að hann gæti lýst því yfir að hann legðist ekki gegn framsali en Roberts krafðist síðar að fá að ræða nánar við skjólstæðing sinn og upplýsa hann betur um stöðu sína.

Bankman-Fried er sakaður um að hafa notað milljarða dollara af innistæðum viðskiptavina FTX til þess að fjármagna Alameda Research, rafmyntavogunarsjóð sinn, kaupa lúxusfasteignir, fjárfesta í öðrum fyrirtækjum og láta fé af hendi rakna til stjórnmálaframboða. Saksóknarar halda því fram að hann hafi beitt viðskiptavini, fjárfesta og lánadrottna blekkingu allt frá stofnun FTX.

FTX var tekið til gjaldþrotameðferðar í síðasta mánuði í kjölfar bráðrar lausafjárþurrðar. Viðskiptavinir kauphallarinnar gerðu áhlaup og drógu út innistæður upp á milljarða dollara eftir að fregnir af óheilbrigðu sambandi FTX og Alameda Research byrjuðu að kvisast út.

Binance, stærsta rafmyntakauphöll heims, ætlaði á tímabili að skera FTX úr snörunni en ekkert varð úr því. Kastljós eftirlitsstofnana virðist nú einnig beinast að Binanace.Vísir/Getty

Saksóknarar skoða stærsta keppinautinn

Fall FTX hefur skekið undirstöður rafmyntaiðnaðarins og fleiri fyrirtæki hafa farið á hausinn síðan. 

Saksóknarar í Bandaríkjunum eru ennfremur sagðir með mögulegt mál í höndunum gegn Binance, stærstu rafmyntakauphöll heims. Fyrirtækið stöðvaði tímabundið úttektir á rafmyntum á dögnum en það segir að viðskiptavinir hafi tekið út sex milljarða dollara á þremur sólarhringum. 

Reuters-fréttastofan sagði frá því í vikunni að fjármál Binance væru algerlega ógegnsæ. Sem einkafyrirtæki þarf það ekki að birta upplýsingar um fjárreiður sínar opinberlega. Það hafi raunar ekki veitt utanaðkomandi innsýn í reksturinn frá því að það fékk síðast nýja fjárfesta til liðs við sig árið 2018.

Þá neitar fyrirtækið að upplýsa hvar höfuðstöðvar þess eru og stjórnendur hafa markvisst reynt að koma því undan vökulum augum eftirlitsstofnana.


Tengdar fréttir

Rann­saka kosninga­fram­lög FTX-for­kólfa

Bandarískir alríkissaksóknarar eru nú sagðir beina sjónum sínum að framlögum stjórnenda rafmyntafyrirtækisins FTX í kosningasjóði stjórnmálamanna. Þeir voru einir stærstu fjárhagslegu bakhjarlar flokkanna tveggja fyrir þingkosningarnar í síðasta mánuði.

„Gamal­dags fjár­dráttur“ hjá FTX

Skiptastjóri fallna rafmyntafyrirtækisins FTX segir að það sem átti sér stað innan þess hafi ekki verið neitt flóknara en „gamaldags fjárdráttur“. Sam Bankman-Fried, stofnandi FTX, er ákærður fyrir fjársvik og peningaþvætti.

Fallni raf­mynta­kóngurinn segist engin svik hafa framið

Sam Bankman-Fried, fyrrverandi forstjóri fallna rafmyntafyrirtækisins FTX, fullyrti að hann hefði ekki reynt að féfletta neinn þegar hann kom fram opinberlega í fyrsta skipti eftir gjaldþrotið í gær. Hann segist hvorki óttast saka- né skaðabótamál.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×