Fetar Anton í verðlaunafótspor Arnar? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júní 2022 11:31 Anton Sveinn McKee fagnar eftir undanúrslitasundið í gær. Þar var hann með næstbesta tíma allra. getty/Tom Pennington Síðdegis verður Anton Sveinn McKee fimmti Íslendingurinn til að stinga sér til sunds í úrslitum á HM í 50 metra laug. Hann flaug inn í úrslit í 200 metra bringusundi á HM í Búdapest á nýju Íslandsmeti í gær.
Anton var í miklum ham í gær. Í undanrásunum synti hann á 2:09,69 mínútum og bætti eigið Íslandsmet. Hann var með fimmta besta tímann í undanrásunum. Í undanúrslitunum bætti Anton um betur, synti á 2:08,74 mínútum og sló aðeins nokkurra klukkutíma gamalt Íslandsmet sitt. Anton var með næstbesta tímann í undanúrslitunum. Aðeins ástralski heimsmethafinn Zac Stubblety-Cook var með betri tíma; 2:06,72 mínútur. Yu Hanaguruma frá Japan var með þriðja besta tímann; 2:08,75 mínútur. Sem fyrr sagði er Anton fimmti Íslendingurinn sem kemst í úrslit á HM í 50 metra laug. Hann vonast væntanlega eftir því að feta í fótspor Arnar Arnarsonar sem vann til tveggja verðlauna á HM í Fukuoka í Japan 2001. Örn vann silfur í 100 metra baksundi og brons í 200 metra baksundi. Umfjöllun um frábæran árangur Arnar Arnarsonar á HM í Japan í júlílok 2001.úrklippa úr dv 28. júlí 2001 Eðvarð Þór Eðvarðsson komst í úrslit í 200 metra baksundi á HM í Madríd 1986. Tvær íslenskar sundkonur komust í úrslit á HM í Kazan í Rússlandi 2015. Hrafnhildur Lúthersdóttir lenti í 7. sæti í 50 metra bringusundi og 6. sæti í 100 metra bringusundi. Hrafnhildur vann svo tvenn silfurverðlaun og ein bronsverðlaun á EM í 50 metra laug í London 2016. Eygló Ósk Gústafsdóttir komst í úrslit í 200 metra baksundi á HM í Kazan 2015 og endaði í 8. sæti. Seinna sama ár vann hún tvenn bronsverðlaun á EM í 25 metra laug. Anton syndir í úrslitum í 200 metra bringusundi klukkan 17:28 í dag.
Sund Mest lesið Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Hjalti stýrir Skagamönnum Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Spurs knúðu fram oddaleik Tilfinningaríkur sigur Littler Dagskráin í dag: Baráttan um þriðja sætið í Bestu deild karla Snýr aftur heim til Víkinga Sabalenka þakklát eftir sigur Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Martin valinn mikilvægastur Allegri ráðinn þjálfari Napoli Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Emil Barja tekur við Stjörnunni Sjá meira