2 dagar í Idol: „Það er alltaf þetta extra sem maður er að leita að“ Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 23. nóvember 2022 15:30 Daníel Ágúst Haraldsson segist reyna að vera hreinskilinn í dómarahlutverkinu og leyfa innsæinu að ráða. Vísir/Vilhelm „Ég er ekki meðvirkur dómari. Ég reyni að vera eins hreinskilinn og ég get og láta iðrin og tilfinningarnar sjá um að dæma,“ segir tónlistarmaðurinn Daníel Ágúst Haraldsson, einn af Idol dómurunum fjórum. Eftir langa bið mun Idol loksins hefja göngu sína á föstudaginn. Mikil eftirvænting er fyrir fyrsta þætti, enda hefur keppnin ekki verið haldin hér á landi í þrettán ár. Dómnefndin er ekki af verri endanum en hana skipar Daníel Ágúst ásamt Birgittu Haukdal, Bríeti og Herra Hnetusmjör. Daníel Ágúst var gestur Ómars Úlfs á X977 þar sem hann fór yfir dómarahlutverkið og hvað það er sem keppendur þurfa að hafa til þess að fá „já“ frá honum. Daníel Ágúst segist ekki vera meðvirkur dómari.Vísir/Vilhelm Góð framkoma er galdur sem ekki allir eru jafn góðir í „Fólk þarf að sjálfsögðu að geta sungið. Það að koma fram er náttúrlega einhvers konar galdur, sumir eru góðir í því og aðrir eru ekki eins góðir. En það er alltaf þetta extra sem maður er að leita að, að maður heillist að flutningnum, það sé einhver sál í þessu og það sé einhver meining og eitthvað á bak við þetta.“ Daníel segist ekki vera meðvirkur dómari. Hann er þó meðvitaður um það að fyrirtaks söngvarar geti átt slæman dag eða látið stressið yfirtaka sig í sjálfum prufunum. Hann segist því leyfa keppendum að njóta vafans upp að vissu marki og treystir innsæinu þegar kemur að því að gefa keppendum tækifæri. „Ef það er eitthvað sem við teljum að fólk eigi inni þá viljum við að sjálfsögðu fá að komast að því og láta fólk skína.“ Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Daníel Ágúst í heild sinni. Idol verður á Stöð 2 á föstudagskvöldum í vetur. Fleiri hundruð söngvarar spreyttu sig í áheyrnaprufunum en að lokum mun einn standa uppi sem sigurvegari. Fyrsti þáttur fer í loftið föstudagskvöldið 25. nóvember. Idol Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir 3 dagar í Idol: Mun koma áhorfendum á óvart hvaða dómari er harðastur við keppendur „Ég get sagt það með mjög góðri samvisku að fólk á von á góðu. Efniviðurinn er frábær. Það er svo langt síðan þetta var síðast,“ segir Idol kynnirinn Sigrún Ósk sem var gestur í Bítinu í gær. 22. nóvember 2022 09:01 4 dagar í Idol: Sextán ára Emmsjé Gauti heillaði dómara en átti ekki heima í Idol Það eru ekki allir sem vita að Emmsjé Gauti, einn allra vinsælasti rappari Íslands, reyndi fyrir sér í Idol Stjörnuleit þegar hann var aðeins sextán ára gamall. 21. nóvember 2022 09:02 5 dagar í Idol: Svíður enn að hafa tilkynnt rangan keppanda Þau eru ansi stór fótsporin sem þau Aron Mola og Sigrún Ósk þurfa að feta í í nýrri þáttaröð Idol sem hefur göngu sína á föstudaginn. Kynnarnir Simmi og Jói settu mikinn svip á fyrri þáttaraðir, svo mikinn að þeir voru notaðir sem fordæmi fyrir Idol kynna í öðrum löndum. 20. nóvember 2022 09:01 6 dagar í Idol: Reyndu fyrir sér í Idol áður en þær urðu Nylon stjörnur Það muna allir eftir stúlknasveitinni Nylon en sveitin var eitt vinsælasta stúlknaband sem Ísland hefur getið af sér. Það sem færri vita þó er að tvær af meðlimum Nylon, þær Alma og Steinunn, höfðu reynt fyrir sér í Idol Stjörnuleit áður en Nylon var stofnuð. 19. nóvember 2022 09:02 Mest lesið Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið La Gradiva hlaut Gullna lundann Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Sjá meira
Eftir langa bið mun Idol loksins hefja göngu sína á föstudaginn. Mikil eftirvænting er fyrir fyrsta þætti, enda hefur keppnin ekki verið haldin hér á landi í þrettán ár. Dómnefndin er ekki af verri endanum en hana skipar Daníel Ágúst ásamt Birgittu Haukdal, Bríeti og Herra Hnetusmjör. Daníel Ágúst var gestur Ómars Úlfs á X977 þar sem hann fór yfir dómarahlutverkið og hvað það er sem keppendur þurfa að hafa til þess að fá „já“ frá honum. Daníel Ágúst segist ekki vera meðvirkur dómari.Vísir/Vilhelm Góð framkoma er galdur sem ekki allir eru jafn góðir í „Fólk þarf að sjálfsögðu að geta sungið. Það að koma fram er náttúrlega einhvers konar galdur, sumir eru góðir í því og aðrir eru ekki eins góðir. En það er alltaf þetta extra sem maður er að leita að, að maður heillist að flutningnum, það sé einhver sál í þessu og það sé einhver meining og eitthvað á bak við þetta.“ Daníel segist ekki vera meðvirkur dómari. Hann er þó meðvitaður um það að fyrirtaks söngvarar geti átt slæman dag eða látið stressið yfirtaka sig í sjálfum prufunum. Hann segist því leyfa keppendum að njóta vafans upp að vissu marki og treystir innsæinu þegar kemur að því að gefa keppendum tækifæri. „Ef það er eitthvað sem við teljum að fólk eigi inni þá viljum við að sjálfsögðu fá að komast að því og láta fólk skína.“ Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Daníel Ágúst í heild sinni. Idol verður á Stöð 2 á föstudagskvöldum í vetur. Fleiri hundruð söngvarar spreyttu sig í áheyrnaprufunum en að lokum mun einn standa uppi sem sigurvegari. Fyrsti þáttur fer í loftið föstudagskvöldið 25. nóvember.
