Atvinnulíf

Sóðarnir í vinnunni: Oft sama fólkið sem lætur ekki segjast

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Þegar kemur að viðkvæmum starfsmannamálum er slæm umgengni í eldhúsinu á vinnustaðnum oftar en ekki ofarlega eða efst á blaði. Allt er reynt en sama hvað gert er eða sagt er, virðast þeir sem slugsa ekki breyta neinu heldur halda áfram að slugsa: Hvað er þá til ráða?
Þegar kemur að viðkvæmum starfsmannamálum er slæm umgengni í eldhúsinu á vinnustaðnum oftar en ekki ofarlega eða efst á blaði. Allt er reynt en sama hvað gert er eða sagt er, virðast þeir sem slugsa ekki breyta neinu heldur halda áfram að slugsa: Hvað er þá til ráða? Vísir/Getty

Það heyrir nánast til undantekninga að sjá ekki einhverja hvatningu á vinnustöðum til starfsmanna um að ganga vel um. Til dæmis að ganga frá í eldhúsinu. 

Oft jafnvel með einhverjum skemmtilegum skilaboðum eins og „Mamma þín vinnur ekki hér, mundu eftir að ganga frá eftir þig!“ eða eitthvað sambærilegt þar sem reynt er að nota húmor sem hvatningu og áminningu um að allir þurfi að ganga vel um vinnustaðinn.

Vandinn er sá að víðast hvar er það sama starfsfólkið sem fylgir þessum reglum ekki.

Skilur til dæmis oft eftir sig óhreina bolla og diska og svo framvegis.

Það sama gildir síðan um fólkið sem fær vægast sagt í taugarnar í hvert sinn sem það sér uppfullan vaskinn eða opnar ísskápinn til þess eins að sjá nestið sem rann út fyrir tveimur vikum síðan.

Þegar kemur að umgengnisvandamálum á vinnustöðum er eldhúsið oftast nefnt. Á netinu má því finna aragrúa af alls kyns ráðum fyrir vinnustaði og stjórnendur að grípa til, þannig að einhverjar verði umbæturnar.

Allt er reynt:

Miðar hér og þar.

Tölvupóstur til starfsfólks.

Umræður á fundum.

Tiltektardagar.

Og svo framvegis.

Vandinn er þó oftast ekki heildin. Vandinn snýst um að þeir sem eru slugsar í umgengni, halda áfram að vera slugsar sama hvað gert eða sagt er.

Fyrir vikið finnst sumu starfsfólki eins og það sé endalaust að þrífa og taka til eftir aðra, því það umber ekki sóðaskapinn eða draslið.

Hér eru þrjár hugmyndir fyrir vinnustaði til að nálgast vandann.

1. Sérmerktir bollar og diskar fyrir hvern starfsmann:

Á þeim vinnustöðum sem þetta er hægt, gæti þetta verið lausn. Leirtau fyrir gesti væri þá sérmerkt gestum og ræða þyrfti opinskátt við starfsmenn um að starfsmönnum sé ekki ætlað að nota þetta leirtau. 

Hér má sjá dæmi um fyrirtæki í Kanada sem valdi þessa leið og lét sköpunargleðina ráða.

2. Engum finnst gaman að þrífa upp eftir aðra:

Önnur leið er að úthluta eldhúsþrifunum til starfsfólks þannig að allir skiptist á. Þó þannig að almenna reglan sé að hver og einn gangi frá eftir sig. 

Hér vilja sumir meina að slugsum leiðist þetta sérstaklega. Og séu frekar fljótir að skipta um ham.

Enda finnst engum gaman að þrífa mikið upp eftir aðra. Hvað þá þeim sjálfum! 

Fleiri ráð til að bregðast við viðkvæmum starfsmannamálum má sjá hér.

3. Samtalið við þá sem málið helst varðar:

Þá má einnig benda á stjórnendasamtalið við þá starfsmenn sem helst teljast helst þeir sem ítrekað verða uppvísir að því að ganga illa um.

Í viðtali Atvinnulífsins við Eyþór Eðvarsson ráðgjafa og stjórnendaþjálfa hjá Þekkingarmiðlun segir Eyþór meðal annars um eftirfylgnina þegar búið er að ræða umgengnismálin:

„Ef hegðunin endurtekur sig eftir að þú ræddir málið og þér finnst það skipta máli er gott að ræða málið. Ef málið er mikilvægt og viðkomandi tekur ekki mark á þér er gott að ræða hvers vegna hegðunin breytist ekki þrátt fyrir að þið hafið rætt það.“

Viðtalið við Eyþór má í heild sinni lesa hér.


Tengdar fréttir

Andfúli vinnufélaginn og góð ráð

Við erum andfúl á morgnana þegar að við vöknum en sem betur fer er það frá um leið og við höfum burstað tennurnar. Og þó.

Um yfirmanninn sem truflar mann stöðugt

Það getur verið erfitt að eiga samstarfsfélaga sem trufla mann mikið við vinnu. En þegar það er yfirmaðurinn sem er stanslaust að trufla, geta málin virst nokkuð flóknari að takast á við. Því hvernig er hægt að biðja yfirmanninn um að hætta, eða draga úr því, að trufla svona mikið?





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×