Innlent

Vinstri græn vilji bara vera inni í herberginu þegar góssinu sé skipt

Jakob Bjarnar skrifar
Katrín Jakobsdóttir og Bjarni Benediktsson. Stjórnarandstæðingar sæta nú færis og hella sér yfir ríkisstjórnina og ríkisstjórnarsamstarfið í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðanda. 
Katrín Jakobsdóttir og Bjarni Benediktsson. Stjórnarandstæðingar sæta nú færis og hella sér yfir ríkisstjórnina og ríkisstjórnarsamstarfið í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðanda.  vísir/vilhelm

Greina má mikil viðbrögð og hörð á samfélagsmiðlum vegna efnis skýrslu Ríkisendurskoðanda um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Lausleg athugun leiðir í ljós að stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar; Vg-liðar, Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn eru venju fremur þöglir. Þeir hafa að því er virðist sáralítinn sem engan áhuga á því að viðra skoðanir sínar á skýrslunni. Andstæðingar ríkisstjórnarinnar sæta hins vegar færis.

Hversu mikla spillingu mannskepnan þolir

Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, kemur úr þeirri áttinni; einn þeirra fjölmörgu sem hefur tjáð sig um málið á Facebook-síðu sinni. Að hætti hússins:

„Félagssálfræðileg tilraun á landsmönnum heldur áfram, um hversu mikið þol mannskepnan hefur fyrir vanhæfni og spillingu Sjálfstæðisflokksins,“ segir Gunnar Smári sem á ekki í nokkrum vandræðum með að greina efni skýrslunnar og túlka.

Gunnar Smári Egilsson er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum.vísir/vilhelm

Gunnar Smári segir kerfið er þannig að þeir sem sýnt hafa mikið þol gagnvart spillingu færist upp í Framsókn eða Vg. 

„Þau sem virðast njóta spillingar og telja fúsk til eftirbreytni færast alla leið upp í Sjálfstæðisflokkinn. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup eru 24% landsmanna gerspillt og 22% til viðbótar láta sér hana vel lynda.“

Gunnar Smári segir afstöðu Vg-fólks magnaða: „Ég er á móti spillingu en ég styð hana til valda ef ég fæ að vera inn í herberginu þegar spillingarmennirnir skipta góssinu sín á milli.“

Hver græðir á lekanum?

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, kemur inn á einn þátt málsins er varðar leka skýrslunnar til fjölmiðla sem hefur verið til umfjöllunar í morgun. Það er áður en skýrslan kom til umfjöllunar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

„Við skulum öll vera meðvituð um að það er bara einn stjórnmálamaður sem hefur hag af því að leka bankaskýrslunni fyrir kynningu Ríkisendurskoðunar sólarhringi seinna,“ segir Helga Vala á Twitter.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, gefur reyndar minna en ekkert fyrir þennan trúnað og þennan umrædda leka.

„Æi, þetta er nú ekkert rosalegur trúnaður. Þessi „trúnaður“ var settur upp fyrir þingmenn þannig að það væri ekki verið að reka hljóðnema upp í andlitið á þeim áður en þau hefðu tækifæri til þess að lesa skýrsluna.“

Björn Leví segir að áður fyrr hafi ríkisendurskoðun einfaldlega birt skýrslur opinberlega og það strax þegar þær voru tilbúnar. 

„Þannig að þetta er óttarlegt væl í forseta þingsins þarna. Ég hef ekki orðið mikið var við fréttir með viðtölum við ólesna þingmenn hvort sem er,“ segir Björn Leví og vísar í frétt Morgunblaðsins þar sem Birgir Ármannsson forseti þingsins segir trúnaðarrof á þingi mikil vonbrigði.

„Við þurfum að læra af þessu“

Illugi Jökulsson, rithöfundur og fjölmiðlamaður, þjófstartaði fyrirsjáanlegri umræðunni í gærkvöldi þegar hann sagði:

„Skýrslan um Íslandsbankasöluna verður birt á morgun. Katrín, Bjarni og Sigurður Ingi munu segja í einum kór: „Við þurfum öll að læra af þessu.“ Svo verður skipaður starfshópur um verklagsreglur. Ókei, búið.“

Illugi tók svo upp þráðinn í morgun og sagði meðal annars: 

„Bjarna Benediktssyni var falið það verkefni að selja hluta ríkisins í Íslandsbanka. Honum mátti vera ljóst hve gríðarlega mikilvægt væri að óaðfinnanlega tækist til (burtséð frá því hvort við vorum sammála því að selja eða ekki). En Bjarni klúðraði því. Hann klúðraði því algjörlega og á öllum sviðum.“

Illugi Jökulsson spáir afsökunarbeiðni, yfirlýsingu um að læra af málinu og svo verði skipaður starfshópur.Vísir/Vilhelm

Skýrslan verður kynnt fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í dag en ráðgert er að málið verði tekið til umræðu á þinginu á morgun. Nú eftir klukkustund mun Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mæta óvænta í dagskrárlið þingsins sem heitir óundirbúnar fyrirspurnir. Sú tilkynning kom ýmsum þingmönnum á óvart því ekki hafi staðið til að hann yrði neitt í óundirbúnum fyrirspurnartíma þingsins í þessari viku. 

En víst er að Bjarni stendur nú í ströngu og reynir allt hvað af tekur að slökkva elda sem nú loga vegna skýrslunnar.


Tengdar fréttir

Fjöl­þættir ann­markar á Ís­lands­banka­sölunni

Ríkisendurskoðun hefur lokið við skýrslu sína um söluna á Íslandsbanka og skilað til Alþingis. Skýrslan verður gerð opinber eftir fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins um hana á morgun. Í skýrslunni er fjallað um „fjölþætta annmarka“ á undirbúningi og framkvæmd sölunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×