Þeir sem voru taldir vera ógn, voru pyntaðir og teknir af lífi en þar á meðal voru sjálfboðaliðar í úkraínska hernum og óbreyttir borgarar grunaðir um að aðstoða herinn.
Minnst 450 lík hafa fundist í bænum, samkvæmt yfirvöldum í Bucha. Margt af þessu fólki hafði verið skotið til bana með hendur bundnar fyrir aftan bak.
Rússneskir hermenn voru hleraðir ræða þessi morð sín, sem þeir kölluðu „zachistka“ eða hreinsanir.
Vert er að vara við að myndefni og lýsingar í fréttinni geta vakið óhug.

AP fréttaveitan og rannsakendur þáttarins Frontline hjá PBS hafa rannsakað ódæðin í Bucha og segja Rússa einnig hafa beitt sambærilegum hreinsunum í öðrum ríkjum eins og Téténíu. Markmiðið sé að koma í veg fyrir mótspyrnu hjá hernumdu fólki.
Blaðamenn miðlanna skoðuðu meðal annars mikið magn upptaka úr öryggismyndavélum og hlustuðu á símtöl rússneskra hermanna frá Bucha.
Saksóknarar í Úkraínu hafa borið kennsl á herdeildina sem talin er hafa framið ódæðin og hafa lýst eftir tveimur yfirmönnum hennar.
Var sagt að þeim yrði tekið fagnandi
Þegar Rússar birtust fyrst við útjaðar Bucha þann 3. mars reyndu tiltölulega fámennur hópur sjálfboðaliða að halda aftur af þeim og hjálpa íbúum við að flýja. Þegar í ljós kom hve stór rússneska herdeildin var varð þeim ljóst að mótspyrna var að mestu tilgangslaus og flúðu margir þeir til Irpin.
Sumir urðu þó eftir í Bucha.

Rússnesku hermönnunum hafði verið sagt að allir íbúar Úkraínu myndu taka þeim fagnandi og ef ekki, væru þau líklega fasistar og skæruliðar. Á sama tíma og rússneskir hermenn voru að afhenda borgurum dósir með kjöti og tilkynna þeim að verið væri að frelsa þau undan oki nasista, voru aðrir að pynta og taka íbúa Bucha af lífi á götu úti.
Hermennirnir fóru einnig um bæinn og rændu hús. Þeir sögðu íbúum að þeir væru að leita að vopnum en íbúar segja þá hafa tekið verkfæri, heimilistæki, mat og áfengi.
Meðal þeirra sem voru myrt var Dmytro Chaplyhin, sem var tvítugur og var kallaður Dima. Rússneskir hermenn fundu myndir af skriðdrekum á síma hans og sökuðu hann um að hjálpa úkraínska hernum. Natalia Vlasenko, amma hans, reyndi að stöðva hermennina þegar þeir handsömuðu hann og voru að leiða hann á brott en þeir hótuðu að skjóta hana til bana.
Dima sagði ömmu sinni að vera róleg. Hann myndi koma aftur. Hún sá hann þó aldrei aftur.

Tóku dreng af lífi
Þegar sókn Rússa að Kænugarði var stöðvuð og mannfall Rússa jókst, héldu hermennirnir áfram að „hreinsa“ Bucha og nærliggjandi bæi. Þann 14. mars hringdi hermaður sem kallaður var Lyonya í móður sína í Rússlandi. Hann ræddi við hana um það að rússneskir hermenn hefðu skotið mikið af fólki í Bucha og lík borgara lægju á götum bæjarins.
Hún spurði hvort þeir hefðu verið friðsamir borgarar en við það sagði Lyonya að bardagar stæðu yfir. Það væri ekki hægt að taka neina sénsa.
Lyonya sagði frá því að hermenn hefðu stöðvað ungan dreng í Bucha og fundið upplýsingar um rússneska herinn á síma hans. Hann sagði drenginn hafa verið tekinn af lífi á staðnum.

Annar hermaður sem hringdi í móður sína sagði henni að hermönnunum væri alveg sama hverja þeir væru að skjóta. Hvort sem það væru börn, konur eða gamalt fólk. Ef einhver fyndist með vopn á heimili sínu, væri viðkomandi skotinn.
Hann sagði móður sinni frá því hvernig þeir fóru milli húsa og leituðu að vopnum, þvinguðu fólk til að afklæðast og skoðuðu síma þeirra. Ef eitthvað fannst sem þeim þótti óeðlilegt var fólkið þar skotið.
Sagði auðveldara að skjóta borgara drukkinn
Þann 21. mars hringdi hermaður sem hét Maksym í eiginkonu sína í Rússlandi. Hann sagði henni að hann og aðrir hermenn væru að drekka áfengi, því án þess væri of erfitt að vera þarna.
„Hvernig getið þið varið ykkur ef þið eru drukknir?“ spurði hún.
„Það er eðlilegt. Það er auðveldara að skjóta óbreytta borgara,“ svaraði hann.

Maksym sagði eiginkonu sinni að hann hefði skotið mjög marga óbreytta borgara og sakaði þá um að leka upplýsingum til úkraínska hersins.
„Feldu vopnin fyrir mér,“ sagði hann við eiginkonu sína. „Ég held ég sé að verða brjálaður. Ég er búinn að drepa svo mikið af borgurum.“
Áhugasamir geta smellt hér til að sjá ítarlega sjónvarpsfrétt AP þar sem meðal annars er búið að gera þrívíddarlíkan af Bucha og kortleggja ódæðin þar. Vert er að vara lesendur við því að myndefnið í sjónvarpsfréttinni getur vakið óhug.
Ódæðin eru víða
Rússneskir hermenn hafa verið sakaðir um sambærileg ódæði víða í Úkraínu og hafa þeir verið sakaðir um markvisst ofbeldi gegn óbreyttum borgurum, meðal annars af Sameinuðu þjóðunum.
Umfangsmiklar grafir hafa fundist á þeim svæðum sem Rússar hafa hörfað frá og íbúar hafa lýst pyntingum og morðum á óbreyttum borgurum.
Sjá einnig: Beittu íbúa Izyum kerfisbundnum pyntingum
Yfirvöld í Rússlandi hafa ávalt þvertekið fyrir að óbreyttir borgarar hafi verið myrtir í Bucha eða annarsstaðar í Úkraínu. Meðal annars hafa Rússar sagt að ódæðin í Bucha hafi verið sviðsett en Vladimír Pútín, forseti Rússlands, heiðraði herdeildina sem var í Bucha og hefur verið sökuð um stríðsglæpi.
Það gerði hann tveimur vikum eftir að Rússar hörfuðu frá Kænugarði.
