Innlent

Styrkja en tryggja ekki fólk með sykursýki: „Gerið betur, í alvöru talað“

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Þórhildur Þorkelsdóttir er ein þeirra sem gagnrýndi færslu Varðar í gær.
Þórhildur Þorkelsdóttir er ein þeirra sem gagnrýndi færslu Varðar í gær.

Færsla sem tryggingarfélagið Vörður birti á samfélagsmiðlum í gær fór öfugt ofan í marga sem þjást af sykursýki. Alþjóðlegur dagur sykursýki var í gær og Vörður minnti af því tilefni á Dropann, styrktarfélag barna sem greinst hafa með sykursýki. „Við látum okkur þetta málefni varða og styrkjum Dropann með stolti“, segir í færslu Varðar. Félagið tryggir hins vegar hvorki börn né fullorðna með sykursýki. 

Þórhildur Þorkelsdóttir, kynningarstjóri BHM og hlaðvarpsstjórnandi, er ein af þeim sem tjáði sig um færsluna á samfélagsmiðlum. Sjálf hefur Þórhildur verið með sykursýki 1 í átján ár.

„Það er gott og blessað að þau styrki Dropann en þarna fer hljóð og mynd ekki saman, ef þetta væri eitthvað sem tryggingarfélagið myndi raunverulega láta sig varða myndi það endurskoða þessa afstöðu sína og úrelta skilmála fyrir líf-og sjúkdómatryggingu fyrir fólk með sykursýki 1. Glatað að slá um sig með þessum hætti og það á alþjóðadegi sykursýki.

Gerið betur, í alvöru talað,“ segir Þórhildur á Instagram-síðu sinni í gærkvöldi.

Þórhildur Þorkelsdóttir hefur glímt við sykursýki í átján árAðsend

Í samtali við fréttastofu segir Þórhildur að hún hafi reglulega hringt í tryggingarfélög landsins til að kanna þessi mál. Hún segist alltaf lenda á vegg og enginn vilji virðist vera hjá tryggingarfélögum til að endurskoða þessa afstöðu.

Úreltir skilmálar

Þórhildur segir færsluna hjá Verði hafa slegið sig mjög undarlega.

„Þetta er ákveðinn hvítþvottur. Að tala með þessum hætti um sjúkdóm sem þau tryggja ekki einu sinni hljóta allir að sjá að er fáránlegt,“ segir hún.

Þórhildur segir skilmálana úrelta og setur spurningamerki við að sjúkdómarnir sykursýki 1 og 2 séu sett undir sama hatt, þar sem í raun sé um sitthvorn sjúkdóminn að ræða.

„Einstaklingar með sykursýki eru oft mun heilsuhraustari en aðrir og á sama tíma og meðferð í tækni hefur fleygt fram er enginn vilji hjá tryggingarfélögum til að endurskoða afstöðu sína,“ segir hún.

„Dapurt“ að mati framkvæmdastjóra

Sigurður Óli Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Varðar, segist ekki hafa vitað af færslunni fyrr en fréttastofa hafði samband vegna málsins. „Ég hafði ekki hugmynd um þetta, kem ekki nálægt markaðsmálum. Það sem gerðist er að jú, við erum að styrkja þessi samtök og markaðsdeildin póstar því eins og fyrirtæki gera oft. Svo koma einhver komment,“ segir Sigurður.

Sigurður segist að honum finnist dapurt málið sé sett í slíkt samhengi. „Mér skilst að við séum búin að styrkja Dropann í mörg ár. Ég veit reyndar ekkert um umfangið. En þetta er dapurt og hlýtur að leiða til þess að fólk hugsi hvort þetta sé góð og gild starfsemi, og hvort við eigum að halda áfram að styrkja þetta.“

Ekkert samhengi þarna á milli

Sigurður segir ekkert samhengi vera á milli þess hvaða styrki Vörður veiti eða hverja félagið tryggi. „Það gilda reglur, okkar eigin reglur náttúrulega, um tryggingartöku. Sykursýki 1 er metin sem ólæknanlegur sjúkdómur með fjölþættar afleiðingar fyrir þá sem þjást af honum. Gögn sem við erum með segja að ekki sé hægt að líf- og sjúkdómatryggja fólk með sykursýki 1. Við vildum gjarnan hafa það öðruvísi.“

Sigurður Óli Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Varðar.

Sigurður segist þó skilja gagnrýnina að vissu leyti. „Ég skil vel að fólki finnist það slæmt, og finnist það miður, að geta ekki keypt sér tryggingar séu þau haldin ákveðnum sjúkdómum. Mér finnst líka dapurt að fólk geti ekki gert það. En staðreyndin er því miður sú að sumir sjúkdómar eru ekki tryggingartækir. Mér finnst dapurt að tengja þetta saman, við erum bara að reyna láta gott af okkur leiða til þessara samtaka,“ segir Sigurður Óli Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Varðar.

Tímasetningin umhugsunarverð

Fríða Bragadóttir, formaður Diabetes Ísland, segist ekki vilja gera lítið úr því að Vörður styrki Dropann, það sé þakkarvert. Hún segist þó vita til þess að tímasetningin hafi farið öfugt ofan í marga.

„Vissulega er umhugsunarvert að þeir velji þennan dag til að í raun slá um sig með þessum hætti, á sama tíma og þeir vilja ekki þjónusta þetta fólk. Það er mjög sérstakt,“ segir Fríða.

Færsla sem Vörður birti í gær fór öfugt ofan í marga.

Hún segir félagið árum saman hafa reynt að gera athugasemdir við þetta fyrirkomulag hjá tryggingarfélögunum. 

„Það er búið að breyta þessu á Norðurlöndum. Þar getur fólk með sykursýki keypt tryggingu en það er ekkert félag á Íslandi sem býður upp sjúkdómatryggingu. Reyndar er hægt að fá líftryggingu hjá einhverjum félögum en það kostar margfalt meira fyrir fólk með sykursýki en aðra. Og það er ekki hægt að fá greidda út tryggingu ef hægt er að tengja andlát við sjúkdóminn á einhvern minnsta mögulega hátt.“

„Ofboðslega taktlaus póstur“

Þónokkrir hafa ritað athugasemdir við færslu Varðar og segja má að þær séu ekki sérstaklega jákvæðar.

 „Þegar farið er inn á heimasíðuna ykkar mætir manni línan „Tryggjum allt sem skiptir máli.“ Nema bara ekki börn eða fullorðna með sykursýki, ofboðslega taktlaus póstur frá ykkur,“ segir í einni athugasemdinni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×