Idol verður á Stöð 2 á föstudagskvöldum í vetur. Fleiri hundruð söngvarar spreyttu sig í áheyrnaprufunum en að lokum mun einn standa uppi sem sigurvegari. Fyrsti þáttur fer í loftið föstudagskvöldið 25. nóvember.
Idol Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir 3 dagar í Idol: Mun koma áhorfendum á óvart hvaða dómari er harðastur við keppendur „Ég get sagt það með mjög góðri samvisku að fólk á von á góðu. Efniviðurinn er frábær. Það er svo langt síðan þetta var síðast,“ segir Idol kynnirinn Sigrún Ósk sem var gestur í Bítinu í gær. 22. nóvember 2022 09:01 4 dagar í Idol: Sextán ára Emmsjé Gauti heillaði dómara en átti ekki heima í Idol Það eru ekki allir sem vita að Emmsjé Gauti, einn allra vinsælasti rappari Íslands, reyndi fyrir sér í Idol Stjörnuleit þegar hann var aðeins sextán ára gamall. 21. nóvember 2022 09:02 5 dagar í Idol: Svíður enn að hafa tilkynnt rangan keppanda Þau eru ansi stór fótsporin sem þau Aron Mola og Sigrún Ósk þurfa að feta í í nýrri þáttaröð Idol sem hefur göngu sína á föstudaginn. Kynnarnir Simmi og Jói settu mikinn svip á fyrri þáttaraðir, svo mikinn að þeir voru notaðir sem fordæmi fyrir Idol kynna í öðrum löndum. 20. nóvember 2022 09:01 6 dagar í Idol: Reyndu fyrir sér í Idol áður en þær urðu Nylon stjörnur Það muna allir eftir stúlknasveitinni Nylon en sveitin var eitt vinsælasta stúlknaband sem Ísland hefur getið af sér. Það sem færri vita þó er að tvær af meðlimum Nylon, þær Alma og Steinunn, höfðu reynt fyrir sér í Idol Stjörnuleit áður en Nylon var stofnuð. 19. nóvember 2022 09:02 Mest lesið Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið La Gradiva hlaut Gullna lundann Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Sjá meira
3 dagar í Idol: Mun koma áhorfendum á óvart hvaða dómari er harðastur við keppendur „Ég get sagt það með mjög góðri samvisku að fólk á von á góðu. Efniviðurinn er frábær. Það er svo langt síðan þetta var síðast,“ segir Idol kynnirinn Sigrún Ósk sem var gestur í Bítinu í gær. 22. nóvember 2022 09:01
4 dagar í Idol: Sextán ára Emmsjé Gauti heillaði dómara en átti ekki heima í Idol Það eru ekki allir sem vita að Emmsjé Gauti, einn allra vinsælasti rappari Íslands, reyndi fyrir sér í Idol Stjörnuleit þegar hann var aðeins sextán ára gamall. 21. nóvember 2022 09:02
5 dagar í Idol: Svíður enn að hafa tilkynnt rangan keppanda Þau eru ansi stór fótsporin sem þau Aron Mola og Sigrún Ósk þurfa að feta í í nýrri þáttaröð Idol sem hefur göngu sína á föstudaginn. Kynnarnir Simmi og Jói settu mikinn svip á fyrri þáttaraðir, svo mikinn að þeir voru notaðir sem fordæmi fyrir Idol kynna í öðrum löndum. 20. nóvember 2022 09:01
6 dagar í Idol: Reyndu fyrir sér í Idol áður en þær urðu Nylon stjörnur Það muna allir eftir stúlknasveitinni Nylon en sveitin var eitt vinsælasta stúlknaband sem Ísland hefur getið af sér. Það sem færri vita þó er að tvær af meðlimum Nylon, þær Alma og Steinunn, höfðu reynt fyrir sér í Idol Stjörnuleit áður en Nylon var stofnuð. 19. nóvember 2022 09:02