Newcastle upp í fjórða sætið eftir sigur á Tottenham

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Callum Wilson í þann mund að koma Newcastle í forystu.
Callum Wilson í þann mund að koma Newcastle í forystu. vísir/Getty

Newcastle gerði góða ferð til Lundúna í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Sveinar Eddie Howe mættu gríðarlega ákveðnir til leiks en Son Heung Min fékk fyrsta dauðafæri leiksins snemma leiks þegar Nick Pope varði vel frá Suður-Kóreumanninum.

Eftir hálftíma leik náðu gestirnir forystu eftir skógarhlaup Hugo Lloris í marki Tottenham sem færði Callum Wilson gott færi rétt utan vítateigs og nýtti Wilson það vel.

0-1 varð 0-2 skömmu síðar þegar Miguel Almiron labbaði í gegnum vörn Tottenham og kláraði færið laglega framhjá Lloris.

Gestirnir með tveggja marka forystu í leikhléið.

Snemma í síðari hálfleik gerði Newcastle tilkall til vítaspyrnu þegar boltinn fór greinilega í hönd Emerson Royal innan vítateigs. Ekkert var dæmt og þess í stað hélt Tottenham í sókn sem lauk með marki Harry Kane á 54.mínútu.

Þrátt fyrir að leggja mikinn kraft í sóknarleikinn það sem eftir lifði leiks tókst Tottenham ekki að jafna metin og 1-2 sigur Newcastle staðreynd.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira