Bíó og sjónvarp

Munu standa að gerð Ára­móta­skaupsins í ár

Atli Ísleifsson skrifar
Teymið sem mun standa að Áramótaskaupinu í ár.
Teymið sem mun standa að Áramótaskaupinu í ár. RÚV

Dóra Jóhannsdóttir mun leikstýra Áramótaskaupinu í ár og Saga Garðarsdóttir verður yfirhöfundur þess.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu, en teymi handritshöfunda hóf fyrr í sumar að skrifa handritið að Áramótaskaupi ársins. 

Auk Sögu munu Friðgeir Einarsson, Vigdís Hafliðadóttir, Jóhann Kristófer Stefánsson (einnig þekktur sem Joey Christ), Dóra Jóhannsdóttir og Sigurjón Kjartansson skrifa handritið.

„Leikstjóri og meðhöfundur verður Dóra Jóhannsdóttir sem leiddi höfundahóp skaupsins 2017 og 2019 og m.a. stofnaði Improv Ísland hópinn vinsæla.

Framleiðandi og meðhöfundur er hinn gamalreyndi Tvíhöfði og fyrrum Fóstbróðir, Sigurjón Kjartansson. Nýstofnað framleiðslufyrirtæki Sigurjóns, S800, framleiðir Skaupið sem er fyrsta verkefni fyrirtækisins.

Saga er ekki einasta einn eftirsóttasti uppistandari þjóðarinnar heldur hefur hún einnig leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta. Þá er hún afkastamikill handritshöfundur og var ein af höfundum Skaupsins árin 2013 og 2017.

Friðgeir er leikari, rithöfundur og leikskáld sem hefur bæði einn síns liðs og með hinum annálaða KRIÐPLEIR hóp skrifað og leikið í fjölda verka fyrir leiksvið og Útvarpsleikhúsið.

Vigdís Hafliðadóttir er einna kunnust sem söngkona hljómsveitarinnar Flott. Hún hefur einnig getið sér gott orð sem uppistandari, m.a. sem hluti af VHS-hópnum. Hún söng einmitt lokalag Skaupsins í fyrra ásamt Unnsteini Manúel.

Jóhann Kristófer hefur komið víða við á stuttum en fjölbreyttum ferli. Hann leikstýrði og skrifaði hina vinsælu sjónvarpsþætti ÆÐI og hefur einnig getið sér gott orð í tónlistundir listamannsnafninu Joey Christ og í samstarfi við aðra listamenn á borð við Sturla Atlas,“ segir í tilkynningunni frá RÚV. 

Rás 1 og TikTok

Haft er eftir Dóru að handritshópurinn vilji að Skaupið verði fyndið fyrir alla, hvort sem viðkomandi dýrki Rás 1 eða dái TikTok. „Við hættum ekki að skrifa brandara fyrr en við erum þess fullviss að allir eigi eftir að hlæja a.m.k. átta sinnum og þar af einu sinni mjög hátt.“ 

Hún vilji þó lítið gefa upp um hvernig gangi og hvað verði tekið fyrir. „Sigurjón á að leika verðbólgudrauginn. Annað er leyndó!“


Tengdar fréttir

Inga Sæ­land á­nægð með skaupið: „Ég er búin að marg­hlæja að þessu“

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er hæstánægð með það stóra hlutverk sem hún og hennar flokkur fékk í Áramótaskaupi Ríkisútvarpsins þessi áramótin. Hún er búin að horfa á skaupið þrisvar og hyggst gera það oftar, svo ánægð var hún með það. Hún segist ekki taka það inn á sig að gert hafi verið grín að henni í skaupinu.

Sjö fengin til að skapa Ára­móta­skaupið

Höfundar Áramótaskaupsins í ár verða þau Vilhelm Neto, Bergur Ebbi, Hugleikur Dagsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Gagga Jónsdóttir og Lóa Hjálmtýsdóttir. Reynir Lyngdal mun leikstýra Skaupinu líkt og síðastliðin tvö ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×