Lífið

The Ellen DeGeneres Show stjarnan Sophia Grace er ólétt

Elísabet Hanna skrifar
Sophia Grave sló í gegn þegar hún rappaði Super Bass með Nicki Minaj.
Sophia Grave sló í gegn þegar hún rappaði Super Bass með Nicki Minaj. Samsett/Getty/Steve Granitz

Barnastjarnan Sophia Grace Brownlee, sem sló eftirminnilega í gegn í The Ellen DeGeneres Show, á von á barni. Hún komst í sviðsljósið þegar hún var aðeins níu ára gömul að rappa lagið Super Bass með Nicki Minaj ásamt frænku sinni Rosie McClelland.

Í dag er Sophia Grace nítján ára gömul og starfar sem áhrifavaldur. Hún tilkynnti fylgjendum sínum í gær á Youtube að hún sé að verða móðir. Sophia Grace segist eiga fjóra mánuði eftir af meðgöngunni og veit kynið en ætlar sér að deila þeim fréttum síðar, í öðru myndbandi.

Hún segir að fyrst hafi sér verið brugðið yfir fréttunum en núna sé hún búin að venjast tilhugsuninni og sé spennt fyrir nýja hlutverkinu. Sophia Grace segir það hafa verið stórbrotið að heyra hjartslátt barnsins í fyrsta skipti: „Þetta var bókstaflega svo töff því það er ótrúlegt að hugsa til þess að það sé annað líf inni í þér.“

Hér að neðan má sjá fyrstu af mörgum heimsóknum þeirra í The Ellen DeGeneres Show:

Frænka hennar Rosie er í skýjunum með fréttirnar og er spennt að fara inn í þennan nýja kafla við hlið Sophiu Grace. Hún segist boðin og búin til þess að kaupa mjólk og skipta um bleiur. Rosie segist viss um að frænka sín verði besta mamman.

Hér að neðan má sjá síðustu heimsóknina hjá frænkunum til Ellen:


Tengdar fréttir

„Bless“

Spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres hefur nú kvatt þáttinn sinn í síðasta skipti eftir nítján þáttaraðir. Hún bauð Jennifer Aniston velkomna sem síðasta gest þáttarins en hún var einnig fyrsti gesturinn þegar þættirnir hófu göngu sína árið 2003.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×