Leik lokið: Brighton - Tottenham 0-1 | Kane skoraði markið sem skildi liðin að

Hjörvar Ólafsson skrifar
Harry Kane skoraði sigurmark Tottenham Hotspur í leik liðsins gegn Brighton. 
Harry Kane skoraði sigurmark Tottenham Hotspur í leik liðsins gegn Brighton.  Vísir/Getty

Tottenham Hotspur lagði Brighton að velli með einu marki gegn engu þegar liðin mættust í ensk úrvalsdeildinni í fótbolta karla á suðurströndinni í dag.

Það var Harry Kane sem tryggði Tottenham Hotspur sigurinn með marki sínu um miðbik fyrri háfleiks en Son Heung-min lagði upp mark enska landsliðsframherjans. 

Liðin voru í þriðja og fjórða sæti deildarinnar fyrir níundu umferðina sem hófst í dag. Tottenham Hotspur er áfram í þriðja sæti með 20 stig eftir þennan sigur en liðið er einu stigi á eftir erkifjanda sínum, Arsenal. 

Brighton fer hins vegar niður í sjötta sæti eftir leiki dagsins en Mávarnir hafa 14 stig líkt og Newcastle United. Þar fyrir ofan er Chelsea sem hefur 16 stig. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira