Handbolti

Fimm sem verða að gera betur: „Þetta er dýr leikmaður“

Sindri Sverrisson skrifar
Egill Magnússon er á toppi listans. Hann mætir Gróttu á Seltjarnarnesi í kvöld.
Egill Magnússon er á toppi listans. Hann mætir Gróttu á Seltjarnarnesi í kvöld. vísir/Diego

Handboltasérfræðingurinn Arnar Daði Arnarsson tók saman lista yfir þá fimm leikmenn sem helst af öllum þyrftu að gera betur, í Olís-deild karla í handbolta, miðað við frammistöðuna hingað til á tímabilinu.

Fjórar umferðir eru búnar af deildinni og sú fimmta hefst í kvöld þar sem gefst kærkomið tækifæri fyrir mennina fimm á listanum til að sýna úr hverju þeir eru gerðir.

Hér að neðan má sjá listann og rökstuðning Arnars Daða, og hægt er að hlusta á þáttinn neðst í greininni.

Topp fimm leikmenn sem verða að gera betur

5. Marko Coric, línumaður, Fram

„Þetta er atvinnumaður sem kemur hingað frá Bregenz. Það var mikið talað um hann, stærð hans og styrkleika, og hvar hann hefði spilað. Þetta er dýr leikmaður en þegar Þorvaldur Tryggvason er með betri skotnýtingu og gæti gert betur, þá er fénu betur varið í annað.“

4. Tandri Már Konráðsson, skytta, Stjörnunni

„Hann er búinn að eiga einn góðan leik af fjórum. Loksins hitti hann á góðan leik [í síðustu umferð] en Tandri verður að gera betur.“

3. Árni Bragi Eyjólfsson, hornamaður/skytta, Aftureldingu

„Leikmaðurinn sem skoraði ekki úr uppstilltum sóknarleik í 4. umferðinni, hefur verið í basli með skotnýtinguna og er í nýju hlutverki í Mosfellsbænum. Hann verður að gera betur og ef hann geri það fara stigin að hrannast inn í Mosfellsbænum.“

2. Patrekur Stefánsson, miðjumaður, KA

„Hann verður að bera meiri ábyrgð á því að tapa ekki boltanum. Hann tapaði boltanum fimm sinnum í síðasta leik, og var með núll mörk úr þremur skotum. Þetta er saga Patreks á þessu tímabili. Hann verður að stíga upp. Þeir [KA-menn] eru bara ekki með leikmenn til að bera þetta uppi. Einar Rafn [Eiðsson] getur ekki gert það einn.“

1. Egill Magnússon, skytta, FH

„Þetta ætti ekki að koma neinum á óvart. Núll mörk úr sjö skotum gegn Fram. Tvö úr níu gegn Val og þrjú úr sjö gegn Stjörnunni, eftir að hafa verið meiddur á móti Aftureldingu. Egill Magnússon, farðu í naflaskoðun.“


Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 krónur á mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×