Erlent

Árang­ur­inn í suðr­i dýr­keypt­ur Úkra­ín­u­mönn­um

Samúel Karl Ólason skrifar
Úkraínskir hermenn að störfum.
Úkraínskir hermenn að störfum. Getty/Vyacheslav Madiyevskyi

Úkraínskir hermenn sem tekið hafa þátt í gagnárásum Úkraínumanna í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu, segja herinn sækja fram gegn Rússum. Framsóknin hafi þó verið dýrkeypt og bardagar séu gífurlega harðir.

Yfirvöld í Úkraínu verjast allra fregna af átökunum í Kherson en gagnárásirnar eru Úkraínumönnum gífurlega mikilvægar. Þeir vonast til þess að sýna þjóðinni og bandamönnum sínum í Vesturlöndum að þeir geti sigrað Rússa.

Átta hermenn sem særðust í átökunum í Kherson og eru á sjúkrahúsi ræddu þó við blaðamann Wall Street Journal (áskriftarvefur) um átökin.

Einn þeirra sagði rússneska hermenn tiltölulega fáa en þeir væru vel vopnum búnir og með yfirburði á nokkrum sviðum og verðust með skriðdrekum, stórskotaliði, þyrlum og sprengjuvörpum.

Gagnárásirnar í suðri hófust á mánudag og sögðust Úkraínumenn fljótt hafa brotið sér leið í gegnum fyrstu varnir Rússa á nokkrum stöðum. Í aðdraganda sóknarinnar höfðu Úkraínumenn varið nokkrum vikum í að grafa undan birgðaneti Rússa og gera þeim erfiðara með að flytja liðsauka á svæðið.

Einn viðmælandi WSJ sagði sóknina hafa byrjað vel fyrir sína herdeild. Það væri baráttuandi í deildinni og að Rússar hefðu í fyrstu hörfað. Annar sagði Úkraínumenn sækja fram á nokkrum stöðum á víglínunni en þeir hefðu verið stöðvaðir á öðrum og misst marga menn.

Sérfræðingar segja að það muni líklega taka nokkrar vikur og jafnvel mánuði að sjá hvort gagnárásirnar skili árangri.

Rússar hafa enn mikla yfirburði þegar kemur að stórskotaliði.EPA/Varnarmálaráðuneyti Rússlands

Læknar að þroti komnir

Ráðamenn í Úkraínu og hernaðarsérfræðingar hafa varað við miklu mannfalli, jafnvel þótt sóknin gangi vel hjá Úkraínumönnum. Þeir séu að ráðast á víggirtar varnir rússneska hersins og Rússar búi enn yfir sérstaklega miklum yfirburðum þegar komi að stórskotaliði.

Læknir á sjúkrahúsinu sem hermennirnir voru á sagði álagið gífurlegt. Margir læknar og hjúkrunarfræðingar hefðu hætt að mæta til vinnu þegar Rússar skutu eldflaugum á sjúkrahúsið í ágúst. Læknarnir á sjúkrahúsinu keppist við að bjarga lífi alvarlegra særðra hermanna, áður en þeir væru sendir til annarra betur búinna sjúkrahúsa vestar í landinu.

Viðmælandi WSJ sagði einnig að þrátt fyrir mikinn fjölda særðra hermanna kæmi baráttuandi þeirra honum á óvart. Þeir vildu flestir komast aftur á vígvöllinn eins fljótt og mögulegt væri.

Undirbúa frekari árásir

Quentin Sommerville, fréttamaður BBC sem er staddur á Donbas-svæðinu í austurhluta Úkraínu, segir Úkraínumenn einnig undirbúa gagnárásir þar og í kringum Kharkiv í norðurhluta landsins. Úkraínumenn vilji ná frumkvæðinu í átökunum af Rússum fyrir veturinn.

Það að hafa frumkvæðið í átökum felur í stuttu máli sagt í sér að stjórna framvindu mála. Andstæðingurinn þarf þá að bregðast við aðgerðum og sækir síður fram. Að hafa frumkvæðið er gífurlega mikilvægt í átökum.

Eftir að Rússar hörfuðu frá svæðinu við Kænugarð og frá norðurhluta Úkraínu, einbeittu þeir sér að því að ná Donetsk- og Luhansk-héruðum, sem saman mynda Donbas-svæðið. Eftir hægan og stöðugan árangur þar í sumar hefur sókn Rússa að mestu stöðvast þar og víglínan hefur lítið breyst í ágúst.

Úkraínskir hermenn í héraðinu segja að árásum Rússa hafi fækkað og færri hermenn taki þar að auki þátt í þeim.

Einn yfirmaður sagði Sommerville að þegar Severodonetsk féll í hendur Rússa í lok júlí, hafi hlutfall hermanna verið um einn á móti sjö, Rússum í vil. Nú sé hlutfallið nær einum á móti þremur í austurhluta landsins.

Rússar hafa á undanförnum vikum flutt hermenn frá Donbas til Kherson, vegna gagnárása Úkraínumanna.

Betur þjálfaðir herlæknar

Valerii Zaluzhnyi, herforingi í úkraínska hernum, sagði Sommerville að um níu þúsund hermenn hefðu fallið frá upphafi stríðsins. Engar opinberar tölur hafa verið gefnar upp en óhætt er að segja að níu þúsund er í lægri kantinum þegar kemur að áætlunum um fallna hermenn.

Zaluzhnyi segir að úkraínski herinn hafi tekið stakkaskiptum frá 2014, þegar Rússar réðust fyrst inn í Úkraínu og innlimuðu Krímskaga og hjálpuðu aðskilnaðarsinnum að leggja undir sig hluta Donbas. Þær breytingar séu bersýnilegar þegar komið að herlæknum og það hafi hjálpað til við að draga úr mannfalli.


Tengdar fréttir

Borgin slítur vina­borgar­sam­starfi við Moskvu

Borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í morgun einróma að slíta vinaborgasamstarfi við rússnesku höfuðborgina Moskvu, á grundvelli samstarfssamnings sem í gildi hefur verið milli borganna frá árinu 2007.

Gera Rússum erfiðara og dýrara að ferðast til Schengen-svæðisins

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykktu í morgun að gera rússneskum ferðamönnum erfiðara og dýrara að fá vegabréfsáritun til ferðalaga inn í sambandið. Þeir komust ekki að samkomulagi um að meina Rússum alfarið um vegabréfsáritanir, eins og ráðamenn nokkurra ríkja í Austur-Evrópu hafa farið fram á.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×