Grænlendingar breyta klukkunni á næsta ári Atli Ísleifsson skrifar 25. nóvember 2022 07:42 Frá grænlensku höfuðborginni Nuuk. Getty Klukkunni verður breytt á Grænlandi á næsta ári og verður tekið upp nýtt tímabelti sem kallast UTC-2.
Með breytinginni færist Grænland klukkutíma nær Evrópu og þar með Danmörku og einum klukkutíma fjær Norður-Ameríku. Þannig verður þriggja tíma munur í báðar áttir, þó að tveimur tímum komi til með að muna á klukkunni í Grænlandi og á Íslandi. Þetta var ákveðið eftir að grænlenska þingið samþykkti tillögu landsstjórnar þessa efnis. Málið hefur lengi verið til meðferðar í þingnefnd. Ástæða þess að málið hefur lengi verið til meðferðar í þinginu er að stjórnmálamenn hafa um nokkurt skeið haft áhyggjur af því hvaða áhrif breyting sem þessi muni hafa á lýðheilsu. Breytingin mun hafa það í för með sér að það verði myrkur lengur á morgnana og sömuleiðis síðdegis og kvöldin. Í frétt Sermitsiaq.AG segir að ekki hafi verið framkvæmd rannsókn á Grænlandi á því hvaða áhrif þetta kunni að hafa þó að litið hafi verið til rannsókna á Íslandi. Breytingin mun taka gildi þann 25. mars næstkomandi klukkan 22 þegar sumartími gengur í garð og tímabeltið UTC-2 verður tekið upp. Ólíkt því sem verið hefur mun vetrartími svo ekki taka gildi í október 2023.
Grænland Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira