Innlent

Toyota Corolla Cross verður frumsýndur hjá Toyota í nóvember

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Toyota Corolla Cross.
Toyota Corolla Cross.

Toyota Corolla Cross verður frumsýnd hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í nóvember. Um er að ræða nýjan jeppling frá Toyota.

Meðfylgjandi er byggt á fréttatilkynningu frá Toyota.

Það má með sanni segja að Corolla Cross sé bíll sem smellpassar inn í íslenskar aðstæður. Þetta er sportjeppi sem í stærð er á milli Yaris Cross og RAV4.

Í Corolla Cross sameinast hefðin sem sannarlega fylgir Toyota Corolla og nýjasta tækni en fimmta kynslóð Hybrid-kerfis Toyota er fyrst notuð í Corolla Cross. Bíllinn er að auki ríkulega búinn tæknilausnum sem gera aksturinn öruggari og ánægjulegri.

Corolla Cross sameinar kosti rúmgóðs fjölskyldubíls og sportjeppa. Farangursrýmið er 433 lítrar og stækkar í 1337 lítra þegar aftursætin er felld niður. Hann er ríkulega búinn með 2.0 lítra vél, 197 hestöfl og aðeins 7,5 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km hraða.

Toyota Corolla Criss.

Corolla Cross verður fáanlegur í þremur útfærslum, Active, Active + og Luxury og kostar framhjóladrifinn frá 6.590.000 kr. Fjórhjóladrifinn kostar frá 6.990.000 kr.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×