Fótbolti

Brynjólfur og félagar unnu loks sinn fyrsta sigur

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Brynjólfur Willumsson.
Brynjólfur Willumsson. Getty

Brynjólfur Willumsson og félagar í Kristiansund unnu í dag sinn fyrsta sigur á tímabilinu í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Kristiansund hafði aðeins innbyrt tvö stig í fyrstu fjórtán umferðum deildarinnar en í dag heimsótti liðið HamKam sem er í neðri hluta norsku deildarinnar en með átján stig.

Christoffer Aasbak kom Kristiansund í forystu á lokamínútu fyrri hálfleiks og reyndist það eina mark leiksins.

Brynjólfur hóf leik í fremstu víglínu Kristiansund; fékk gult spjald á 73.mínútu og var svo skipt af velli skömmu fyrir leikslok.

Þrátt fyrir sigurinn er Kristiansund enn ellefu stigum frá öruggu sæti þegar mótið er hálfnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×